Heima er bezt - 01.08.2008, Page 83
allt Rogaland. Geirmundur hafði þá ekki lengur að neinu að
hverfa í Noregi og neyddist til að ftnna sér aðra staðfestu.
Þeir bræður slitu þá félagsskap sínum og Hámundur fór
til Suðureyja og gekk þar í félagsskap með Helga magra,
en Geirmundur sigldi með félögum sínum til íslands og
hugðist nema þar land.
Þegar þangað kom var land víða albyggt, svo að Geirmundur
átti ekki margra kosta völ. En loks fann hann landspildu
milli Búðardalsár og Fábeinsár á Skarðsströnd og byggði
sér bæ undir Skarði og nefndi hann Geirmundarstaði. Hann
var vel stæður höfðingi og hafði frá byrjun rausnarbú. En
honum þótti landnám sitt of lítið á Skarðsströnd og of þröngt
um sig. Af þeim sökum fór hann norður á Strandir og nam
þar allt land frá Rytagnúp að vestan og norður til Homs og
síðan þaðan austur til Straumness sunnan Barðsvíkur eða
allt það land sem nú kallast Hornstrandir. Þarna stofnaði
hann síðan ijögur stórbú. Eitt þeirra var í Aðalvík og gætti
þess ármaður hans. Annað var í Kjaransvík og fyrir því
var Kjaran, þræll hans. Hið þriðja var á Almenningum
hinum vestari. Það varðveitti þrællinn Bjöm, sá er eftir
daga Geirmundar varð sekur um sauðaþjófnað og af sektarfé
hans varð landið almenningseign. Fjórða búið var í Barðsvík
á Austur-Ströndum og þess gætti þræll hans Atli og hafði
hann fjórtán þræla undir sér.
Atli þessi þótti ódæll og hamrammur, en hafði til að bera
mikla höfðingslund. Kom það berlega í ljós, þegar hann.
tók við tjölda illra staddra manna sem brotið höfðu skip
sitt undir hömmm miklum í illviðri norðarlega á Ströndum.
Hafði hann fólk þetta hjá sér vetrarlangt og bað það engu
launa vistina, því að eigi skorti Geirmund mat. En um
vorið kom Geirmundur í heimsókn og þegar hann frétti af
skipbrotsmönnunum spurði hann Atla hví hann hefði gerst
svo djarfúr að taka að sér allt þetta fólk og halda því uppi
langtímum saman á sinn kostnað. Atli svaraði þá:
„Því að það mun uppi meðan Island er byggt, hversu
mikils háttar sá maður mundi vera, að einn þræll þorði að
gera slíkt utan hans orlofs.“
Geirmundur sagði þá:
„Fyrir þetta tiltæki þitt skalt þú þiggja frelsi og bú þetta
er þú hefúr varðveitt.“
Gekk þetta eftir og var Atli talinn mikilmenni um sína
daga.
Það var venja Geirmundar þegar hann reið milli búa sinna
að hann hafði jafnan með sér flokk áttatíu manna og hafa
trúlega allir verið undir vopnum, enda var hann vellauðugur
af lausafé og átti ótölulegan fjölda kvikfjár. Sagt var að hann
hefði falið mikið fé í Andarkeldu undir Skarði.
Það sögðu vitrir menn á fyrri tíð að Geirmundur hefði
verið göfúgastur allra landnámsmanna á Islandi. Fremur
var hann friðsamur og kom lítt við deilur hér á landi.
Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Herríður Gautsdóttir
og Ýr hét dóttir þeirra. Seinni konan hét Þórkatla Ófeigsdóttir
og áttu þau dótturina Gerríði og soninn Öm.
Geirmundur heljarskinn varð gamall maður. Hann andaðist
heima á Geirmundarstöðum og var lagður í skip og síðan
jarðsettur í skóginum út frá bænum.
Lýkur þar með að segja frá þessum konungboma landnema
á Skarðsströnd.
Sneisafullt blað af talna- og
stafaþrautunum vinsælu
í því er að finna margvíslegar tegundir
af Sudoku-gátum, einnig Kakuro
samlagningargátur og ýmsar aðrar
sniðugar rökþrautir.
Skemmtilegar þrautir sem efla
kapp og snerpu hugans
Krossgátublaðið Frístund, sími 553-8200
Heimasíða: www.fristund.net • Netfang: fristund@fristund.net
Heima er bezt371