Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Page 39

Heima er bezt - 01.08.2008, Page 39
Anœgður með veiðina. stórum laxi og tóku þeir hressilega til matar síns með miklum tilburðum og hamagangi. Þessi skammtur var nægjanlegur dagskammtur fyrir hundana þegar þeir voru ekki notaðir til dráttar. Mér var tjáð að þeir væru yfirleitt ekki í húsi yfír veturinn, þeir vildu frekar vera úti þó kuldinn væri mikill. Mér þótti furðulegt að ala hundana á þessum ágætis laxi, sem hefði kostað mikla peninga heima á Islandi en ástæðan var hinar miklu laxagöngur í fljótinu vor og haust en þá eru torfumar svo þykkar að laxinn er veiddur í svokölluð veiðihjól, sem gátu verið mjög afkastamikil. Mikið er af fiski í sjó og vötnum Alaska og er niðursoðinn lax fluttur úr landi í miklu magni. Astæða þessa hundahalds var hundasleðaakstur sem er allmikið stundaður sem frístundagaman og árlega haldin keppni í hundasleðaakstri, sem þótti mjög tilkomumikil og mikil spennaum hver ynni keppnina. Um kvöldið var okkur boðið í kvöldverð hjá vinafólki þeirra og þótti mér afar fróðlegt að kynnast ýmsum siðum sem þarna tíðkast. Margir íbúar þorpsins störfuðu að verkefnum varðandi flugvöllinn en einnig voru þama einstaklingar sem unnu við gullgröft í nálægum fjöllum. Lítið flugfélag var staðsett í þorpinu sem sá um að Hjúga með þorpsbúa á milli þorpanna á þessu svæði. Reglur varðandi flugið eru fremur vægar og sennilega auðvelt að öðlast réttindi til að stjóma flugvél af þeirri stærð sem mest er notuð á þessu svæði. Ef flugstjóri forfallast tekur bara einhver nærstaddur, sem hefur réttindi, við stjóm og bjargar málum og þykir það ekki vera mikið tiltökumál. Þetta gæti verið svipað og þegar farið var á dansleiki í dreifbýlinu á Islandi forðum daga, að sá sem var næstur því að teljast ódrukkinn var látinn taka við stjóm á heimleiðinni, ef bílstjórinn hafði farið yfir strikið. A þessu svæði eru þessar litlu flugvélar notaðar eins og bifreiðar hér heima, enda takmörkuð not af bifreiðum þarna, því lítið er um akvegi milli þorpanna. Nokkrar indíána fjölskyIdur áttu heima í þorpinu. Eg kom inn á eitt heimili þeirra og þótti nokkuð ævintýralegt um að litast þar. Húsið var nokkurra fermetra skúrbygging og inni var eldað, borðað og sofið. Ibúamir virtust sáttir við að búa í þessum kofum. Þó svellalög væru upp á miðja veggi var góður hiti Ágúst Arason hvílir hundana í keppni árið 1974. af olíuofni sem hitaði nægilega vegna smæðar hússins. Ymsir siðir og venjur indíánanna vom nokkuð aðrir en okkur þætti við hæfi. Ef fréttist af afmæli eða jarðarför ættingja eða vina í öðmm þorpum, fékk litla flugfélagið atvinnu við að flytja þá hópum saman til að taka þátt í viðeigandi fagnaði. Var gjaman dvalið í vikutíma á veislustað og fæðan að mestu leyti í fljótandi formi. Nægjusemi og áhyggjuleysi er aðalsmerki þessa þjóðflokks. Daginn eftir komu fréttir frá sjúkrahúsinu um að sjúklingurinn væri orðinn nokkuð hressari og langaði til að fá konuna og bömin í heimsókn. Var því ákveðið að heimsækja hann næsta dag. Þó heilsa hans færi batnandi var samt mikil óvissa um vinnufæmi hans á næstu vikum og mánuðum og kom til umræðu að fjölskyldan færi heim til Islands meðan hann væri að ná fullri heilsu. En læknar hans töldu hann ekki vera færan í slíkt ferðalag næstu vikur og Heima er bezt 327

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.