Úrval - 01.08.1949, Qupperneq 16
14
ÚRVAL
ræðum Tims, ein af hinum
heimssögulegu ræðum, sem
hann hélt stundum. Hann hélt
þær fyrir allan heiminn, og þó
vorum við ekki nema sjö í gryf j-
unni. Og flestir sváfu meðan Tim
hélt hinar heimssögulega ræður
sínar. Svo fór ræðuskörungur-
inn Tim á vörð meðan hinir
sváfu. Stálhjálmurinn hans lá á
sínum stað. Og liðþjálfinn sagði
enn einu sinni: „Það er ég sem
verð skammaður fyrir heimsku,
ef eitthvað skeður, verð ég
eftir á skammaður fyrir
heimsku.“
Þegar ég kom til að leysa Tim
af, var yfirbragð hans undar-
lega gult í samanburði við snjó-
inn. Jafngult og leirinn í leir-
gryfjunum heima. Og snjórinn
var óbærilega hvítur.
,,Ég hafði aldrei ímyndað mér
að þú gætir verið úr leir, Tim,“
sagði ég. „Hinar miklu ræður
þínar eru gagnorðar, en þær ná
til enda veraldar. Og við orð
þín gleymir maður leimum. Ræð-
ur þínar eru alltaf einstakar,
Tim. Þær eru vissulega heims-
sögulegar.“
En Tim svaraði ekki. Gult
andlit hans var ekki fallegt með
hvítan nætursnjóinn að bak-
grunni. Snjórinn var óbærilega
bleikur. Tim sefur, var fyrsta
hugsun mín. Sá sem getur hald-
ið svona stórkostlega ræðu um
óttann, hann getur líka sofið
hér í skóginum þar sem úir og
grúir af Rússum. Tim stóð upp-
réttur í snjógryfjunni og hafði
hallað gulu andlitinu að vélbyss-
unni.
„Komdu upp, Tim,“ sagði ég.
En Tim kom ekki upp, og gult
andlit hans var eins og andlit
ókunnugs manns í snjónum. Þá
ýtti ég með stígvélaðri tánni
á kinnina á Tim. Það var
svolítill snjór á stígvélinu og
hann sat eftir á kinninní.
Stígvélatáin markaði örlitla
dæld í kinnina á Tim. Og
dældin sat líka eftir í kinninni.
Þá tók ég eftir, að hönd Tims
hélt ekki utan um byssuskeftið.
Og vísifingurinn var enn boginn.
Ég stóð stundarkorn kyrr í
snjónum. Ég stóð stundarkorn
við hlið Tims. Svo sagði ég við
Tim dauðan:
„Það er rétt hjá þér, Tim,
ekkert af öllu þessu stoðar okk-
ur. Engar brúðir, enginn kross
og enginn næturgali, Tim, og
jafnvel ekki sýrenusnjórinn,
Tim. Því að herra Hinsch, sem
enn getur heyrt næturgalann
syngja og andað að sér ilmi sýr-