Læknaneminn - 01.04.1998, Page 58
Kjartan Örvar
• Diabeces mellitus
• Hypothyroidism
• Post vagotomy
• Pseudoobstruction
• Sclerodema
• Lyf (opiot,, L-dopa„ anticholinergisa lyf)
• Post viral
• Idiopathic
Tafla VI. Stafrænar orsakir fyrir seinkaðri
magatæmingu.
ÍSÓTÓPARANNSÓKNIR
Það er komin löng heíð fyrir að nota ísótóparann-
sóknir til að meta tæmingartíma maga bæði á tæmingu
vökva og fastrar fæðu. Þessi aðferð er nákvæm en krefst
þess að hver rannsóknarstofa staðli sínar mælingar og
kostar mikla útreikninga með tölvu.
Vegna þess er þetta yfirleitt mjög dýr rannsókn en
nokkuð nálcvæm (mynd 9).
Ókosturinn við þessa rannsóknaraðferð er sú að
vegna þess að hér er um geislavirkan ísótóp að ræða er
ekki hægt að nota þessa rannsókn hjá ófrískum konum
og börnum og ekki er hægt að endurtaka þessa rann-
sókn margoft.
ÓMSKOÐANIR
Hægt er að mæla rúmmál antrum hluta magans með
ómskoðun eftir t.d. neyslu á vökva. Þegar rúmmál ant-
rum minnkar bendir það til magatæmingar. Einnig er
hægt að nota sérstakar baunir sem eldd meltast í maga
og þannig fylgjast með þeim fara í gegnum pylorus.
Aðalókostur ómskoðunar er sá að einstaklingurinn
þarf að vera mjög grannur til þess að hægt sé að beita
þessari aðferð og því er lítið ldínískt notagildi af óm-
skoðunum.
ÖNDUNARPRÓF
Þetta er nýjasta rannsóknaraðferðin og er nú hægt að
gera hana á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
C13 merkt oktanoic sýra er notuð til þess að fylgjast
Frumorsakir:
• Familial visceral myopathy
• Sporadic visceral myopathy
• Familial visceral neuropathy
• Sporadic visceral neuropathy
Afleiddar orsakir:
• Scleroderma,, amyloidosis
• Diabetes, hypothyroidism
• Anticholicyisk lyf„ tricyclisk lyf
• Paraneoplastic syndrome
Tafla VII. Chronic intestinal pseudoobstrution
— orsakir.
með hreyfingum á fastri fæðu í maga. Þegar oktanoic
sýran kemur niður í skeifugörn frásogast hún hratt og í
lifur fer fram oxun á sýrunni. Vegna þess er framleitt
C02 sem er síðan hægt að mæla í útönduðu lofti.
Þetta er hættulaus rannsókn þar sem að C13 er stöðug-
ur ísótóp og hætta á geislun því ekki vandamál. Þess
vegna er hægt að nota þessa rannsóknaraðferð oft í
sama einstaldingi bæði hjá börnum og ófrískum kon-
um. Þessi aðferð er nákvæm og verður líklega kjörrann-
sókn til að mæla tæmingartíma maga.
"ELEKTROGASTROGRAPHY" (EGG)
EGG er aðferð sem getur mælt yfirborðs rafvirkni í
maganum. Með því að setja elektróðu á kviðvegginn
yfir maganum er hægt að mæla rafmagnshreyfingar í
maga sem endurspegla hreyfingar (peristalsis) í magan-
um. Þessi aðferð hefur verið rannsökuð ítarlega síðustu
ár þar sem hér er um hættulausa rannsóknaraðferð að
ræða og hefur verið hægt að sýna fram á breytingar í
magahreyfingum við seinkaða magatæmingu (mynd
9). Ymislegt getur truflað þessa rannsókn og ldínískt
notagildi af EGG er óljóst og helst að þessi aðferð sé
notuð í vísindarannsóknum.
„ANTRODUODENAL" ÞRÝSTINGSMÆLING
Antroduodenal þrýstingsmæling er gömul rannsókn-
araðferð þar sem slöngu er komið ofan í magann og
hún þrædd í gegnum pylorus og niður í skeifugörn.
56
LÆKIMANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.