Læknaneminn - 01.08.1968, Síða 78
70
LÆKNANEMINN
túr
'3
eöldmöDD^
Fundur í F. L. 28. nóv. 1968.
Fundarefni: Symposium um gulu.
Formaður, Magnús Jóhannsson bauð
velkominn revisor kvöldsins, Jón Þor-
steinsson, lækni. Því næst kom forrétt-
ur fundarins, er Atli Magnússon úr I. hl.
las tvö kvæði.
Þá var kynntur fyrsti ræðumaður,
Högni Óskarsson, I. hl., sem gerði skil
lífefnafræðilegum þáttum gulu í stórum
dráttum. Næst lýsti Jóhann Heiðar
Jóhannsson, II. hl., hinni meinafræðilegu
hlið efnisins og sýndi myndir máli sínu
til glöggvunar. Þá kom Snorri Sveinn
Þorgeirsson og ræddi um einkenni og
greiningu, og síðastur ræðumanna var
Atli Dagbjartsson. Lýsti hann meðferð
og talaði um batahorfur gulusjúklinga.
Að framsöguræðum loknum sté revi-
sor í pontu. Hann þakkaði boðið, minnt-
ist fyrri heimsóknar á symposium hjá
F. L. og fór lofsamlegum orðum um er-
indi læknanemanna. Allmargar spurn-
ingar bárust revisor, sem hann svaraði
skilmerkilega, og urðu umræður fjörug-
ar, þangað til formaður sá þann kost
vænstan að slíta fundi undir miðnættið.
Fundur í F. L. 13. 2. 1968.
Fundarefni: Bruni.
Formaður félagsins, bauð velkominn
Ófeig Öfeigsson, lækni, er var gestur
fundarins. Erindi Ófeigs fjallaði um
bruna, það sem í fyrstu vakti áhuga
hans á þessu efni og síðan langan feril
í meðhöndlun og tilraunum á bruna,
sem alkunnur er orðinn. Að loknu er-
indi hans bárust nokkrar fyrirspurnir.
Því næst voru félagsmál tekin á dag-
skrá. Jóhann H. Jóhannsson sagði frá
starfsemi Stúdentaráðs og lánamálum
stúdenta. Einnig svaraði hann fyrir-
spurnum. Formaður ræddi um úthlutun
úr stúdentaskiptasjóði. Þótti honum
hlutur Læknadeildar hafa orðið rýr.
Jóhann H. Jóhannsson og Þórarinn
Sveinsson ræddu málið frá sjónarhóli
Stúdentaráðs.
Fundarmenn voru 40.
Fundur í F. L. 1. 3. 1968.
Fundarefni: Symposium um svæfing-
ar.
Formaður félagsins bauð velkominn
Valtý Bjarnason, dósent, sem var
revisor.
Fyrstur ræðumanna, Ólafur H. Odds-
son, I. hl., talaði um hjarta- og lungna-
eðlisfræði. Hann notaði máli sinu tii
skýringar skematiskar myndir, sem
hann hafði dregið upp. Næstur talaði
Jóhann Guðmundsson, II. hl., um svæf-
ingarlyf frá sögulegri og lyfjafræðilegri
hlið. Síðastur var Sigurður B. Þorsteins-
son og greindi frá hinu daglega striti
svæfingarlæknisins. Talaði hann greini-
lega af reynslu og kunnáttu.
Að lokum sté revisor i pontu og dáð-
ist að erindum læknanemanna, einkum
hinu fyrsta, sem honum þótti vísinda-
lega unnið. Auk þess ræddi hann um
kosti og galla hinna ýmsu svæfinga-
lyfja, sem notuð eru á sjúkrahúsum,
og taldi upp skemmdir, sem líkaminn
getur orðið fyrir af þeirra völdum.
Að loknu spjalli revisors var sýnd
kvikmynd um meðferð sjúkiinga eftir
skurðaðgerðir.
Loks þakkaði fundarstjóri revisor og
frummælendum. Um 50 manns sóttu
fundinn.
Fundur í F. L. 21. 3. 1968.
Fundarefni: kennslumál.
Fyrstur talaði Gunnar Þ. Jónsson,
form. kennslumálanefndar. Hann rakti