Læknaneminn


Læknaneminn - 01.08.1968, Blaðsíða 65

Læknaneminn - 01.08.1968, Blaðsíða 65
LÆKNANEMINN 57 sé hjá sumum tengt ríkjandi auto- somal geni, en hjá öðrum ríkjandi kyntengdu geni, og hjá enn öðrum erfist sjúkdómurinn eftir báðum leiðum. Orsakir. Orsök hækkaðrar serum þvag- sýru við primera arthritis urica er tvíþætt, þ. e. aukin myndun og minnkaður útskilnaður. Hvað veldur hinni auknu myndun, er ekki sannað. Helzt hallast menn að galla á aminosýruefnaskiptum vegna skorts eða starfsgalla glut- aminasa I, sem gerir það að verk- um, að glútamín brotnar ekki nið- ur eftir venjulegum leiðum að öllu leyti, og væri því beint inn á púrín efnaskiptin í auknum mæli. Orsök hins minnkaða þvagsýru- útskilnaðar er heldur ekki ljós. Það virðist helzt var um galla á tubularexcretion að ræða. Enda þótt nýrun svari hækkuðu þvag- sýrutilstreymi með auknum út- skilnaði á sama hátt og eðlileg nýru, þurfa þau alltaf hærra ser- ummagn en eðlileg nýru til þess að útskilja sama þvagsýrumagn. Við sumar tegundir arthritis urica secundaria, þar sem ör um- setning er á nucleinsýrum og lækk- un á ribonucleoidum, orsakast auk- in þvagsýrumyndun af aukinni myndun guanylsýru og adenylsýru fyrir áhrif amilotransferase, sem stjórnað er af ribonucleotidmagni því, sem fyrir hendi er. Þetta er talið orsaka hyperuricemi við leu- kemi, polycytemi og psoriasis. Við sult stafar þvagsýruhækkunin að nokkru frá auknu vefjaniður- broti og að nokkru frá myndun (j-hydroxysmjörsýru, sem dregur úr þvagsýruexcretion í tubuli. Mjólkursýra hefur sömu áhrif og veldur því þvagsýruhækkun við Van Gierkes sjúkdóm, stundum við preecclampsiu og eftir fylleríis- túra. Þvagsýruhækkunin við hina ýmsu nýrnasjúkdóma skýrir sig sjálf. Þar er ýmist um minnkaða glomularfilteration, minnkaða ex- cretion eða hvort tveggja að ræða. Einkenni. Allt að 6,4 mg% þvagsýru geta haldizt uppleyst í líkamsvökva við venjulegt sýrustig. Aukist magnið fram yfir þetta, fer þvag- sýran að falla út sem natríumurat, því fyrr sem pH er lægra. Öll ein- kenni arhtritis urica skýrast út frá útfellingum í hin ýmsu líffæri, og get ég þar farið fljótt yfir sögu, því þau eru flestum kunn. Sjúkl- ingurinn er oftast karlmaður á fimmtugsaldri, sem vaknar snemma morguns með verk í grunnlið stóru táar, fæti eða hné. Oft verður hann þó einskis var, fyrr en hann stígur í fótinn, sem er helaumur. Viðkomandi liður er eldrauður, heitur og bólginn. Þessi einkenni geta síðan aukizt á næsta sólarhring og haldast í 3—4 daga, en fara þá að réna. Þau geta þó staðið í 11 daga eða lengur. Þau hverfa svo af sjálfu sér, og sjúkl- ingurinn gleymir þessu gjarnan, þar til næsta kast kemur mörgum mánuðum eða allt að 2 árum seinna. Þá endurtekur sagan sig. Oft er þetta sami liðurinn, sem verður fyrir barðinu, eða annar liður á ganglimum. Hiti er oftast enginn í fyrst köstunum, en sést oftar við seinni köst. Liðaeinkenn- in halda svo áfram að koma með aukinni tíðni, og í helming tilfella koma kroniskar liðabreytingar í marga liði, liðpokar þykkna, lið- irnir aflagast og stirðna. Ekki haga fyrstu einkennin sér þó alltaf þannig. I u.þ.b. 5% sjúklinga, helzt hjá ungu fólki og börnum, líkjast byrjunareinkennin mest
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.