Læknaneminn - 01.04.1991, Page 28

Læknaneminn - 01.04.1991, Page 28
Mynd 4. Segulómtæki (heimild 7). segulmagnast. Með því að þekkjasegulmögnunina með mikilli nákvæmni áhverjum stað í líkamanum er hægt að fá sneiðmyndir í öllum plönum. Segulmögnunin er þekkt á hverjum stað með því að breyta segulsviði tækisins á þekktan hátt. Til þess eru notaðir svonefndir staðsetningarseglar (gradíentar), en þeir eru litlir seglar sem breyta segulsviðinu línulega um allt að 1 % í þremur víddum (x, y og z). Tækjabúnaður Sjálft myndatækið samanstendur af stórum segli, staðsetningarseglum, loftnetum, ásamt sendi og móttakara fyrir rafsegulbylgjur. Jafnframt er tölvubúnaður notaður til að stýra tækinu, setja saman myndirnar ogsýnaþæráskjá. Annarbúnaðurerstóri segullinn sem ræðurmestu um stærð tækisinsen innan í honum eru litlu seglarnir og megin loftnetið. Onnur Mvnd 5. Loftnel fyrir myndatöku af höfði (heimild 6). loftnet eru lögð við sjúklinginn eftir því hvaða líkamshluta eða líffæri er verið að mynda. Tæki er sýnt á mynd 4 og loftnet fyrir myndatöku af höfði á mynd 5. Stóri segullinn myndar segulsvið sem getur verið um 10 þúsund sinnum sterkara en segulsvið Jarðar. Einingfyrirsegulsvið erTesla(T), segulsvið jarðar er um 50 |iT. Tækjabúnaðurinn er mjög mismunandi en mestumáliskiptir val ásjálfumseglinum. Þeirgeta verið þrenns konar: - Ofurleiðnisegull, hann getur flutt mikinn rafstraum án nokkurs viðnáms og myndar því sterkt og jafnt segulsvið (mikið segulmagn) eða yfir2T. Segullinn erkældurmeðfljótandi helíum og stundum einnig fljótandi köl'nunarefni til aðná lágu hitastigi (30°K, -243°C) sem nauðsynlegt Mynd 6. Mögulegt er að taka sneiðmyndir af líkamanum undir nær öllum hugsanlegum sjónarhornum fyrir ofurleiðnina. Þessir seglar eru tiltölulega léttiren flóknir íbyggingu. Þeim hefurfylgt mikill rekstrarkostnaður vegna kælingarinnar, helíum verður að endurnýja reglulega. Þetta er að breytast, aðallegavegnaminni helíum notkunaren einnig hefur verð á helíum lækkað. - Rafmagnssegull sem þarf alltaf rafmagn meðan hann gengur. Getur verið allt að miðlungsstórt tæki, að 0.4 T. Rafsegull er kældur með vatni eða lof'ti og er mjög aflfrekur. - Fastur segull sem er venjulegt segulstál en hefur takmarkaðan segulstyrk, allt að 0.3 T. Hann þarf ekkert rafmagn meðan hann gengur. Slfkir seglar 26 LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.