Læknaneminn - 01.04.1998, Síða 6

Læknaneminn - 01.04.1998, Síða 6
í þessari grein verður fjallað um eina þá algengustu og mikilvægustu rannsókn sem gerð er á sjúklingum og er markmiðið aðallega það að kynna hana fyrir nemum á fyrri árum læknisfræðinnar. Þessi rannsókn er útskrifuðum læknum og eldri læknanemum venju- lega svo töm að oft vill gleymast að útskýra hana fyrir yngri nemum. Ég hef ekki enn séð stutta samantekt á hinum almenna blóðhag og verður hér reynt að bæta úr því. Hér að neðan verður sjaldan sagt frá viðmiðunar-gildum en þau eru breytileg eftir rannsóknarstofum og oft háð aldri og kyni sjúklings en þessi gildi má finna á svar- blaði rannsóknarstofanna sem og í handbókum þeirra. I blóðhag eru blóðkorn talin og flokkuð og er þetta nú framkvæmt í nær sjálfvirkum vélum sem telja hvít blóðkorn (HBK) og flokka þau í neutrófíla, lymfócýta, mónócýta, eósínófíla og basófíla, telja rauð blóðkorn (RBK) og blóðflögur (BF) ásamt því að mæla hemóglóbín (hgb), MCV og MPV (sjá neðar). Einnig reiknar tækið út hematókrít (hct), MCH, MCHC, RDW, pct og PDV en þessar skammstafanir verða skýrðar út hér að neðan ein af annarri og í því efni mun ég fjalla um hverja frumulínu fyrir sig. Þessar vélar eru bæði mjög afkastamiklar og geta rannsakað fjölda sýna á skömmum tíma sem og metur tækið mikinn fjölda fruma í hverju sýni, mun fleiri en hægt væri að meta með hinni gamaldags smásjárskoðun. Höfundur er deildarlœknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 1. RAUÐ BLÓÐKORN Hemóglóhín (hgb). Fyrir utan að telja RBK þá mæla ofangreind tæki hgb en það er mikilvægasta mælingin til mats á blóðleysi. Lækkað hgb sést í öllum tegundum blóðleysis og verður þá að túlka niðurstöðurnar í sam- ræmi við aðrar rannsóknir og ldínísk einkenni sjúkl- ings. Lækkað hgb getur einnig sést við blæðingar en varast ber þó að treysta um of á þá mælingu því sjúk- lingur getur verið nær útblæddur án þess að miklar breytingar sjáist á hgb en það gefur einungis til kynna þéttni hgb en segir ekkert um eiginlegt blóðrúmmál. Það er fyrst nokkrum klukkustundum eftir að blóðtap hefur átt sér stað að lækkunar á hgb fer að gæta en þá reynir líkaminn að varðveita blóðrúmmál t.d. með því að auka endurupptöku vatns í nýrum fyrir tilstilli vasó- pressíns (ADH). Hgb lækkar gjarnan á meðgöngu vegna aukins plasmarúmmáls og einnig sést lækkun hjá sjúklingum sem hafa fengið vökva í æð því vökvinn þynnir út blóðið og því fellur þéttni hgb. Sérstaklega skal varað við því að taka blóð úr þeim handlegg þar sem verið er að gefa vökva því þar verður sérstaklega mikil þynning og er árangurinn þá venjulega lapþunnt glundur sem ekkert er að marka. Ovenjulegra er að sjá hækkað hgb en það gerist helst í ofþornun þar sem vökvi hefur tapast úr æðakerfmu og þéttni RBK þ.a.l. óvenjulega mikil. Einnig hækkar hgb við óeðlilega fjölgun RBK s.s. polycythemia vera og viðbrögð við lang- varandi súrefnisskorti í blóði eins og gjarnan finnst í langvinnum lungnasjúkdómum. Hematókrít (hct) sýnir hversu mikill hluti afheildar- rúmmáli blóðsýnis samanstendur af RBK en þetta gildi er því bæði háð fjölda RBK sem og stærð þeirra og er reiknað út samkvæmt jöfnunni hct = MCV x RBK. Hct gefur í raun mjög svipaðar upplýsingar og hgb hér að ofan. 4 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.