Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 28
höfðinginn Georgios Papadopoulos og
komið var á herstjóm. Hún varð kunn
sem herforingjastjómin og kúgaði
hún Konstantín II. konung til þess að
viðurkenna hana.
13. desember 1967, hrinti konungurinn
af stað gagnbyltingu en hún mistókst og
flúði hann í kjölfarið, ásamt ijölskyldu
sinni til Rómar í útlegð.
Þegar svo herforingjastjórnin leið
undir lok var konungsveldi ekki
endurreist. Lýðræðisstjómin sem tók
við hélt áfram hinu ólöglega lýðræði
sem herforingjastjómin hafði komið á
og stofnaði til þjóðaratkvæðagreiðslu
árið 1974, þar sem samþykkt var með
70% atkvæða gegn 30, að afinema
konungsveldið.
Staðan núna
Allir meðlimir konungsijölskyldunnar
búa erlendis í dag; Konstantín II og kona
hans Anna-María drottning og ógift böm
þeirra búa núna í London. Fjölskyldan
heldur enn titlum sínum en eru ekki
fulltrúar Grikklands á nokkum hátt,
nema sem einstaklingar. Þau em engu
að síður oft ávörpuð með konunglegum
titlum sínum og boðið í athafnir annarra
ríkjandi konungsljölskyldna. Þau geta,
með samþykki dönsku ríkisstjómarinnar
og krúnunnar komið fram sem full-
trúar Danska konungsríkisins. Sem
afkomendur í karllegg Kristjáns 9.,
Danakonungs, eru meðlimir fyrrum
grísku konungsijölskyldunnar, prinsar og
prinsessur Danmerkur. Þess vegna eru þau
iðulega kynnt sem prinsar eða prinsessur
Grikklands og Danmerkur.
Anna-María
Anna-María erprinsessa af Danmörku, fædd
í Amalienborgarhöll í Kaupmannahöftl, 30.
ágúst árið 1946 og var þá skírð íullu nafni
Anna-María Dagmar Ingrid, prinsessa af
Danmörku. Hún er yngsta dóttir Friðriks
9. Danakonungs og konu hans Ingiríðar.
Guðforeldrar hennar vom afar hennar,
Kristján 9. konungur Danmerkur og Gústaf
6. konungur Svíþjóðar, Bertil prins af
Svíþjóð, Hákon 7. Noregskonungur, amma
hennar Alexandrine Danmerkurdrottning,
Marta krónprinsessa Noregs, Mary
Bretlandsdrottning, Júlíana Hollands-
drottning og Dagmar Danmerkurprin-
sessa.
l.febrúar 1963. Konstantín 2.,
konungur Hellena (sem Konstantín
prins) og heitkona hans, Anna-María
drottning Hellena (sem Anna-María
prinsessa) á Akrópólis-hæð í Aþenu.
Anna-María er yngri systir núverandi
drottningar Danmerkur, Margrétar 2.
Trúlofun og gifting
Þegar Anna-María var 13 ára gömul
árið 1959, hitti hún fyrst þann mann
sem síðar átti eftir að verða eiginmaður
hennar, frænda sinn í þriðja ættlegg,
Konstantín krónprins af Grikklandi,
prins af Danmörku, sem kom í opinbera
heimsókn til Danmerkur ásamt foreldrum
sínum Paul Grikklandskonungi og
Fredriku drottningu. Þau hittust svo
í annað sinn í Danmörku árið 1961,
þegar þegar Konstantín lýsti því ýfir
við foreldra sína að hann ætlaði að
giftast Önnu-Maríu. Þau hittust aftur
í Aþenu í maí 1962, við giftingu systur
Konstantíns, Sophiu, sem var að giftast
Juan Carlos Spánarprinsi og árið 1963, á
aldarafmæli gríska konungdæmisins.
A 50 ára afmœli Önnu-Maríu
Grikklandsdrottningar, árið 1996.
María Olympia Grikklandsprinsessa
var kynnt fyrir blaðamönnum í fyrsta
sinn við það tœkifæri. Hún er fyrsta
barn krónprins Pavlos (f. 1967) og
konu hans Marie-Chantal (f. 1968).
Anna-María og Konstantín giftu sig 18.
september árið 1964 (tveim vikum eftir
18. ára afmæli Önnu-Maríu) í Mitopolis,
grísku rétttrúnaðarkirkjunni í Aþenu.
Sem drottning Grikklands eyddi Anna-
María miklu af tíma sínum í að vinna að
góðgerðarmálum hjá góðgerðarstofhun
sem hét „Sjóður hennar hátignar“ og vann
aðallega að aðstoð við fólk í afskekktum
héruðum Grikklands.
í desemberárið 1967 reyndi eiginmaður
Önnu-Maríu, Konstantín konungur
gagnbyltingu, eins og áður greinir, gegn
herforingjastjóminni, sem hann hafði
verið neyddur til að viðurkenna nokkm
áður. Gagnbyltingin mistókst og Anna-
María og fjölskylda hennar urðu að flýja
til Ítalíu.
I kjölfarið á þessu missti Anna-María
fóstur. Fjölskyldan bjó í 2 mánuði í gríska
sendiráðinu og síðan næstu fimm árin í
húsi í úthverfi Rómar.
Árið 1973 lluttu þau til Englands. Þar
bjuggu þau fyrst í Chobham í Surrey en
fluttu seinna til úthverfisins Hamstead
í London, þar sem þau bjuggu allt þar
til gríska stjómin samþykkti að skila
ijöldkyldunni, fyrmrn sumardvalarstað
316 Heima er bezt