Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 20
hins vegar 8.070 og reyndist það
vera langstærsta varpið. Austan
Drangshlíðartj al ls voru vörp minni
og dreifðari. Við Skógafoss voru
144 pör, í Kvemugili austan Skóga
766 pör, í Dalárgili 145, Hofsárgili
218, Þurragili, Fjallgili 541 og í
Jökulsárgili voru pörin 186. Vestan
Kaldaklifsgils var áætlað að 435
pör væru í dreifðum vörpum í
öllu Raufarfelli, austan frá
Rauðafellsheiði og suður og vestur
um fellið inn í Raufarfellsheiði
á móts við Seljavallalaug. Inn
af Seljavöllum voru 846 pör í
fjórum vörpum og var það stærsta
í Laugarárgili þar sem pörin voru
727.1 Lambafelli sem stendur stakt
framan í dalnum á milli Raufarfells
og Steinaíjalls, var lítið varp með
130 pörum.
Næsta varp vestan Lambafells
árið 1980 var í giljum með
Svaðbælisá og hamri þar framan
við að austan. Þar vom alls 1031
varppör og var meirihluti þeirra í
suðurgilinu eða 662. í Steinafjalli
var mikið varp, frá Núpakotsdal suður um Núpinn, vestur
með Steinum og Varmahlíð, út í Holtsnúp og vestur með
honum inn til Holtsheiðar inn undir Holtsgil. Á þessu svæði
var áætlað að varppör væru alls 4990. Inni í Holtsgili, sem
greinist í Þrengsli, Tungugil eystra og Tungugil vestra, var
einnig mikið varp og var áætlað að þar væru alls 3122 pör. I
Brattaskjóli við Moldnúp var lítið varp með 34 pörum. Við
Ásólfsskála voru vörp í Miðskálagili þar sem voru 624 pör
og Miðskálaegg með 292 pör. Þar vestur af var síðan samfellt
varp frá írá ofan Ystaskála vestur um Hvammsnúp og út
hamrabeltið ofan Sauðhúsvallar og Fitja, allt til Seljalands
þar sem því sleppir ofan Seljalandsskóla. Þar reiknaðist
okkur til að væru alls 5805 pör, en af þeim voru 459 við
írá, 1995 ofan við Núp aö nefi Hvammsnúps og 3351 pör
þaðan og vestur að hamraenda í landi Seljalands. I klettum
við Seljalandsfoss og Hamragarða að Kattarnefi voru síðan
453 pör.
Næsta varp norðan Kattamefs var í Stóra-Dímon og var þar
lítið varp með 82 pörum. Inn með Markarfljóti voru misstór,
stök vörp inn til Þórsmerkur. Á svæðinu frá Sauðhömrum
utan við Merkurker og inn að Smjörgili inn undir Gígjökli
var áætlað að væru alls 2350 pör en af þeim voru 1048 inni
í Merkurkeri. í hausunum á milli Steinsholts milli Gígjökuls
og Steinsholtsjökuls voru 76 pör. Þar fyrir innan var 351 par
í Stakkholtsgjá, 690 pör í Hvannárgili, 68 pör í Réttarfelli
og Hatti. Norðan Krossár í hinni eiginlegu Þórsmörk voru
lítil vörp í Valahnúk þar sem voru 37 pör og í Búðarhamri
liðlega 5 km innar en þar voru 25 pör.
Norðan Þórsmerkur var stjált varp í Markarfljótsgljúfri
Ljósm.: B.M.
frá Bjórgili á Almenningum, inn íyrir Syðri-Emstruá að
Svartakróki á Emstrum. Áætlaður fjöldi varppara var 128 en
af þeim voru 57 við Bjórgil og 47 við Fremri-Emstruá. Með
Gilsá vestan Markarfljóts voru 150 pör og voru flest þeirra
eða 131 neðan Hestagils, 18 pör voru ofar við ármót Vestri-
og Eystri Botnár og 1 par var uppi í Hitagilsbrún sem er þar
upp af. I Þórólfsárgili þar sem elsta og stærsta varpið var í
Fljótshlíð var áætlað að varppör væru 653.1 Maróará voru
pörin 107 og 40 í Bleiksárgljúfri og nágrenni þess. I litlu varpi
við Árkvörn voru 8 pör, 20 við Eyvindarmúla og 53 pör í
tveimur litlum vörpum ofan við bæina í Múlakoti. Við Merkjá
var nokkru stærra varp með 101 pari og í Hlíðarendakoti
voru 152 pör í varpi ofan við Þorsteinslund og 3 pör vestan
bæjarins. Er þá komið að vestustu vörpunum sem könnuð
voru en bæði voru þau lítil. í Flókastaðagili voru 14 pörog
19 í Skútugili í Vatnsdalsljalli.
Nytjar af fýlnum
Fyrrum nýttu menn fýlinn eins og flesta aðra sjófugla sem
verpa í þéttum byggðum. Það var unginn, fýlungur, sem
var gripinn á bælinu, áður en hann flaug í lok ágúst. Egg
fýlsins voru lítið tekin, enda verpir fuglinn aðeins einu eggi
og yfirleitt ekki öðru ef hann er rændur. Eitthvað var um
að fullorðinn fýll væri háfaður að vetrarlagi en sú tekja
var lítil í samanburði við fýlungatekjuna. í bók James
Fisher frá 1952 um fýlinn, er m.a. að finna upplýsingar úr
hagskýrslum um fýlatekju á íslandi frá 1899 til ársins 1939
er hún lagðist af aö mestu af vegna fýlaveikinnar sem kom
upp í Vestmannaeyjum. Veiktist fólk sem hafði verið að
Selvaðsfoss inn af Kvernu við Skóga. Fýll var talinn með Kverná 1980 og aftur var
farið með gilinu 2008 en þá reyndist varp vera í svipuðu horfi og áður. Hundurinn
Pjakkur var húsbónda sínum til fylgdar í seinni ferðinni og sýndi fýlnum mikinn
áhuga.
308 Heima er bezt