Heilbrigt líf - 01.12.1942, Page 124
Skýrsla frá Rauía Kross deild HafnarfjaríSar til RauíSa Kross
Islands fyrir áriS 1941.
1. Tala félaga er 104.
2. Tveir félagar dóu á árinu, þeir Þórður Edilonsson, héraðs-
læknir, og Gunnar Hjörleifsson, sjómaður.
3. A árinu snerust störf deildarinnar aðallega um að vinna að
því að greiða fyrir, að börn bæjarins yrðu aðnjótandi sumardvalar
í sveit. Fimm manna sumardvalarnefnd var skipuð í bænum og' voru
tveir þeirra kosnir af R.K.d. Hafnarfjarðar, og var annar þeirra
g'jaldkeri, en hinn ritari nefndarinnar.
133 börnum var komið fyrir á dvalarheimilum og' allmörg'um á
sveitaheimilum. Stjórn R.K.d. gekkst fyrir fjársöfnun til styrktar
fyrir sumardvöl barnanna og söfnuðust samtals kr. 11276,55.
4. Stjórnin leitaði samstarfs við loftvarnanefnd um ýmsar ráð-
stafanir, ef til árásar hér kynni að koma, og voru að tilhlutun
nefndarinnar, en eftir tillögum stjórnar R.K.d., keypt 20 sjúkrarúm
og dýnur.
Þá voru og útvegaðar nokkrar stúlkur sem sjálfboðaliðar til þess
að vinna að hjúkrun, ef með þyrfti, undir stjórn hjúkrunarkonu
bæjarins. Var hugmyndin að kenna þeim undirstöðuatriði í starfinu,
en úr því gat þó ekki orðið sökum húsnæðisskorts.
5. Árstillag félaga var á aðalfundi hækkað úr kr. 3,00 í kr. 5,00.
6. Ur stjórninni gengu Ásgrímur Sigfússon, sökum vanheilsu, og
Sigríður Erlendsdóttir, sem baðst undan endurkosningu. 1 þeirra
stað voru kosnir Theódór Matthiesen, læknir, og Eyjólfur Kristjáns-
son, verzlunarmaður.
Hafnarfirði, 25. sept. 1942.
Bj. Snxbjörnsson, form. Jóh. Þorsteinsson, ritari.
250
Heilbrigt líf