Læknaneminn - 01.04.1969, Page 24
LÆKNANEMINN
H
samkeppni, er áreiðanlega gild
sönnun þess, að með tilkomu ein-
okunaraðstöðu skapast slík við-
leitni eða áform“ (Hæstiréttur
Randaríkjanna). I Bandaríkjunum
er talin hætta á einokunaraðstöðu,
ef markaðshluti fyrirtækis fer
yfir 4%. Það væri mikil einfeldni
að vanmeta mátt dagblaða til
skoðanamyndunar og því einnig
samkeppni og árangur hennar og
mögulega einokunaraðstöðu. Er
hér samt heldur grunnt á þeirri
einfeldni, einsog umræður um
Keflavíkursjónvarp sýndu. Mbl.
ætti ekki uppá pallborðið hjá
bandarískum hæstarétti. í Eng-
landi þótti blaðaveldi Cecil Kings
orðið ískyggilega mikið, og var
því sett konungleg nefnd til að
kynna sér málið og standa vörð
um alvörulýðræði. Hún batt það
ströngum skilyrðum, ef sameina
ætti blöð, þar sem annað hefði
yfir (4 milljóna upplag (Mono-
polies and Mergers Act 1965).
Það myndi jafngilda 2000 eintök-
um hér. Enn varhugaverðara verð-
ur að teljast, þegar stjórnmála-
flokkur, þ. e. hagsmunafélag nokk-
urra stétta og aðila, hefur þessa
aðstöðu til skoðanamyndunar.
Samkvæmt eðli sínu og tilveru
kemst Mbl, ekki hjá því að vilja
frekar veita vissum skoðunum og
stjórnmálalegum trúaratriðum
brautargengi heldur en flytja
óbrenglaðar upplýsingar. „Auðvit-
að reynum við að birta góðar frétt-
ir. En fyrir kosningar viljum við
samt auðvitað, að fólk kjósi rétt-
an flokk“ (Matthías Jóhannesen
á fundi V. R., eftir minni). Mbl.
svipar mjög til Springerpressunn-
ar þýzku, nema hvað það er hlut-
fallslega enn voldugra og hand-
bendi virks stjórnmálaafls í þjóð-
félaginu, sem situr að völdunum.
,,Á öllum tímum hafa íhaldsöm
stjórnvöld leitazt við að halda
fólkinu heimsku" (Havemann).
Mbl. hefur um áraraðir mótað
stjórnmálaþekkingu og skoðan-
ir þorra Islendinga. Boðskapur
þess hefur verið einfaldur. Kalda-
stríðsdraugurinn gat við kommún-
istagrýlunni jóð; afleiðing þess
sifjaspells varð núverandi pólitísk
heimsmynd blaðsins. Flestar
stjórnmálafréttir eru með rit-
stjórnun keyrðar inní þá mynd.
Inntak hennar er í stuttu máli, að
vestrænar lýðræðisþjóðir séu boð-
berar frelsis, jafnræðis og mann-
legrar reisnar um gjörvallan heim
og færi honum þau hlunnindi í
kjölfari sínu. Er þar aldrei hik:
„Það er ósk og von hins lýðræðis-
sinnaða heims, að Bandaríkin verði
undir forustu nýrra ríkisstjórna
fær um að veita þá þýðingarmiklu
forustu, sem lífsnauðsynleg er í
baráttunni fyrir frelsi og mann-
réttindum í heiminum" (leiðari
7/11 1968). Allir, sem hafa eitt-
hvað útá þetta lögmál að setja,
eru kommúnistar, hvar sem er í
heiminum, eða nytsamir sakleys-
ingjar, ef um hreina fávita er að
ræða, einsog Bertrand Russel og
Sartre. Er barizt gegn þeim með
brandi hins byljandi orðs. Stund-
um er blaðið jafnvel kaþólskra en
páfinn einsog stundum í umræð-
um um Víetnam. Menn þurfa yfir-
leitt að lesa erlend blöð til þess að
frétta af ýmsum viðburðum í
heiminum, þótt öðrum sé því bet-
ur lýst í Mbl. Oft virðist samt
sem það álíti ekki lesendur sína
læsa á dönsku, ensku eða þýzku,
eða beini ekki máli sínu til slíks
fólks. „Kjarni þessa máls er auð-
vitað sá, að það var kommúnsta-
stjórnin í N.-Vietnam, sem
rauf Gefnarsamkomulagið frá
1954, og sendi her inn í Suð-
ur-Vietnam“ (leiðari 3. nóvember