Heima er bezt - 01.06.2004, Blaðsíða 5
Birgitta H.
Halldórsdóttir:
^ætt við Magnús Óskarsson kennara
og bónda í Sölvanesi í Skaaafirði_______
i
/ Sölvanesi í Skagafirði búa hjónin Magn-
ús Oskarsson og Elín Sigurðardóttir. Þau
eru bœði kennarar og starfa við Varma-
hlíðarskóla, auk þess sem þau eru bœndur
í Sölvanesi með dálítið af fé og hrossum.
Þau eru mikið athafnafólk og reka ferða-
þjónustu á jörð sinni, aukþess sem Elín
var oddviti í Lýtingsstaðahreppi í ellefu ár,
áður en hreppurinn sameinaðist inn í hið
stóra sveitarfélag í Skagafirði.
Hjónin í Sölvanesi eru einstaklega hlýjar
og góðar manneskjur, sem hugsa vel um
sitt. Eg hef þekkt þau um hríð og því
hlakka ég til að heimsœkja þau og fá að
hlusta á Magnús, sem samþykkti að upp-
lýsa mig um lífsitt og áhugamál.
EUppruni og æska
g er fæddur í Danmörku 16. ágúst 1947 í litlum
bæ á Sjálandi, sem heitir Lillcrad. Móðir mín
var þar í vist. Hún var áður einstæð móðir með
eitt barn og síðan átti hún mig. Það var erfitt að
vera einstæð móðir á þessum tíma og því var ég ættleidd-
ur, en blóðmóðir mín heitir Dagbjört Sigurðardóttir og
býr nú í Noregi hjá systur minni, Völu og hennar fjöl-
skyldu. Henni kynntist ég mjög vel er ég var um þrítugt
og við höfum haft gott samband síðan. Ég held að það
hafi verið okkur báðum til góðs.
Það má segja að örlagavaldurinn í lífi minu hafi verið
frænka mín, Sigríður Kjaransdóttir. Hún þekkti bæði
blóðmóður mína og kjörmóður og kom því í kring að ég
var ættleiddur. Kjörforeldrar mínir voru Rigmor
Charlotte Koch Magnússon og Óskar Magnússon frá
Tungunesi, sem nú eru bæði látin. Síðan urðu þær vin-
konur, Dagbjört og Rigmor, og höfðu alltaf samband og
það gerði þetta allt auðveldara.
Þar sem kjörmóðir mín var dönsk, þá má segja að
heimili okkar hafi verið svona dansk/íslenskt. Það er dá-
lítið sérstakt að alast upp við þær aðstæður um leið og
maður á ljórar ættir. Það er ekki einungis blandað þjóð-
erni, heldur ættleiðingin líka, sem gerði lífið frábrugðið
því sem var hjá mörgum. Ég kynntist samt blóðfoður
mínum aldrei.
Kjörforeldrar mínir bjuggu í Danmörku á stríðsárunum