Læknaneminn - 01.04.1998, Page 52
Kjartan Örvar
vöðvahreyfingar og svokallaðir „biomekanískir" eigin-
leikar eru yfirleitt ekki skoðaðir. Betri skilningur á flæði
og „biomekanískum" eiginleikum er hinsvegar nauð-
synlegur fyrir frekari þróun lífeðlisfræðirannsókna.
RANNSÓKNARAÐFERÐIR
I töflu I er listi yfir helstu rannsóknaraðferðir. Hér
verður eltki gerð sérstök grein fyrir ísótóparannsóknum
en lögð áhersla á að útskýra þrýstingsmælingar, sýru-
stigsmælingar, öndunarpróf, taugaleiðnipróf og notkun
röntgenrannsókna til lífeðlisfræðimælinga.
ÞRÝSTINGSMÆLINGAR (MANOMETRÍA)
Þrýstingsmæling er ákaflega einföld mæliaðferð á
annarsvegar þanþrýstingi í hringvöðva eða til að mæla
vöðvasamdrátt í holu líffæri. Mynd 2 sýnir hefðbundið
tæki. Við þrýstingsmælingu er plastslöngu komið fyrir
inni í holu líffæri t.d. vélinda og gegnum plastslönguna
rennur stöðug vatnssúla undir ákveðnum þrýstingi út
um op sem eru á slöngunni. Ef vélindað dregst saman
leggst veggurinn yfir
opið á slöngunni og
við það myndast bak-
þrýstingur sem tækið
nemur og sendir boð í
gegnum ljósgeisla,
inn í tölvu og kemur
þá fram þrýstingsút-
slag. Ef vélindað vílck-
ar út nær veggurinn
ekld lengur að loka
fyrir opið á plast-
slöngunni og vatns-
flæðið fer óhindrað
út í holrúmið og enginn bakþrýstingur myndast og þar
með ekkert útslag á tölvunni. Þessum upplýsingum er
síðan safnað inn á minni tölvunnar til frekari úr-
vinnslu. Þrýstingsmæling mælir þannig eingöngu
vöðvasamdrátt eða hreyfingu en flæðið í viðkomandi
líffæri veldur óverulegu útslagi.
Með því að mæla samtímis þrýsting frá mismunandi
stöðum á slöngunni er hægt að mæla vöðvahreyfingar í
ristlinum eða peristalsis.
Rannsóknir á kyngingarerfiðleikum:
• Greining frum (primer) vöðvasjúkdóma í vélinda:
Achalasia.
Diffúse esophageal spasm
Hypertensive LES
Nutcracker oesophagus
Nonspecific esophageal motility disorder
• Greining afieiddra (secunder) vöðvasjúkdóma í
vélinda:
Scieroderma
Rannsóknir á hugsanlegum bakflæðissjúkdómi:
• Staðfesta greiningu í erfiðu tilfelli
• Sjúklingur svarar illa meðferð
• Bakflæði hugsanleg orsök efri loftvega einkenna
• Mat á vöðvahreyfingum í vélindabol fyrir Nissen
aðgerð
• Til að staðsetja sýrustigsmæli
Rannsóknir á óútskýrðum brjóstverk:
• Greina frum vöðvasjúkdóma í vélinda
Tafla II. Abendingar fyrir lífeðlisfræði-
rannsóknir í vélinda.
LÍFEÐLISFRÆÐIRANNSÓKNIR í VELINDA
I töflu II eru helstu ábendingar fyrir lífeðlisfræði-
rannsóknir í vélinda. Eftirfarandi er lýsing á þessum
rannsóknaraðferðum og hvernig þær eru notaðar við
hugsanlega sjúkdóma í vélinda.
Að lokum er síðan ráðlegging um hvernig best er að
vinna upp tiltekin einkenni um sjúkdóma í vélinda.
ÞRÝSTINGSMÆLING í VÉLINDA
(OESOPHAGEAL MANOMETRIA)
Þrýstingsmælingar í vélinda eru tiltölulega auðveldar.
Eftir að búið er að stilla mælitækin er slöngu rennt í
gegnum nefhol niður í maga. Slangan er síðan rólega
dregin til baka inn í vélindað og um leið er sjúldingur
látinn kyngja bæði munnvatni og vatnssopum og
þannig eru vöðvahreyfingar í vélindabol og hringvöðva
skoðaðar.
Á mynd 3 er dæmi um eðlilega vöðvastarfsemi í vél-
indabol. Vélindað er ekki bara rör sem liggur frá koki
Rannsóknaraðferðir:
• Þrýstingsmæling
• Sýrustigsmæling
• Isótóparannsóknir
• H2 öndunarpróf
• 13 C öndunarpróf
• Taugaleiðnimæling
• Risilflæðismæling
• Skyggning hægðalosunar
Tafla I.
Lífeðlisfræðirannsóknir á
meltingarvegi.
50
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.