Læknaneminn - 01.04.1998, Qupperneq 115
Aðferðir og efniviður: Reykjarvíkurrannsókn Hjartarverndar er stór framsýn
þýðisrannsókn sem hófst árið 1967. Þátttakendum var skipt niður í 6 áfanga kven-
na og karla eftir fæðingarári og fæðingardegi og var hver áfangi rannsakaður á mis-
munandi tímabili. Alls tóku þátt að minnsta kosti einu sinni 9139 karlar og 9773
konur. Meðalþátttaka var 71%. í þessari rannsókn var notast við 5 fyrstu áfangan-
na til að: reikna út faraldursfræð-ina, finna samtíðarbreytur tengdar gáttatifi ( miðað
við Pgildi <0,05 ) og tengsl þess við dánartíðni. Ur öllum 6 áföngum hjartarvern-
darþýðisins og áföngum: Q, O ( ungt fólk ), P ( Arnessýsla ) og S ( Skagarfjarðarsýsla
) voru fundnir einstaklingar með gáttatif (Minnesóta kódi 830), fundið í þjóðskrá
hverjir voru látnir og dánarorsök þeirra ákvörðuð út frá dánarvottorði.
Niðurstöður: Algengi og nýgengi gáttatifs hjá bæði konum og körlum eykst með
hækkandi aldri. Algengið er hærra hjá körlum ( 4,7% við 70-75 ára aldur ) en hjá
konum (0,8% við 70-75 ára aldur). Eins er nýgengið hærra hjá körlunum ( 400 á
ári á 100.000 mannsár við 65-69 ára aldur ) en konum ( 240 við 65-69 ára aldur ).
í ljós kom að: hæð, haematokrit, sykurþol 90 mín. og hjartastækkun eru fjölvitt
samtímatengdar gáttatifi hjá körlum, en hjá konum eru það: þvagsýra, haemoglobin
og hjartastækkun. Karlmaður með gáttatif er í 44% meiri áhættu á að deyja og rúm-
lega 2falt meiri áhættu á að deyja úr heila-áfalli en karlmaður án gáttatifs. Kona með
gáttatif er í rúmlega 2falt meiri áhættu á að deyja og rúmlega 14 faldri meiri áhættu
á að deyja úr heilaáfalli en kona án gáttatifs. 106 látnir og með greininguna gáttatif
fundust þar af 76 karlmenn og 30 konur. 34% karlmanna dóu úr kransæðasjúkdó-
mum og 16% úr heilaáföllum, hjá konunum dóu 23% úr krans-æðasjúkdómum og
17% úr heilaáföllum.
Umræða: Gáttatif kemur til vegna boðspenna sem snúa aftur og í sífellu afskau-
ta vöðva-vef gáttanna. Algengi og nýgengi gáttatifs eykst hjá bæði konum og körlum
með hækkandi aldri er niðurstaða sem aðrar rannsóknir hafa einnig komist að.
Samkvæmt niðurstöðum hér eru karlmenn í meiri hættu á að fá gáttatif heldur en
konur, en það vekur athygli hversu kona með gáttatif er í margfaldri áhættu á að
deyja af völdum heilaáfalls heldur en kona án gáttatifs borið saman við áhættu karl-
manns með gáttatif. Það má því Ieiða líkur að því að kona með gáttatif er í meiri
hættu en karlmaður á að veikjast og deyja. Sú staðreynd vekur vonir manna að með
því að lækna gáttatif, þá sé hægt að koma í veg fyrir stóran hluta heila
Kopar, súperoxíðdismútasavirkni, cerúlóplasmínmagn og cerúlóplasmínvirkni
í sjúklingum með Alzheimersjúkóm og heilbrigðum öldruðum
Magnús Baldvinsson^. Jón Snædal^.
'lhí. 2shr.
Inngangur: Alzheimersjúkdómur er algengasta orsök heilabilunar (dementia) hjá
einstaldingum eldri en 65 ára. Meinmyndun sjúkdómsins er nær með öllu óþekkt.
Hugsanleg orsök eru oxunarskemmdir vegna fríhópa (free-radicals). Kopar, súper-
oxíðdismútasi (SOD) og cerúlóplasmín gegna stóru hlutverki í náttúrulegum vörn-
um líkamans gegn fríhópum.
Tilgangur rannsóknar: Að athuga hvort magn og/eða virkni þessara efna sé með
öðrum hætti hjá Alzheimersjúklingum en heilbrigðum á sama aldri og þar með hvort
þáttur þeirra í oxunarhvörfum hafi áhrif til myndunar sjúkdómsins.
Efniviður og aðferðir: Tekin voru blóðsýni úr 23 einstaklingum (8 karlar og
15 konur) á aldrinum 63 til 89 ára greindum með Alzheimersjúkdóm samkvæmt
skilmerkjum NINCDS/ADRDA. Til viðmiðunar voru sjúklingarnir paraðir við
heilbrigðan einstakling af sama kyni fæddan sama almanaksár. Fyrir koparmælingar
í plasma voru sýni undirbúin á Rannsóknarstofu í lyfjafræði og mæld á Rannsóknar-
stofu fiskiðnaðarins með atomic absorption aðferð. Serum cerúlóplasmínmagn var
mælt á Rannsóknardeild Landspítalans og þar var einnig mælt gammaglútamýltrans-
ferasamagn til útilokunar lifrarsjúkdóms. Súperoxíðdismútasavirkni var mæld með
SOD-525 aðferð og cerúlóplasmínvirkni með hvörfun við o-díanisidín og gleypni-
mælingum í sýnilegu ljósi á Rannsóknarstofu í lyfjafræði.
Niðurstöður : Ekki var marktækur munur á magni cerúlóplasmíns (p=0,89) eða
kopars (p=0,27) milli hópanna tveggja (n=48). Fylgni milli koparmagns og cer-
úlóplasmínmagns var mjög góð í báðum hópum, p=0,0001 hjá viðmiðunarhóp og
p=0,0004 hjá Alzheimerhóp. Munur á SOD virkni (n=26) var á mörkum þess að
vera marktækur (p=0,069). Hámarktækur munur (p=0,0001) var hins vegar á virkni
cerúlóplasmíns (n= 26).
Ályktun: Niðurstöður gefa til kynna að líklega er um brenglun í koparbúskap hjá
Alzheimersjúklingum að ræða vegna þess að virkni cerúlóplamsíns er minnkuð í
Alzheimerhópnum. Þar sem hlutverk cerúlóplasmíns er að hemja og eyða fríhópum
(free-radicals) þá er hugsanlegt að þessi minni virkni eigi hlut að máli í meinmynd-
un sjúkdómsins. Til þess að geta lagt mat á SOD virkni er nauðsynlegt að mæla fleiri
einstaldinga.
Samband menntunar og dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma.
Hóprannsókn Hjartaverndar.
Maríanna Garðarsdóttir^. Þórður Harðarson ^Guðmundur Þorgeirsson^
Helgi Sigvaldason^, Nikulás Sigfússon^.
^LHÍ, ^Lyflækningadeild Landspítalans, ^Rannsóknarstöð Hjartaverndar.
Inngangur: Samband þjóðfélagsstöðu við sjúkdóma og dánartíðni hefur lengi
verið þekkt. A síðari árum hafa langvinnir sjúkdómar vakið sérstakan áhuga manna,
meðal annars vegna áhrifa umhverfis og hugsanlegra erfðaþátta á sjúkdómsferlið.
Einkum hafa tengsl þjóðfélagsstöðu og hjarta- og æðasjúkdóma vakið athygli, því
þeir eru nú algengasta dánarorsök á Vesturlöndum. Aður fyrr voru hjarta- og
æðasjúkdómar mun tíðari hjá þeim sem betur voru stæðir, en rannsóknir hafa sýnt
að þessu horfir nú öðruvísi við. Til að kanna hvernig þessu væri háttað hér á landi
var gerð framskyggn rannsókn á tengslum menntunar og dánartíðni af völdum kran-
sæðasjúkdóma á íslandi. Einnig var kannað samband mennt-unar og dánartíðni af
völdum krabbameina og slysa ásamt heildardánartíðni í sömu gögnum.
Efniviður og aðferðir: Rannsókn þessi var hluti af hóprannsókn Hjartaverndar.
Hóprannsókn Hjartaverndar er framskyggn rannsókn sem hófst árið 1967 og hefúr
hún farið fram á fimm stigum. Þátttakendum var fylgt eftir í 3 - 27 ár. Alls var
30.853 einstaklingum boðin þátttaka í upphafi, en þessi rannsókn tók til ailra þeirra
sem komu í fyrstu heimsókn sína. Það voru alls 18.912 einstaklingar, 9.139 karlar
og 9.773 konur. Karlarnir voru fæddir á árunum 1907 - 1934 og konurnar 1908 -
1935. I heimsókn í Hjartavernd gengust þátttakendur undir nákvæma læknisskoðun
og kannað var vægi áhættuþátta en þeir voru kólesteról og þríglýseríð í sermi,
slagþrýstingur, blóðsykur og reykingar. Þátttakendur voru einnig spurðir um fyrra
heilsufar og félagslega þætti, þar á meðal menntun. Þeim var svo skipt í fjóra hópa
eftir menntun: Háskólapróf eða sambærileg menntun (hópur 1); stúdentspróf eða
sambærileg menntun (hópur 2); gagnfræðapróf eða sambærileg menntun (hópur 3);
barnaskólapróf eða minni menntun (hópur 4). Samband menntunar og dánartíðni
var síðan metið með áhættulíkani Cox. Notuð er tíðni dauðsfalla í ólíkum hópum
til að spá fyrir afdrifum þeirra sem enn lifa. Hópur 4, lægsta menntunarstaða, var
lagður til grundvallar. Reiknað var áhættuhlutfall hópa 1, 2 og 3 og leiðrétt var fyrir
aldri og skoðunarári eða aldri, skoðunarári og áhættuþáttum að auki. Áhættuhlut-
fallið gefur hlutfallslega áhættu á endapunkti á hverjum gefnum tíma og er það ein-
ungis háð óháðu breytunum en ekki tíma. Áhættutími einstaklinganna er jafnaður
út og verður áhættuhlutfallið óháð honum. Allir útreikningar töldust marktækir ef
p < 0,05 í tvíhliða prófi.
Niðurstöður: í ljós kom tölfræðilega marktækt stígandi öfúgt samband menntu-
nar og dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma hjá körlum og konum. Dánartíðni
í hópi 4 var um 30% hærri hjá körlum miðað við hópa 1 og 2 samanlagða en rúm-
lega tvöföld hjá konum. Sambandið var áfram fyrir hendi eftir að leiðrétt hafði verið
fyrir áhættuþáttum en eingöngu marktækt hjá körlum. Sama tilhneiging var einnig
fyrir hendi hvað varðaði allar dánarorsakir hjá körlum og konum og var dánartíðnin
25% hærri hjá körlum í hópi 4 miðað við hópa 1 og 2 samanlagða og um 50% hjá
konum. Marktekt var áfram fyrir hendi þegar tekið hafði verið tillit til áhættuþátta
hjá báðum kynjum. Dánartíðni af völdum krabba-meina hafði ekki marktækt sam-
band við menntun, en þó var marktæk tilhneiging til vax-andi dánartíðni með
minnkandi menntun meðal kvenna. Dánartíðni af völdum slysa í þessu þýði var lág
og gaf ekki tilefni til útreikninga.
Efnisskil: Menntun er sjálfstætt tillag í dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma
hjá körlum en ekki hjá konum. Sama tilhneiging kom þó fram hjá báðum kynjum
og er ekki ástæða til að ætla annað en að sama samband sé til staðar, enda voru dauðs-
föll meðal kvenna mun færri. Það vekur athygli hversu sterkt forspárgildi men-
ntun hefur umfram aðra þætti um dauðsfall af völdum kransæðasjúkdóma og þekk-
tir áhættuþættir skýrðu ekki nema lítinn hluta af mun á dánartíðni milli mismunan-
di menntahópa. Ástæður þessa eru ekki vel þekktar og eru þær taldar vera margþát-
ta. Meðferðarheldni, mataræði, aðgengi að læknisþjónustu, hreyfing, húsnæði, for-
varnir, skilningur á sjúkdómum og sálfélagslegir þætt-ir ásamt þáttum í æsku hafa
verið nefndir sem hugsanlegar skýringar. Frekari rannsókna er þörf hér á landi til að
reyna að skýra þetta samband.
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1998, 51. árg.
113