Læknaneminn - 01.10.1987, Qupperneq 7
Tímabundin áföll vegna blóðþurrðar í heila
Sigurður Thorlacius læknir
Heilablóðfall eða heilaslag (apoplex-
ia cerebri) er ein algengasta orsök
dauða og langvarandi vanheilsu á
Vesturlöndum. Það getur stafað af
heilablæðingu (haemorrhagia cer-
ebri) eða drepi í heila (infarctus cer-
ebri). Orsök heiladreps er blóðþurrð
í heila (ischaemia cerebri). Tafla 1
sýnir helstu orsakir blóðþurrðar í
heila.1'3 Um getur verið að ræða fleiri
samverkandi þætti.
Afleiðingar blóðþurrðar í heila
ráðast að verulegu leyti af ástandi
æðakerfis heilans almennt (svo sem
útbreiðslu æðaskemmda, hversu
opnar hliðargreinar skaddaðra æða
eru og virkni sjálftemprunar blóð-
flæðisins) og hversu hratt ástandið
þróast, þ.e. hvort blóðrásinni vinnst
tími til aðlögunar. Skyndileg lokun
æðar vegna blóðreks (embolia cer-
ebri) reynist þannig gjarnan afdrifa-
ríkari en hægt vaxandi lokun vegna
blóðsega á staðnum.
Einkenni vegna blóðþurrðar í
heila geta verið tímabundin. Talað
er um T.I.A. (tímabundið iskemískt
áfall, transient ischemic attack) þeg-
ar einkennin ganga fullkomlega til
baka á innan við sólarhring, en um
minni háttar heilablóðfall (minor
stroke) þegar einkennin ganga til
baka, en á lengri tíma en einum sól-
arhring. Hér á eftir verður einungis
íjallað um T.I.A., en segja má að
það sama gildi í stórum dráttum um
minni háttar heilablóðfall. Taíla 2
sýnir helstu mismunagreiningar
T.I.A.' «
Eang algengasta orsök blóðþurrð-
ar í heila er staðbundin lokun slag-
æðar af völdum blóðsega (thrombos-
is cerebri). Næst algengasta orsökin
er æðalokun af völdum blóðreks frá
hjarta, sem orsakar u.þ.b. 15%
heiladrepstilvika.2 Blóðrek frá hjarta
til heila er gjarnan mjög afdrifaríkt,
Tafla 1: Helstu orsakir blóðþurrðar í heila
1. Lokun æðar á staðnum vegna:
a) Blóðsega (thrombosis cerebri)
b) Þrýstings utan frá (tumor, abscess, haematom)
2. Blóðrek (embolia cerebri)
a) Frá hjarta:
Hjartsiáttartruflanir (einkum gáttatitringur eða atrial fibrillation),
hjartavöðvadrep, hjartagúlpur (aneurysma cordis), lokuvandamál, op
milli hægri og vinstri hjartahelmings, hjartaaðgerðir.
b) Frá aortaboganum og hálsæðunum:
Æðakölkun (atheroma), áverkar, æðagúlpar (aneurysma)
c) Annað:
Fituembolíur (beinbrot), loftembolíur, köfnunarefnisembolíur (köfun-
arveiki) septískar embolíur og metastatískar embolíur.
3. Bólga í heilaslagæðum (arteritis)
a) Rauðir úlfar (lupus erythematosus diseminatus)
b) Fjölæðabólga (polyarteritis nodosa)
c) Bólga í gagnaugaslagæðum (arteritis temporalis)
d) Sárasótt (syphilis)
4. Æðasamdráttur vegna:
a) Mígrenis
b) Æðamyndatöku (cerebral angiograíTu)
c) Heilamengisblæðingar (haemorrhagia subarachnoidalis)
d) Háþrýstingskreppu (hypertensívrar krísu)
5. Minnkað blóðflæði til heilaæða
a) Minnkuð afköst hjartans, t.d. vegna hjartsláttartruflunar eða
hjarta- vöðvadreps
b) Lækkaður blóðþrýstingur/lost
6. Óeðliieg samsetning blóðsins
a) Ofgnótt rauðra blóðkorna (polycythaemia) og annað sem veldur
óeðlilegri storknunartilhneigingu blóðsins
b) Blóðskortur (anemia)
LÆKNANEMINN 44987-40. árg.
5