Heilbrigt líf - 01.12.1942, Síða 121
í júlímánuði bárust hingað ýmsir munir frá R.K.Í., svo sem
sjúkrabörur, sjúkrarúm, myndir og' línurit yfir starfsemi R.K.Í.
Seint í ágústmánuði var svo haldin sýning- fyrir almenning' á
munum þessum. Við það tækifæri fluttu ræður: Halldór Kristins-
son, héraðslæknir, „Um starfsemi Rauða Kross íslands", og Egill
Stefánsson, slökkviliðsstjóri, „Um loftvarnir".
Síðastliðið haust skrifaði formaður Rauða Kross deildarinnar
hér bæjarstjórn Siglufjarðar, og fór fram á að hún (bæjarstjórnin)
réði hjúkrunarkonu fyrir bæinn, sem gæti jafnframt að einhverju
leyti starfað fyrir Rauða Kross deildina. Var þetta samþykkt í
bæjarstjórninni, og má gera ráð fyrir, að þessu máli verði hrint í
framkvæmd hið fyrsta. Þá hefir hjúkrunarkona barnaskólans og'
aðrar hjúkrunarkonur í bænum lagt á sig töluvert starf vegna
deildarinnar. Þá hefir verið rætt um það í bæjarstjórninni, að nauð-
syn sé á, að hafa hér blóð fyrirliggjandi til inngjafa. Nokkrir örðug-
leikar munu vera á þessu, og óvíst, hvort hægt verður að fram-
kvæma þessa hugmynd.
Fyrir jólin voru seld merki, sem R.K.Í. hafði sent deildinni
hérna. Varð nokkur ágóði af sölunni, sem rann í félagssjóð.
Á öskudaginn vora seld merki, sem R.K.Í. sendi deildinni, en
minna seldist en til var ætlast. R.K.Í. hefir þegar verið sendur sinn
hluti af ágóðanum.
29. marz 1942 var haldinn aðalfundur í deildinni, og voru þá
þessir menn kosnir í stjórn deildarinnar: Halldór Kristinsson, héraðs-
læknir, formaður, Olafur Þ. Þorsteinsson, læknir, varaformaður,
Helgi Ásgrímsson gjaldkeri, Jóhann Jóhannsson ritari, og með-
stjórnendur Gestur Fanndal, kaupm., Katrín Pálsdóttir, hjúkrunar-
kona, og Lárus Jónsson, læknir.
Það verður eigi sagt, að starfið hafi verið fjölþætt þetta fyrsta
ár deildarinnar. Hefir allt starfið beinzt að því, að vera sem bezt
undirbúinn til að mæta þeim örðugleikum, sem hér yrðu, ef til loft-
árása kæmi.
Nóg verkefni bíða deildarinnar, og hefir stjórnin hugsað sér að
taka upp fjölþættara starf, jafnskjótt og auðið er.
Siglufirði, 10. maí 1942.
Jóhann Jóhannsson, ritari.
Skýrsla RauSa Kross deildar Akureyrar 1941.
Starfsemin var með líku sniði og áður. Deildin hafði í þjónustu
sinni hjúkrunarkonu, sem veitti aðstoð og hjúkrun í heimahúsum.
Heilbrigt líf
247