Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 6
Veðramótssystkinin. Aftari röð, talið frá vinstri: Þorbjörn, Stefán, Haraldur, Jón og Sigurður. Fremri röð: Heiðbjört,
Sigurlaug, Björn, faðir þeirra systkina, Guðmundur, Björg og Guðrún.
að eru mikil viðbrigði fyrir aldraðan mann að flytjast
úr rúmgóðri eigin íbúð, sem hann hefír átt heima í
um langa hríð, og setjast að á stofnun, í einu litlu
herbergi og mega þakka fyrir að geta verið þar einn en ekki
með öðrum óskyldum og ótengdum, eins og stundum ber
við. Mér fannst einhvem veginn að umskipti, hvað húsnæði
varðaði, væru viðræðumanni mínum ekki nógu geðfelld. En
vera má, að það lagist með tíð og tíma. Gefum viðmælanda
mínum orðið:
Ég heiti Ólafur Björn Guðmundsson, fæddur á Sauðárkróki
23. júní 1919, en ólst upp að nokkru í Tungu í Gönguskörðum.
Foreldrar mínir bjuggu þar, en þau voru Guðmundur Magnússon
Björnsson og Þórey Ólafsdóttir, sem var einbimi. Ég er
einn þriggja systkina. Auk mín eru það systurnar Sigurlaug
fóstra, sem oft var nefnd Lauga litla, til aðgreiningar frá
Sigurlaugu alnöfn sinni, sem var alin upp í Tungu, þar til
hún fór til foreldra sinna norður í Fljót. Hún var dóttir Lilju
Kristjánsdóttur og Guðmundar Þorleifssonar, er áður bjuggu
í Tungu. Hún var móðursystir þess, sem þetta ritar, yngst
þeirra.
Lauga var dugleg og velvirk.Henni mátti treysta til allra
verka.inni sem úti. Börnin þeirra Lilju og Guðmundar fóru
snemma að vinna, enda var þess full þörf, þar sem svo
marga þurfti að fæða.
Lauga var okkur til mikilla nytja. Þau ár sem hún bjó
hjá okkur í Tungu. Ég held.að hún hafí skoðað okkur sem
hálfgildings foreldra sína. Lauga (Sigurlag Guðmundsdóttir)
giftist manni frá Akureyri, Þorsteini Sigvaldasyni að nafni,
og áttu þau saman sex böm. Bjuggu þau í Þorlákshöfn lengi
og em þar grafin. Okkur þótti öllum vænt um Laugu.
Svo er Þorbjörg hin systir mín, Enn emm við öll á lífí.
Ættin
Ég er af hinni þekktu Veðramótsætt. Auk föður míns, sem
fyrr er getið, má nefna systkini hans, sem voru:
Haraldur leikari, Jón skólastjóri á Sauðárkróki, Sigurður á
Veðramóti, framfærslufulltrúi í Reykjavík, Stefán á Sjávarborg
(d. 1915) og Þorbjöm bóndi á Geitaskarði í Langadal.
Foreldrar þeirra vom Bjöm Jónsson, hreppstjóri á Veðramóti,
og Þorbjörg Stefánsdóttir.
Föðursystur mínar giftust, nema Sigurlaug. Heiðbjört átti
Arna Daníelsson á Sjávarborg, Björg Bjama Sigurðsson í
Vigur og Guðrún átti Sveinbjöm Jónsson, húsameistara, sem
kenndur var við Ofnasmiðjuna í Reykjavík. Hún var fyrsta
íslenska konan, sem lærði garðyrkju í Kaupmannahöfn.
Skólanám á heimslóðum
Þú segist hafa verið í farskóla í sveitinni. Manstu eftir því,
hvar kennt var og hverjir voru kennarar þínir?
294 Heima er bezt