Úrval - 01.10.1946, Qupperneq 127
LISTAMANNALlF
126
legar ferðir með járnbrautum,
þá fór ég að þekkja Pavlovu.
Ég kynntist tárum hennar og
hlátri. Ég komst að raun um,
hve mjög hún helgaði sig starf-
inu, félögum sínum og áhorf-
endunum. Og mig fór að renna
grun í hina ófullnægðu þrá, sem
hún bar í brósti.
Sannleikurinn er sá, að
Pavlova giftist aldrei. Það var
ég, sem kom þeirri fregn í blöð-
in, að hún væri gift. Árið 1925
birtu blöðin þá frásögn mína,
að hún hefði gifst Victor
Dandre seytján árum áður.
Anna Pavlova var dóttir
óþekkts föður og almúgakonu,
sem lifðu í fátækt í úthverfi
Pétursborgar. Hún sáaldreiföð-
ur sinn, en eitt sinn sagði hún
mér, að hann væri Gyðingur.
Annað vissi hún ekki um hann.
Hæfileikar Önnu björguðu
henni úr því eymdarlífi, sem
annars hefðu beðið hennar.
Stjóm sarsins var lagin á að
finna. gimsteina í sorphaugun-
um, sem hún hafði sjálf skapað,
og litla stúlkan var sett til
náms í hinum keisaralega Ball-
ettskóla. Úr því var henniborgið
Þegar hún var ungur nýliði í
dansskólanum, hitti hún Victor
Dandre. Hann var gósseiganda-
sonur frá Poltava og starfaði í
utanríkisþjónustu zarsins.
Hann kostaði miklu fé til
hennar, og brátt kom í ljós, að
hann átti ekki þetta fé að öllu
leyti sjálfur. Hann hafði dregið
sér fé zarsins. Þegar honurn
var varpað í fangelsi, kom
Pavlova honum til hjálpar.
Plvort sem hún elskaði hann
eða ekki, gat hún ekki látið
hann gjalda hjálpfýsi sinnar.
Hún beitti áhrifum sínum, til
þess að fá hann látinn lausan,
og gerði hann síðan að fulltrúa
sínum. Þau fóru saman frá
Rússlandi.
Hún lifði ótrúlega erfiðu lífi.
Hún var á ferðalögum árið um
kring, og hvíldi sig aðeins þrjár
til fjórar ilikur í júlímánuði.
Venjulega dvaldi hún þá við
einhverjar heilsulindir í Evrópu.
Svo var hún eina viku í París,
ræddi við málara og tónskáld
og lagði drög að næstu dönsum
sínum.
í ágústmánuði fór hún að
æfa sig, og í september var hún
farin að dansa. Hún dvaldist
fjórar til sex vikur á Englandi,
en hélt þvínæst til Bandaríkj-
anna.
Á sýningarferðunum var ekki
mikið um hvíld. Pavlova var sí-