Læknaneminn - 01.04.1991, Qupperneq 76
STEFAN THORARENSEN
BRAUTRYÐJANDI
LYFJASÖLU
Á í S L A N D I
I sjö áratugi hafa fyrirtæki Stefáns Thorarensen veriö einn traustasti bak-
hjarl íslenskrar heilbrigöisþjónustu.
Saga þess hófst, þegar Stefán Thorarensen varö apótekari í Laugavegs-
apóteki áriö 1919. Þetta var árið eftir spönsku veikina og ísland nýorðið
frjálst og fullvalda ríki. Bjartsýni var ríkjandi, íslendingar eignuðust fyrstu
flugvélina, Halldór Laxness gaf út fyrstu bók sína, Saga Borgarættarinnar
var kvikmynduö og erlent knattspyrnuliö keppti í fyrsta sinn á íslandi.
Stefán Thörarensen hóf þegar innflutning á lyfjum og efnum til Iyfjagerðar,
en jafnframt stóö hann fyrir framleiöslu á ýmsum lyfjum og lyfjaformum.
Frá upphafi seldi Stefán ýmsar vörur, sem tíðkaðist að selja í apótekum, en
lyfjaframleiðslan óx hröðum skrefum og var í stöðugri framþróun. Stefán
keypti þá fyrstu vélknúnu töflusláttuvélina hingaö til lands og einnig fyrstu
fjölstimplavéina. Svo vel dafnaði starfsemin, að umsvif þess urðu fljótlega
meiri en hægt var að sinna í Laugavegsapóteki.
Stefán fékk sérstakt leyfi til lyfjaheildsölu, hið fyrsta sem veitt var á íslandi.
Næsti áfangi var stofnun heildsölunnar Stefán Thorarensen hf. árið 1943 og
yfirtók hún alla heildsölu á lyfjum og hjúkrunargögnum, sem Laugavegs-
apótek hafði annast. Frá upphafi hefur heildsalan miðað rekstur sinn nær
eingöngu viö þarfir apóteka, héraðslækna, sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva. í dag er Stefán Thorarensen hf. nútímaleg heildverslun, sem byggir
á faglegri þekkingu og langri reynslu.
Ný þjónustudeild selur háþróuð rannsóknatæki og rekstrar- og fylgivörur
með þeim.
~ Stefán Thorarensen hf. sameinar gamla og nýja tíma, verslar með smávöru
•o
S og flókinn tæknibúnað — og fyrirtækið stendur í blóma.
Siefán Thorarensen
19 4 0
—Stefán
Thorarensen
Síðumúla 32.