Læknaneminn - 01.04.1991, Side 27

Læknaneminn - 01.04.1991, Side 27
 0.5 TESLA 1.0 TESLA Tissue T1 T2 T1 T2 Brain óOO 70 860 70 Muscle 540 50 750 55 Fat 220 60 220 60 CSF 3000 2000 3000 2000 Blood 850 200 900 200 Aqueous Humor 3000 2000 3000 2000 Tafla 1. Tímafastarnir T1 og T2 eru mismunandi fyrir allar vefjagerðir. Þeir eru einnig háðir hversu sterkt segulsvið segulómtækisins er. T1 og T2 eru í millisekúndum. einkennandi fyrir vetniskjarna, þá sveigir hún segulmögnuninaþvertá stefnu segulsviðsins. Tíðnin er háð styrk segulsviðs tækisins, en er yfirleitt frá nokkrum MHz (megarið (mega=106)) og að nokkrum tugum MHz, þ.e. á útvarpsbylgjusviði. Þegar segulmögnun lfkamans er komin í þessa stöðu er slökkl á rafsegulbylgjunni. Um leið minnkar segulmögnunin í hornréttu stöðunni (eins og píla sem minnkar) og leitar afturí fyrri stefnu (santsíða segulsviði tækisins) sem erjafnvægisástand. Þessi minnkun er veldisleg miðað við tíma og er einkennd með veldisfalli, M*e'n:, þar sem T2 er tímafasti veldisfallsins. Þegar segulmögnunin leitar aftur í fyrri stefnu, þ.e. eykst, er því einnig lýst með veldisfalli, M»(l - e-l/TI), þar sem T1 er tímafasti veldisfallsins. Líkaminn er samsettur úr tjölda vetja sem eru mjög mismunandi að gerð. TímafastarnirTl og T2geta veriðeinkennandi fyrir allar vefjagerðir, en þeir eru jafnframt háðir hve sterkt segulsvið segulómtækisinser, sjátöflu 1. Hvaðerhvíttoghvað er svart á myndum úr segulómunartæki ræðst annars vegar af því hvaða gildi eru á tímastuðlunum T1 og T2 fyrir þá vefi sem eru á myndinni og hins vegar hvaða aðferð er notuð við myndatökuna. Segulmögnunin er mæld þegar hún er þvert á stefnu segulsviðsins með því leggja spólu eða loftnet upp við sjúklinginn. Segulmögnunin (sem er segulsvið) myndar straum í spólunni, en hann er í réttu hlutfalli við segulmögnunina. Þetta er sýnt á mynd 3. c) Segulómun sem sneiðmvndatækni Til að myndataka með segulómun sé möguleg, er nauðsynlegt að vita hvernig lfkaminn Myncl 3. A. Fyrst er segulmögnunin (M ) í sömu stefnu og segulsvið segulómtækisins (B j, en er það lítil samanborið við B() að htin mælist ekki. B, Útvarpsbylgju er skotið að sem færir segulmögnunina þvert á stefnu segulsviðsins sem gerir þá mælingar mögulegar á styrk segulmögnunarinnar (Mx). C, Segulmögnunin er síðan mæld þegar hún er þvert á stefnu segulsviðsins með því að leggja spólu eða loftnet upp við sjúklinginn. Segulmögnunin myndar straum í spólunni sem er í réttu hlutlalli við segulmögnunina. LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg. 25

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.