Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 88

Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 88
Það ríkti eins konar þögult vopnahlé milli hjónanna eftir þessa helgi. Úlli minntist ekki á fyrri atburði og var fáskiptinn og þögull eins og Andrea hefði gert eitthvað á hluta hans. Hún galt í sömu mynt. Þó kom að því að hann sagði henni að hann væri búinn að lofa Gústu risíbúðinni. „Án þess að spyrja mig?“ sagði Andrea. „Er ég ekki eigandi þessa húss og annars sem við lifum á hér?“ „Það er nú það minnsta sem hægt er að gera til að hjálpa Gústu með húsnæði. Vertu nú sanngjörn,“ sagði Úlli „Vogarðu þér að tala um sanngimi við mig. Þú lætur eins og kvenmaðurinn sé munaðarlaus og eina manneskjan á landinu sem eigi von á barni. Hvað með mig og okkar afkvæmi. Þú hugsar ekki svona stíft um okkur. Þvi ætti ég að láta Gústu í té allt til alls. Mér kemur þessi kvenmaður ekkert við, ekki þér heldur, hefði ég haldið. Þú ert kannski búinn að skenkja henni íbúðina með húsgögnunum mínum og öllu saman. Ég held þið séuð biluð, bæði tvö og það ekkert smávegis.“ „Það er naumast að þú hvessir klæmar.“ Úlli var sótsvartur af vonsku og æddi að útidymnum. „Reyndu bara ekki að snúa hlutunum við Úlfljótur Hermannsson,“ kallaði Andrea á eftir honum. „Þú hefur aldrei verið sannleikskær. Þú ert veiklundaður, drykkfelldur og bara algjör vesalingur og þið Gústa eruð því alveg samvalin, en_þið verðið ekki hér til heimilis saman.“ Ognandi sneri Úlli sér við, tók um axlir Andreu, hristi hana, sló hana utan undir og hrinti henni svo aftur á bak svo hún fékk hurðarhúninn beint í hrygginn. Hún hljóðaði upp yfír sig af sársauka, en Úlli hentist út og skellti á eftir sér svo allt lék á reiðiskjálfi. Andrea hné grátandi niður á gólfíð. Aldrei gæti hún komið nálægt manni sínum eftir þetta. 12. kafli Á heimili Gabríels og Mörtu ríkti algjör ringulreið. Gústa grenjaði af vonsku. Marta stóð ráðþrota og neri hendumar inn í svuntunni sinni en Gabríel reifst og skammaðist. Tilefnið var það að Gústa sagðist vera að flytja heim til Úlla. Andreu minntist hún ekki á. í augum þeirra sómakæru hjóna, var ólán dóttur þeirra meira en þau með góðu móti gátu borið. Gabríel sagði í gremju sinni að þetta framferði væri úr Mörtu ætt. Það hafði víst ekki verið allt í sómanum á þeim bænum. Ekki væri svona lífsmáta til að dreifa hjá hans fólki. Þó leitað væri með logandi ljósi, fyndist þar hvorki blettur né hrukka og hana nú. Og nú ætlaði Gústa að bæta gráu ofan á svart með því að flytja heim til Úlfljóts Hermannssonar og setjast að í íbúð konu hans, sem væri, eftir því sem Gústa segði, systir bamungans sem hún bæri undir belti. „Hálfsystir,“ snökti Gústa og lá við að hún væri farin að trúa því sjálf. „Við eigum okkur ekki uppreisnar von hér eftir. Ég, meðhjálparinn, að þurfa að upplifa annað eins á gamals aldri,“ þusaði Gabríel. „Hvað skyldi hann séra Gunnólfur segja,“ stundi Marta, „ætli hann vísi okkur bara ekki úr söfnuðinum. Þvílíkt og annað eins.“ „Séra Gunnólfur,“ sagði Gústa fyrirlitlega. „Honum ferst nú. Káfandi á lærunum á manni í hvert sinn og hann kemst í færi.“ „Guð fyrirgefí þér, að tala svona um hann séra Gunnólf,“ sagði Marta, yfirkomin af heilagri vandlætingu. „Ég er farin að pakka niður,“ sagði Gústa ákveðin og stóð upp. „Ekki færðu hjálp írá mér,“ sagði faðir hennar vonskulega. „Við skulum fá okkur kaffí og hressa okkur. Þetta lagast kannski allt þegar bamið er fætt. Það er nú oft þannig,“ sagði Marta vongóð. „Góða mamma, er ekki allt í himnalagi?" sagði Gústa kuldalega og fór niður. Það ætlaði allt að ganga samkvæmt áætlun hjá henni. Henni hafði þó brugðið illilega þegar hún komst að því að Keli á Kríunni hafði gert hana ólétta. En þá eygði hún nýja og óvænta leið út úr ógöngunum. Gústa hló með sjálfri sér. Angakarlinn hann Bjöm hefði ekki getað hrokkið upp af á heppilegri tíma. Engan myndi gruna Kela, þó krakkinn yrði eldrauðhærður, svo var hári hennar sjálfrar fyrir að þakka. Vonandi líktist hann ekki föðumum að öðm leyti. Andreu fannst hún ekki vera með sjálfri sér og allt sem í kring um hana var væri óraunverulegt. Hún var farin að fá hræðsluköst upp úr þurru og það var ekki bara Úlli sem hún óttaðist. Hún var hrædd við svo margt í framtíðinni. í spegli hafði hún séð stóra marblettinn á bakinu á sér og hún skammaðist sín þegar hún fór í skoðun á heilsugæsluna og læknirinn hafði spurt hana hvað hefði gerst. „Ég rak mig á,“ sagði Andrea bara og læknirinn hafði litið rannsakandi á hana og sagt: „Þú verður að fara varlega vinan og segja mér ef eitthvað amar að hjá þér.“ Þá vissi hún að hann grunaði eitthvað. Hún hafði tekið stóra ákvörðun og vonaði að hún yrði nógu sterk til að framfylgja henni. Hún ætlaði sjálf að flytja upp í risið, „svítuna hennar Andreu“ og þegar Gústa birtist yrði að ráðast hvað gerðist. Hún var ákveðin í að búa ekki framar með Úlla að öllu óbreyttu og Gústa skildi aldrei fá yfírráð yfír risíbúðinni. Allt í einu sá hún skoplega hlið á hugsunum sínum og hún lét eftir sér að hlægja hjartanlega, það hafði hún ekki getað lengi. Hugsa sér ef Gústa flytti inn til Úlla niðri, þá kæmist hann að því hvað hún væri ákjósanleg í sambúð og hvað myndi hann vilja teygja sig langt til að þóknast henni? Þetta gæti verið það allra besta, að lofa honum að annast um Gústu í óléttustandinu. Sanni vinurinn, Úlfljótur Hermannsson. En uppi í sinni „svítu“ skyldi hún sjálf vera, hvernig sem allt veltist. Hún flýtti sér sem mest að taka allt af sínum persónulegu munum, fötin sín, rúmfatnað og eldhúsáhöld, meira að segja rogaðist hún með sjónvarpið og myndbandstækið upp, tröppu af tröppu og var þá að niðurlotum komin. Hún fann til öryggis þarna undir súðinni og fannst allt fagna sér og bjóða 376 Heima er bezt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.