Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 62
NÝR SKYGGIMUFLOKKUR:
VESTIJR SKAFTAFELLSSVSLA
Fræðslumyndasafnið hefur nú gefið út nýjan flokk af litskyggn-
um um sýslur landsins. Fjallar hann um Vestur-Skaftafellssýslu,
32 myndir með skýringum.
Ritstjóri er Stefán Júlíusson bókafulltrúi.
Með þessum flokki er farið inn á nýjar brautir í umbúðum og
frágangi, sem eiga að gera skyggnurnar handhægari og þægi-
legri í notkun. í stað kassa eru myndirnar nú í plastsíðum og
lausblaðabók, og textinn felldur inn í bókina á sama hátt. —
Þessar myndir þurfa allir skólar að eignast.
Flokkur um Dalasýslu kemur út síðar á árinu.
Fræðslumyndasafn ríkisins
Borgartúni 7, Reykjavík.
FRÁ RÍKISIJTGÁFL IMÁIVISBÓKA
ALDAHVÖRF, eftir Þórleif Bjarnason.
Bókin fjallar um elleftu öldina í sögu íslendinga og veitir mik-
inn fróðleik og gott yfirlit um þá gjörbyltingu sem átt hefur sér
stað á flestum sviðum þjóðlífsins þessa síðustu öld þjóðarsög-
unnar.
Aldahvörf er 228 bls. að stærð með um 250 myndum og 25
töflum er sýna þróun hinna ýmsu þátta þjóðlífsins.
Verð kr. 1224 heft, kr. 1674 innb.
HIN FORNU TÚN, eftir Pál Líndal.
Þessi bók gefur alhliða mynd af höfuðborginni að fornu og nýju.
Rakin er saga borgarinnar frá upphafi og sagt frá íbúum hennar.
Hin fornu tún er 251 bls. með um 160 myndum frá gömlum og
nýjum tíma, m. a. 8 litprentaðar síður.
Verð kr. 1488 heft, kr. 1938 innb.