Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2004, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.06.2004, Blaðsíða 18
Kolvetnin og kílóin Hve vel gefst Atkins-kúrinn? Forðum dóu Islendingar úr ófeiti -og enn herjar van- nœring á hluta heimsbyggð- arinnar. Samt er nú svo kom- ið að ofgnótt matar veldur meiri heilsubresti og dregur fleiri jarðarbúa til dauða en matvœlaskortur. Ýmis ráð hafa verið gefm gegn offitu oggefast misvel. Hér verður aðeins jjallað um eina aðferð til að hemja mittismálið, sem umdeild hefur verið gegnum tíðina og er enn, og felst íþví að sneiða sem mest hjá kol- vetnaríkri fæðu (eins og sykri og kornmeti) og halda sig í þess stað við eggjahvítu eða prótín (til dœmis í kjötjfiski og baunum), og sér í lagi við fitu. Banting hét maður, ekki sá sem einangraði insúlín og fékk fyrir það nóbelsverðlaun. Um þennan fyrrnefnda hef ég engar tiltækar heim- ildir utan brigðult minni — man til dæmis hvorki hvenær hann var uppi né hvar. En hann var sjúklega feitur og lagði að eigin sögn af með óhefð- bundnum aðferðum. (Ekki veit ég hvort sænska sögnin „att banta“, að leggja af, tengist nafni hans.) Margt í frásögn Bantings er ótrúverðugt og Örnólfur Thorlacius þeir sem hann nefndi sem ráðgjafa og vitorðsmenn kepptust um að bera af sér ábyrgð á aðferðum hans og öllu æði. Banting var að eigin sögn orðinn svo feitur að hann komst ekki niður stiga á milli hæða í húsi sínu nema aft- urábak. Þar kom að hann missti heym, og læknir hans tjáði honum að ástæðan væri sú að kinnfitufellingar legðust fyrir hlustaropin. Banting sagði svo frá að þessi læknir hefði sett honum mat- arkúr, sem hann hefði farið eftir með góðum árangri. (Þess má geta að lækn- irinn sór af sér ábyrgð á þessu matar- æði og raunar öll afskipti af holdafari Bantings.) í stuttu máli fólst megrunar- aóferðin í því að eta sem mest af fitu en sneiða hjá kolvetnum. Kannski kunni Banting ekki ofgóð skil á flokk- un orkuefna í mat, eða kannski réði óskhyggja því að hann mælti með ýmsum notalegum kolvetnum eða kol- vetnagjöfum. Til dæinis fékk hann sér jafnan vænt sérrístaup til að róa hug- ann á kvöldin, en ef það dugði ekki greip hann til viskís. Ekki skal lagður dómur á frásögn Bantings. Megrunarkúrar í hans anda hafa síðan komið fram undir ýmsum nöfnum, meðal annars Mayo Clinic Diet og Air Force Diet. Fívorki Mayo- sjúkrahúsið né bandaríski flugherinn gangast samt við nokkurri ábyrgð á þessum neysluvenjum. AF VILHJÁLMI STEFÁNSSYNI Næstur skal nefndur til sögu land- könnuðurinn Vilhjálmur Stefánsson. Hann ferðaðist meðal inúíta nyrst í Norður-Ameríku snemma á síðustu öld. Ólíkt öðrum landkönnuðum þar um slóðir tamdi hann sér neysluvenj- ur innfæddra og hafði ekki með sér matarbirgðir, enda vildi hann ekki síður kynnast íbúunum en landinu. Hann lifði því á fiski, hreindýrakjöti, selkjöti og -spiki, hvalkjöti og rengi og öðrum afúrðum dýra. í bók sinni, „Ekki af brauði einu saman“ (Not by Bread Alone), greinir Vilhjálmur ífá því hvernig smekkur hans hafi breyst, og hann hafi brátt vanist mataræði inúíta og öðrum háttum þeirra. Þegar Vilhjálmur sneri til menning- arheims hvíta mannsins vakti hann at- hygli á því að inúítar á norðurslóð fá nær alla sína fæðu úr dýraríkinu, og í henni er sáralítið af kolvetnum, og fita helsti orkugjafinn. Samt vora flestir þessir menn í hóflegum, eðlilegum holdum og raunar við betri heilsu en margir í tæknivæddum „menningar- samfélögum“. Hvar sem inúítar tóku upp matarvenjur hvíta mannsins með sykri og mjölmeti, fylgdu offita, tann- skemmdir og fleiri kvillar í kjölfarið. Skyrbjúgur lék marga illa um þessar mundir. Menn vissu ekki að vítamín- skortur var orsökin, og þekktu raunar ekki C-vítamín, en talið var að veik- inni yrði ekki bægt ffá nema með nýju grænmeti eða ávöxtum. Það var auk þess viðtekin skoðun næringarfræð- inga að menn gætu ekki brennt fítu til 258 Heima er bezt Á ferðum sínum um heimskautalöndin tók Vilhjálmur Stefánsson aldrei með sér mat að heiman, en veiddi sér til matar að hœtti innfœddra. Hér sést hann draga selskrokk til búða sinna, árið 1910. [New Scientist.J orku í framum sínum, nema sykur - sem sagt kolvetni - brynni þar líka. An sykurs hlytu fítuefnaskiptin að rata á villigötur svo eiturefni söfnuðust fyrir í líkamanum, eins og gerist, þegar syk- ursjúkur maður fær ekki tilskilin lyf. Neysluvenjur inúíta á norðurslóð bentu til þess að eitthvað væri bogið við þessar kenningar. Þegar Vilhjálm- ur hélt því fram á prenti að menn gætu haldið heilsu lausir við skyrbjúg og etið ekkert nema kjötmeti, var næring- arfræðingum nóg boðið. Hann var tek- inn á teppið hjá bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu og brigður bornar á staðhæfmgar hans. Þar kom að Vil- hjálmi leiddist þófíð og hann bauðst til að gangast undir próf á spítala í New York til að rökstyðja mál sitt. Hann lifði svo, ásamt félaga sínum Karsten Anderson, góðu lífí á kolvetnasnauðu fæði inúíta undir eftirliti sérfræðinga spítalans í tólf mánuði samfleytt á ár- unum 1928 og 1929. Efnaskipti tví- menninganna mældust í stakasta lagi og þeir léttust um ein tvö kíló hvor, þótt þeir fengju um 80% af hitaeining- um fæðunnar úr fitu. ATKINS OC ÁSMUNDUR Það hefúr alllengi verið bjargföst trú Ásmundur Stefánsson Guðmundur Björnsson ÞÚ GETUR Hagnýt hagfrœði? flestra næringarfræðinga að mönnum sé hollast að neyta matar með miklu af mjölmeti og litlu af fitu. Þannig mataræði á að minnka líkur á hjarta- sjúkdómum og krabbameini, og stuðla auk þess að megrun. Þess vegna eru stórmarkaðir fullir af „heilsufæði“ eins og undanrennu og léttmjólk, mögrum osti og jógúrt, fituskertu smjörlíki og ýmsum til- búnum, fitusnauðum réttum. Pasta og brauð er hollara en kjöt, og ef kjöt er á matseðli þarf að „snyrta“ af því fituna. Fyrir nokkrum áratugum kynnti bandarískur læknir, Robert C. Atkins, matseðil sem við hann er kenndur og gengur út frá sáralitlu af kolvetnum en þeim mun meira af prótínum og sér í lagi fítu. Nú skyldu kornflögur og cheerios þoka fyrir eggjum og beikon á morgunverðarborðinu og uppistaða fæðunnar vera kjöt, fiskur og grænmeti en sem minnst af kartöflum, brauði og pastaréttum. Bækur dr. Atkins, kennd- ar við byltingu í mataræði (Dr. Atkins' Diet Revolution og Dr. Atkins' New Diet Revolution), hafa náð mikilli út- breiðslu. Fleiri höfundar hafa mælt með svipuðum aðferðum, þótt nokkur áherslumunur sé á þeim: Þeir virðast sammála um að fita dragi i'tr lyst og geti verið líkaman- um gagnleg, þótt þeir geri í mismun- andi mœli greinarmun á ólíkum gerðum fitu. Eggjahvítuefnin fá já- kvæða umfjöllun hjá þeim öllum, en þeir virðast í stuttu máli telja kol- vetni óþörf sem sjálfstæð næringar- Heimaerbezt 259

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.