Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Side 19

Heima er bezt - 01.08.2008, Side 19
Fýlar á bœlum undir gilbrún í Fljótshlíð. Flér virðast þrír fuglar liggja á en einn situr hjá. Ljósm.: B.M. Hversu margir voru fýlarnir 1980? Talning á fylnum var annmörkum háð því misvel sást í vörpin. Auðveldast var að telja þar sem hægt var að ganga upp með giljum og telja fuglana í hömrum sem á móti manni sneru handan gils. Við þær aðstæður sást yfírleitt vel til varpa og ættu talningar því að vera nokkuð áreiðanlegar. Erfiðara var um vik þar sem fuglar voru taldir í hamrabeltum með því að horfa upp í þau með öflugum kíki. Þar var útilokað að sjá inn á allar syllur og í hellisskúta þar sem fuglar gátu setið á bælum. Gömul vörp undir Austur-Eyjafjöllum voru einnig yfírleitt mjög vel gróin og mikil hvönn víða í þeim þar sem fuglar gátu dulist undir. Niðurstöður talninga við þær aðstæður eru áreiðanlega vanmat á raunverulegum tjölda. Það ber einnig að hafa í huga að talningamar fóru fram á tveggja mánaða tímabili þegar varpið var mislangt komið. Vanhöld hafa því haft áhrif. Til að reyna að leiðétta fyrir það voru sumarið 1981 talin tjögur vörp á um tveggja vikna fresti frá seinni hluta maí fram í ágúst. Þessi vörp vora öll undir Eyjafjöllum; við Hamragarða, í Lambafelli, í Skóganúpi og í Kvernugili. í ljós kom að fugli fækkaði jafnt og þétt í þeim öllum yfir talningartímabilið. Fækkun varpfugla í bælum nam um 1% á dag frá 20. maí en samkvæmt því var ungi einungis í fímmtungi bæla um miðjan ágúst. Þær tölur sem hér eru áætlaðar eru umreiknaðar út frá þessum niðurstöðum og miðaður við 20. maí. Samkvæmt þessum niðurstöðum áætlum við tylastofninn í Rangárvallasýslu hafi talið 38.500 varppör árið 1980. Af þeim voru 17.030 pör á austasta hluta svæðisins frá sýslumörkum við Sólheimajökul að Lambafelli undir Austur-Eyjafjöllum. Frá Lambafelli og vestur að Hamragörðum undir Vestur- Eyjafjöllum, var tjöldinn svipaður eða 16.350 pör. Frá Stóra- Dímon og inn á Þórsmerkursvæðið áætlum við að fjöldinn hafi verið 3.680 pör. Frá Markarfljótsgljúfri og vestur um Fljótshlíð og Hvolhrepp var ljöldinn 1450 pör. Hér að neðan er gerð nánari grein fyrir vörpum innan þessara svæða. I Drangshlíðartjalli og Kaldaklifsgili eru elstu og stærstu vörpin í sýslunni. í öllu Drangshlíðarfjalli, frá Drangshlíðardal, út með Skóganúpi, vestur um Drangshlíð og Skarðshlíð til Hrútafells og þaðan inn undir Kaldaklifsgil að vestan, var áætlað að væru 5.325 pör. í Kaldaklifsgili, þar sem varpið var komið allt inn undir jökul í Hólatungum, voru pörin Heima er bezt 307

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.