Úrval - 01.10.1946, Page 90
88
TJRVAL.
itvemig þeir ættu að bæta lífs-
kjör sín. Shalaby og Aida voru
að bíða eftir heppilegu tækifæri,
einhverjum óánægjuneista sem
þau gætu blásið að og magnað.
Tækifærið kom við eina tilraun
stjórnarinnar til að koma á
skólaskyldu. Börnunum í Mana-
yil var fyrirskipað að sækja
skóla í þorpi all langt frá. Þau
fóru ekki. Dag nokkurn kom
stjórnarerindreki til Manayil og
sektaði nokkra foreldra um 15
piastra (4 krónur), sem jafn-
gildir þrennum daglaunum. —
Karlmennirnir í þorpinu ræddu
ekki um annað meira á fundum
sínum fyrst á eftir.
Shalaby kom með uppá-
stungu. Því gat Manayil ekki
fengið sinn eigin skóla ? Ef til
vill væri hægt að fá stjórnina
til að byggja hann.
Mennirnir voru lengi að átta
sig á jafn stórkostlegri fyrir-
ætlun. En dag nokkurn var lagt
fyrir Shalaby skjal eitt mikið
með umsókn um skóla, undir-
skrifað (með fingraförum) af
flestum bændum þorpsins.
Shalaby sendi skjalið til
Kairo. Stjórnin bauðst til að
byggja skóla í Manayil, ef
þorpsbúar legðu til lóðina.
Þá vandaðist málið. 1 Manayil
bjuggu 430 fjölskyldur á 900
ekrum lands. Hver ferþumlung-
ur var ræktaður eða hýstur.
Það var engin lóð til.
Þá kom Shalaby með aðra
uppástungu: Að fylla upp
stærstu tjörnina með mold og
skít, sem fengist með því að
slétta götur þorpsins. Þá var
lóðin fengin. Og jafnframt var
útrýmt einni helztu gróðrarstíu
sýkla í þorpinu, en á það minnt-
ist Shalaby ekki.
Uppástungan var samþykkt,
og mennirnir byrjuðu á verkinu
í frístundum sínum. Það er mik-
ið átak fyrir menn sem eru
lamaðir af „bilharziasis" að
vinna sem sjálfboðaliðar að
loknu dagsverki, en verkinu
miðaði hægt og hægt áfram.
En nú sneru Shalaby og Aida
sér að öðru viðfangsefni: heil-
brigðismálunum. Þarfirnar voru
augljósar: það vantaði salemi,
brunna með drykkjarvatni og
vatni til þvotta sem komið gæti
í staðinn fyrir hið staðna vatn
í áveituskurðinum; það þurfti
að kenna fólkinu þrifnað og
breyta ýmsu í háttum þess. En
fyrst af öllu varð að sannfæra
þorpsbúa um nauðsynina á þess-
um aðgerðum — en á því höfðu
einmitt allar heilbrigðisráðstaf-