Úrval - 01.10.1946, Side 11
NÝ VÉLATEGUND: KOLAKNÚIN GASTÚRBlNA
9
framsýnna forustumanna jám-
brauta og kolaiðnaðarins, sem
komið höfðu saman til fundar
til að ræða sameiginleg vanda-
mál. Járnbrautarfélögin fá
drjúgan hlut af tekjum sínum
fyrir flutning á kolum og þeim
er því hagur í aukinni kola-
eyðslu. En flestar gufuknúnar
eimreiðir eru á ýmsan hátt
óhentugar. Þær breyta minna
en 8% af hitamagni kolanna í
orku, þær eyða miklum tíma í
að taka vatn, þær fara af stað
með rykkjum, þær slíta teinun-
um mikið vegna hristings og
þær spúa reyk og sóti út yfir
umhverfið. Dieselvélin, sem
brennir olíu, er miklu nýtnari,
enda er hún óðum að útrýma
gufuvélunum.
All mörg járnbrauta- og kola-
námufélög lögðu í sameiningu
fram 1 milljón dollara til að
vinna að endurbótum á kola-
eimreiðinni.
Þau fengu John I. Yellott,
einn af helztu vélfræðingum
landsins, til að stjórna tilraun-
unum. Fyrir rösku ári hóf Yell-
ott tilraunir sínar. Hann gerði
ráð fyrir að vera fimm ár að
leysa vandann — en fyrir jól
var kolagastúrbínan hans kom-
in í gang. Yellott rakti fyrir mér
ganga málsins frá því að kolin
eru tekin úr byng þar til gas-
túrbínan er komin í gang. Það
er ekki eiginlega um uppfinn-
ingu að ræða, segir hann, öllu
heldur samstillta hagnýtingu
áður gerðra uppfinninga.
Kolin eru fyrst sett í kvöm,
sem malar þau álíka gróft og
kaffi. En það er of gróft og
þess vegna er það látið í sívalt
tæki, sem Yellott fann upp
þegar hann var kennari í Chica-
go. Tæki þetta er þannig útbúið
að grófkomóttum kolunum er
blásið gegn um dreifara við
háan þrýsting. Um leið og kolin
koma út úr dreifaranum er
loftþrýstingurinn skyndilega
lækkaður. Loftið sem þjappast
hefir inn í háræðar kolanna
ryðst út og sprengir við það
kolakornin í þúsund agnir, sem
eru svo smáar að þær sjást
ekki nema í smásjá.
Ef maður tekur þetta kola-
duft á milh fingranna er það
mjúkt eins og lampasót. Það
er nú svo fíngert að það brenn-
ur samstundis, eins og brennslu-
oha, þegar því er blásið inn í
sprengiholið. Ekki fara nema
2% af orku kolanna í að fín-
mylja þau þannig.
Erfiðasta úrlausnarefnið í