Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1998, Page 39

Læknaneminn - 01.04.1998, Page 39
Lista yfir þessi kerfi er m.a. að finna á bls.2 í “First aid for the Match”. Þegar búið er að tryggja sér stöðu í prógrami er skrif- að undir ráðningarsamning og byrjað að skipuleggja það mikla fyrirtæki sem búferlaflutningar milli heims- álfa eru. Utiendingar í sérnámi í Bandaríkjunum fara venjulega inn á J-1 visa sem er tímabundið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. Þegar sérnámi er lokið rennur at- vinnuleyfið út og viðkomandi þarf að fara af landi brott, en má sækja um fast dvalar- og atvinnuleyfi að 2 árum liðnum. Margir komast þó í kringum þetta og þá helst ef sjúkrahúsið sem þeir starfa á meta starfskrafta viðkomandi sérfræðings ómetanlega fyrir sjúkrahúsið, en einnig er hægt að semja um að vinna á afskekktum (og óvinsælum) stað í 2-4 ár til þess að fá varanlegt at- vinnuleyfi. Líldegt er að erfiðara reynist fyrir útlend- inga að komast bakdyramegin inn í kerfið á þennan hátt á næstu árum þar sem mikil umræða er í Banda- ríkjunum um offjölgun lækna þar í landi og þann þátt sem útlendingar eiga í þeirri fjölgun. Laun í sérnámi í Bandaríkjunum fara ekki eftir hversu mikið er unnið, borguð eru föst árslaun (kallað “stipend” eða styrkur á íslensku). Arslaun á fyrsta ári eru u.þ.b. $ 30000, sem gerir um 120-130 þúsund ltrónur útborgað á mánuði. Þessi upphæð hækkar nokkuð þegar líða tekur á námið og á fjórða ári eru árslaunin um $38-40000. Sums staðar er “moonlighting” leyft, þ.e. að vinna annars staðar með náminu og eru þá oft ágætis laun í boði. Einnig er boðið upp á styrk til bókakaupa og náms- ferða. Þar sem húsaleiga er dýr eins og í New York City (lítil hola á 100.000 kr á mánuði - kakkalakkar inni- faldir) er hægt að fá niðurgreitt húsnæði á vegum sjúkrahússins. Þessi laun bjóða ekki upp á neitt lúxuslíf en þegar haft er í huga að mun ódýrara er að lifa víðast hvar í Bandaríkjunum en á Islandi eru þessi kjör alveg viðunandi. Eins og kemur fram í þessari grein er talverð fyr- irhöfn í því fólgin að sækja um sérnám í Bandaríkjun- um. Það er hins vegar reynsla höfundar að kerfið vinn- ur vel og er skilvirkt. Mjög mikilvægt er að gefa sér góðan tíma og hefja undirbúning snemma. I viðauka 1 eru settar upp mikilvægar tímasetningar ef ætlunin er að hefja sérnám í Bandaríkjunum 1999. I viðauka 2 eru helstu heimilisföng og netföng sem nauðsynleg eru í undirbúningsferlinu. Þó að ýmsar blikur séu á lofti varðandi sérnám útlendinga í Bandaríkjunum eru þau Um sérnám í Bandaríkjunum enn opin og því er sjálfsagt að láta á það reyna hvort hægt sé að komast að ef áhugi er fyrir hendi. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenska lækna og íslenska heil- brigðiskerfið að menntun í Bandaríkjunum standi þeim opin því með því er tryggð sú fjölbreytni í mennt- un lækna sem einkennir heilbrigðiskerfið á Islandi og er þess helsti kostur. Að gefnu tilefni vill höfundur taka eftirfarandi fram. Þegar búið er að tryggja sér stöðu í Bandaríkjunum er mjög mikilvægt að öll pappírsvinna gangi fljótt og vel fyrir sig. Þeir sem teknir eru inn fá send til sín ýmis eyðublöð, s.s. „house staff application“ umsókn um leyfi til að starfa í viðkomandi fylki, umsókn um trygg- ingar o.s.frv. Þetta þarf allt að fylla samviskusamlega út og senda strax út aftur. Einnig þarf að senda ýmis skjöl út svo sem Curriculum Vitae, afrit af einkunnum úr USMLE, afrit af ECFMG skírteininu, frumrit einkunna frá H.í. og yfirlýsingu frá Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu um að þörf sé fyrir lækna í viðkom- andi sérgrein á Islandi og að læknirinn ætli að snúa heim að námi loknu. Oll skjöl þurfa að vera stimpluð að sýslumanni (notarius puplicum). Þegar prógramið hefur fengið öll þessi gögn getur það gefið út „official contract letter“ og tekur 2 til 3 vikur að útbúa það. Þetta bréf er sent til umsækjanda til undirritunar. Síðan verður að senda það aftur út til prógramsins sem sendir afrit til ECFMG sent gefur út skjal sem heitir IAP-66. ECFMG gefur sér 4 til 6 vikur að útbúa þetta eyðublað ! Það er síðan sent til prógramsins sem sendir það loks til umsækjenda. Hann þarf að fara með IAP-66 eyðublaðið í Bandaríska sendiráðið sem sér um að gefa út J-1 vegabréfsáritun. Það getur tekið eina viku. Að framansögðu er ljóst að ef þessi samskipti ættu að eiga sér stað með venjulegum póstflutningum þá gengi dærnið einfaldlega ekki upp því póstsendingar milli Islands og Bandaríkjanna taka 2 til 3 vikur að komast á áfangastað. Það er því nauðsynlegt að senda öll skjöl með hraðpósti og biðja prógramið um að gera slíkt hið sama. Einnig er gott að hringja út og staðfesta að öll gögnin hafi komið og að þau séu rétt stimpluð o.s.frv. Skrifræðið í Bandaríkjunum er mjög stíft og ósveigjan- legt og ekki er ráðlegt að reyna að stytta sér leið á neinn hátt. Ef að gætt er að því að fylla öll eyðublöð samviskulega út og senda allt frá sér án tafar ætti dæmið þó að ganga upp. LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg. 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.