Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 44

Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 44
a) AS gera mögulegt að sinna óskum og þörfum hvers einstaks nemanda með tilliti til námshraða, vals á námsgrein- um o. fl. Aukning á valfrelsi í bekkja- kerfinu var að sigla í strand vegna stundatöfluerfiðleika. b) Að þroska nemendur í sjálfstæði og ábyrgð. c) Að gera skólann að vinnustað. d) Að gefa svigrúm fyrir nýja kennslu- hætti. e) Að gefa skólanum svigrúm til að laga sig jafnóðum að breytilegum aðstæðum og viðhorfum í þjóðfélaginu. Áfanganefnd telur liði a og b hafa gefið góða raun. Ef til vill er þó þáttur valfrjálsra greina (vals) of lítill í beildarnámi hvers nemanda. Liðir c og d virðast ekki hafa borið skjótan árangur, en það stendur vænt- anlega til bóta með auknum tengslum, sbr. tillögur hér á eftir. Um lið e er það að segja, að skólinn hefur þegar hafið kennslu í allmörgum nýjum greinum, og að öðru leyti er Ijóst af uppbyggingu áfangakerfis- ins, að það hentar þessu markmiði vel. Vonir stóðu til, að afköst yrðu meiri í áfangakerfinu en í bekkjakerfi án tilsvar- andi aukningar á reksturskostnaði. Hvern- ig til hefur tekist í þessu efni, þyrfti að kanna með fræðilegum hætti. Af atriðum, sem þar koma til álita, má nefna meðalein- ingafjölda sem nemandi lýkur á önn, kunn- áttu nemenda og þroska, fjölda nemenda sem hverfa frá námi óloknu. Lausleg athug- un bendir til þess, að meðaleiningafjöldi á önn sé nokkru hærri en var í bekkjakerfi. TENGSL 1) Tengsl skólastjórnar og kennara við nemendur. í áfangakerfi reynir meira á sjálfstæði nemenda en í bekkjakerfi. Hver nemandi verður að skipuleggja nám sitt í skólanum, ákveða svið og valgreinar, í hvaða röð hann nemur áfanga og með hvaða hraða hann stundar námið. Nemendur eru mjög mis- jafnlega undir þetta búnir, þegar þeir hefja nám í skólanum. Því er mikilvægt, að skól- inn (m. a. umsjónarkennarar) leiðbeini nemendum í þessum efnum, einkum fyrstu annirnar, bæði hverjum fyrir sig og í hóp- um. Á fyrstu önninni, sem áfangakerfið starfaði, var 5. stund á miðvikudögum m. a. ætluð til að sinna þessu verkefni að ein- hverju leyti, en þá fór engin kennsla fram. Þessi tími var þó ekki nýttur, og féll þetta nýmæli því niður eftir fyrstu önnina. — Áfanganefnd telur miður, að svo skyldi fara. Upplýsingastarfsemi um svið og valfrjáls- ar námsgreinar hefur verið í algjöru lág- marki. Áfanganefnd leggur til, að úr þessu verði bætt, og bendir sérstaklega á nauðsyn þess að kynna nýnemum á áhrifaríkan hátt möguleika þeirra á að velja rússnesku eða spænsku sem 3. mál, en ekki aðeins frönsku eða þýsku, og það notagildi, sem kunnátta í þessum tungumálum hefur. Áfanganefnd leggur til, að verksvið um- sjónarkennara í áfangakerfi verði aukið verulega frá því, sem verið hefur, en það hefur takmarkast mjög við leiðbeiningar á valdegi. Umsjónarkennarar ættu að fylgj- ast með, hvernig nemendum vegnar og leiðbeina þeim um námið bæði með föst- um einkaviðtölum við hvern nemanda, t. d. tvisvar á önn, og með umsjónartímum eftir 38 - HEIMILI OG SKÖLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.