Úrval - 01.10.1946, Page 122

Úrval - 01.10.1946, Page 122
120 ■Crval koma Essenines var fyrir neðan allar hellur: hann var skáld og snillingur; hvernig gat maður búizt við því að hann hegðaði sér eins og fólk flest? Isadora græddi á sýningunum — mér var vel kunnugt um það. Andblásturinn sem hún mætti og umtalið um hana, leiddi af sér mikla aðsókn. Samt varð hún að taka lán, til þess að komast aftur til Evrópu. Orsökin var falin í ferðatöskum Essenines. í töskum hans var geymt mörg þúsund dala virði af skrautklæðnaði og munaðar- varningi — en Isadora fékk ekki að snerta neitt af því. Þegar hún hélt heim til Moskvu, átti hún ekki annað fata en þau, sem hún stóð í. Öll hin glæsiíegu klæði hennar voru horfin — horfin ofan í töskur Essenines. Ég hitti Isadoru aftur í París árið 1927, árið, sem hún dó. Ég fékk bréf frá henni, þar sem hún sagðist vona að ég hefði fyrirgefið henni öll óþægindin, sem hún olli mér í Ameríku. Hún spurði, hvort ég vildi finna sig, þótt ekki væri nema rétt sem snöggvast. Ég fór á fund hennar og við snæddum miðdegisverð saman. Hún sagði mér frá sambúð sinni við Essenine síðustu mánuðina, og hve óhamingjusöm hún hefði verið. Þau höfðu farið til Moskvu, eftir að hafa lent í ýmsum hneykslismálum í París og Berlín. En ,,elskan“ hennar, hinn fríði og mislyndi ungling- ur, sem allt líf hennar snerist um, vildi ekki búa með henni lengur. Hann hafði margoft hótað að fara frá henni. Og þegar hún ávítaði hann fyrir að hafa gifzt sér til f jár, dró hann seðlabunka upp úr vasa sínum og reif seðl- ana í tætlur fyrir augum henn- ar. Hann sagði við fréttaritara: „Auðvitað giftist ég Isadoru vegna peninganna!" Og í næstu andrá sagði hann: ,,Ég er brjál- aður af ást til Isadoru, en hún drekkur svo mikið, að mér er ómögulegt að búa með henni.“ Það var óhjákvæmilegt, að hann fremdi sjálfsmorð, en að vísu á frumlegan hátt. Hann hafði talað um sjálfsmorð í New York, þar sem Woolworth- byggingin hafði freistað hans. Hann kvaðst ætla að stökkva ofan af turninum, með handrit
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.