Læknaneminn - 01.04.1998, Page 38
Jón ívar Einarsson
lýsingunum er síðan miðlað til þeirra prógrama sem
merkt var við í gegnum internetið. Umsækjandi fær
svo senda staðfestingu í gegnum netið í hvert sinn sem
prógram hleður inn upplýsingum af hans diski. Sam-
skipti við prógrömin fara síðan að mestu fram í gegn-
um internetið. Höfundur hefur nýtt sér þetta kerfi og
í heildina má segja að það komi vel út, þetta einfaldar
hlutina íyrir báða aðila og minnkar allt “pappírsvesen”.
Tilgangur allrar þessarar fyrirhafnar sem áður er lýst
er að komast að í viðtal. Ef umsækjandi ætlar að eiga
einhverja von til þess að komast inn í prógram verður
hann að hafa farið í viðtal á þeim stað. Ekki er öllum
umsækjendum boðið í viðtal. Það fer eftir styrk um-
sóknarinnar hvort umsækjandi teljist líklegur til að
standast þær kröfur sem gerðar eru til hans. Viðtöl eru
venjulega haldin á tímabilinu nóvember til janúar ár
hvert. Þeir sem sækja um stöður í prógrömum þar sem
ríkir mikil samkeppni um stöður er ráðlegast að fara í
nánast öll þau viðtöl sem þeim er boðið í (ef þau eru þá
einhver !). Ef tiltölulega auðvelt er að komast í við-
komandi sérgrein er sennilega nóg að fara í 3-5 viðtöl
svo tryggt sé að viðkomandi fái inngöngu. Viðtölin
taka yfirleytt heilan dag og samanstendur viðtalsdagur
af kynnisferðum um spítalasvæðið, spjalli við lækna í
sérnámi og formlegu viðtali við sérfræðinga prógrams-
ins. Þessi viðtalsdagur er ekki aðeins mikilvægur til að
kynna sjálfan sig heldur er hlutverk hans ekki síður að
gera umsækjanda kleyft að átta sig á prógraminu og því
samfélagi sem ætlunin er að búa í næstu árin. Mikið er
lagt upp úr að undirbúningur umsækjanda sé góður
íyrir viðtölin, því þó ekki sé spurt faglegra spurninga
eru oft lagðar erfiðar spurningar íyrir umsækjendur um
þá sjálfa, s.s. Hverjir eru þínir helstu gallar ?, Hvað get-
ur þú lagt af mörkum í okkar prógrami ? Hvaða tilfelli
hefur haft mest áhrif á þig sem lækni ? o.s.frv. Gott er
að fara yfir lista af helstu spurningum sem lagðar eru
fyrir umsækjendur áður en haldið er í viðtölin svo svör-
in verði skipulögð og ákveðin. Lesið “First aid for the
Match” til að leita frekari upplýsinga.
Hvort sem sótt er um stöðu í gegnum hefðbundn-
ar leiðir eða ERAS er nauðsynlegt að skrá sig í
“Matching” kerfið (National Resident Matching
Program, NRMP). Hægt er að hringja eða skrifa til
NRMP og biðja um að fá senda “Handbook for inde-
pendent applicants”. I þessari handbók er að finna um-
sóknareyðublað sem er fyllt út og síðan sent til NRMP.
Umsóknarfrestur rennur út í lok október. “Matching”
Hetjuímynd íslenskra læknanema?
kerfið er í stuttu máli þannig að eftir að viðtölum er
lokið raða prógröm umsækjendum niður á lista eftir
því hverja þeir sækjast mest eftir að fá til sín. Umsækj-
endur raða líka niður á lista þeim prógrömmum sem
þeir vilja helst komast í. Þessir listar eru síðan tölvu-
keyrðir þannig að sem flestir verði ánægðir. Mikilvægt
er að umsækjendur raði prógrömurn niður eftir því
hvert þá langar helst til að fara en ekki eftir því hvar
þeir telja líklegast að þeir komist inn. “Matching” kerf-
ið virkar nefnilega þannig að ef fleiri en eitt prógram
vilja umsækjanda kemst hann inn í það prógram sem
hann setti ofar á sinn lista. Þannig er reynt að tryggja
að menn komist á þá staði sem eru eftirsóknarverðast-
ir. Um miðjan mars rennur svo upp “Match-day” en
þá er birt í dagblaðinu USA Today og á internetinu
hverjir voru teknir inn. Daginn eftir fást svo upplýs-
ingar hvar viðkomandi mun eyða næstu árum ævi sinn-
ar, en gott er að hafa í huga að niðurstöður úr
“Matching” eru bindandi og því eins gott að setja að-
eins á listann sinn prógröm sem áhugi er fyrir að kom-
ast í. Ef umsækjandi kemst hvergi að er hægt að reyna
að komast inn í prógröm sem fylltu ekki, þ.e. fengu
ekki nægilega marga góða umsækjendur. Það er hins
vegar vont að treysta á þá von, sérstaklega í fögum þar
sem mikil samkeppni ríkir um stöður, en þessi prógröm
fyllast nær öll í “Matching”. Nokkrar sérgreinar hafa
sín eigin “Matching” kerfi sem nauðsynlegt er að skrá
sig í sérstaklega. Má þar nefna Húð og kyn, Neurolog-
ia, Neurokirurgia, Augnlækningar, HNE og Urologia.
36
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.