Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 18
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS Samdráttur í kartöfluframleiðslu á Vesturlöndum hefur valdið því að heimsmarkaðsverð hefur rokið upp úr öllu valdi og hefur ekki verið hærra í mörg ár. Ástæða þess á að vera skjót hækkun orkukostnaðar til evrópskra og bandarískra bænda sem hefur valdið því að framlegð hefur dregist meira saman en talið er ásættanlegt og bændur lagt meira upp úr ræktun annars grænmetis. Verðið í maí 2023 var rúmlega þrefalt lægsta verð ársins 2022 og markaðir fyrir framvirka samninga á hrávörum gera ráð fyrir enn frekari hækkun á vörunni. Þegar rýnt er í verðþróun á erlendum mörkuðum og borið saman við kartöfluverð á Íslandi sést að þrátt fyrir sveiflur á heimsmarkaðsverði er þróunin sambærileg þar til síðastliðið haust. Er verðið fyrir 100 kg af kartöflum núna tæpar 44 evrur, eða um 6.500 krónur. Það er enn töluvert lægra verð en gengur og gerist í íslenskum verslunum. Ódýrustu kartöflur í Krónunni eru á 296 kr/kg eða 29.600 fyrir 100 kg, en það er vissulega eftir pökkun, vinnslu og álagningu allra aðila í virðiskeðjunni og verðið því varla sambærilegt. Íslenskir bændur þurfa ólíklega að horfa upp á snöggar hækkanir á orkukostnaði og neytendur hafa ávallt geta treyst því að verð á kartöflum sveiflist ekki mikið enda mikilvægur hluti daglegrar fæðu flestra. Kartöfluverð á Íslandi hefur alla tíð haldist hönd í hönd við almennt verðlag en framleiðsla hefur dregist saman á undanförnum árum og er því spurning hvort að þörf sé á einhverjum breytingum í sölu- og markaðsaðgerðum til að ýta undir söluna. Þreföldun á heildsöluverði myndi án nokkurs vafa ýta undir framleiðsluviljann þó. Stjórnvöld hér á landi hafa lagt mikla áherslu á aukningu grænmetisræktunar og að Ísland verði sjálfbært þegar kemur að ræktun grænmetis til eigin neyslu. Kartöfluræktun stendur undir 40% af allri grænmetisrækt landsins en auk þess flytjum við inn um það bil 30% af þeim kartöflum sem við borðum. Sést á innflutningstölum Hagstofunnar að íslenskir inn- flytjendur hafa fundið hressilega fyrir hækkunum á kartöfluverði, frá því í október hefur innflutnings- verð á kartöflum verið um 50% yfir meðalverði tímabilsins frá árinu 2021. Haldi þessi þróun áfram er ljóst að mikilla breytinga má vænta á kartöflumarkaði og má velta fyrir sér hvort nýtt landslag gæti breytt stöðu íslenskra kartöflubænda eitthvað, sér í lagi þegar horft er aftur til síðasta hausts og framleiðsla á íslenskum frönskum kartöflum var lögð niður og innflutningur aukinn þess í stað. Því miður er enn bil á milli þess verðs sem býðst á erlendum mörkuðum og þeim íslenska, en hver veit nema að kartöflur verði næsta útflutningsvara þjóðarinnar. /SFB Markaðir 150,1 kr. Evra 136,36 kr. USD 172,54 kr. Pund 313,5182 kr. 95 okt bensín 311,0052 kr. Díesel 16,46 USD Mjólk (USD/100 pund) 6,33 USD Korn (USD/sekkur) 42,6 EUR Kartöflur (EUR/100 kg) 1307 AUD Ull (AUD/100 kg) 1,768 USD Ostur (USD/pund) 4669 EUR Smjör (EUR/tonn) STÁLGRINDARHÚS STÖÐLUÐ Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m² Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin standast mestu snjó-og vindálagskröfur sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta því sem geymslu- og vélaskemmur í öllum landshlutum. Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum af grunni og vinnuteikningum. Hafðu samband: bondi@byko.is Október 2022: € 20 Verð á hundrað kg af kartöflum á EEX hrávörumarkaði Júlí 2022: € 12,4 Heimsmarkaðsverð á kartöflum í hæstu hæðum Maí 2023: € 43,65 18 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.