Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 LÍF&STARF Hugmyndir: Bændahjálp og kindaleitari – Bændur og búalið nýta sér ýmsa tækni í daglegum störfum Tækniþróun er í veldisvexti og ýmis ný og nýleg tækni kemur að góðum notum í búskap. Mynd / Kaleb Kendall. Nýsköpunarkeppni grunn- skólanna, NKG, hefur getið af sér marga forvitnilega hugmyndina og sumar hafa raungerst en aðrar ekki, eins og gengur. Ein margra hugmynda sem komu fram fyrir áratug var í flokknum Landbúnaður og nefndist Bændahjálp, runnin undan rifjum ungra nemenda við Egilsstaðaskóla. Um var að ræða hugmynd að appi tengdu hormóna- og hjartsláttarskynjara til að létta störf bænda í sauðburði og hlaut hún þriðja sæti í keppninni. Sú hugmynd sem hreppti gullverðlaun í NKG það sama ár nefndist Kindaleitari og kom frá nemanda í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Sú fjallaði um að bændur ættu hefðbundið GPS- tæki, hver kind væri skráð í það með örflögubúnaði og mætti þá sjá staðsetningu hverrar kindar í rauntíma á tölvuskjá. Myndi það gagnast við að heimta fé af fjalli og sjálfheldu, t.a.m. í fönn. Frá hugmynd til veruleika Nú mætti spyrja hvernig hugmynd- unum hafi reitt af og hvort eitthvað viðlíka sé í notkun meðal bænda. Fyrst er að nefna að bændur nýta núorðið í allmiklum mæli vefmyndavélakerfi í fjárhúsum sem gerir að verkum að ekki þarf endilega fulla viðveru í húsunum heldur má fylgjast með í síma hvernig mál standa hverju sinni og bregðast við eftir þörfum. Slíkt kerfi er ekki aðeins gagnlegt á sauðburðartíma heldur getur það einnig komið í góðar þarfir meðan fé er á húsi til að kanna reglulega hvort ekki sé allt með felldu. Unnsteinn Snorrason, verkefna- stjóri hjá Bændasamtökum Íslands, segir aðspurður að á bilinu 20–30% bænda á Íslandi noti vefmyndavélar í fjárhúsum til hægðarauka og sé tæknin einföld og gagnleg. Um það hvernig hún gæti þróast segir hann að hugsa mætti sér að gervigreind geti í framtíðinni sagt til um hvenær hver kind er komin að burði og þannig gert eftirlit bóndans enn skilvirkara. Hvað hugmyndina um Kinda- leitara varðar má segja að hún hafi raungerst í því að setja má ólar með staðsetningartæki um háls skepna og fylgjast með ferðum þeirra á þann hátt. Það er þó kostnaðarsamt, rafhlöðuending getur verið vandamál og því er ekki um almenna notkun bænda á staðsetningartækjum á skepnur að ræða hér á landi. GPS- tæknin er meðal annars notuð í nákvæmnisbúskap til að afla upp- lýsinga og stjórna ýmsum þáttum, í rannsóknarskyni, svo sem hjá Landgræðslunni og fleiri aðilum sem hafa á þennan hátt til dæmis kannað atferli sauðfjár hvað varðar beit og hegðun. Sömuleiðis er með þessum hætti rannsakað farflug fugla, svo sem gæsa og far hreindýra. Erlendis hefur sú leið verið þróuð að búa til sýndarveruleikagirðingar um tiltekna reiti þar sem skepnur eru haldnar og má að sögn Unnsteins ætla að sú tækni gæti rutt sér til rúms hér á landi þegar tímar líða. Fari skepna of nálægt slíkri girðingu fær hún viðvörun í formi hljóðmerkis, sem fer síhækkandi eftir því sem nálægðin verður meiri, en fari dýrið yfir hin skilgreindu mörk fær það vægan rafstraum og sýndarveruleikagirðingin færist nokkru utar til að reyna að fá dýrið til að fara ekki lengra með endurteknum aðvörunum. Að sögn Unnsteins mætti hugsa sér að í framtíðinni verði jafnvel hægt að smala fé með slíkum skilgreindum línum sem myndu smáfærast eftir því sem féð rynni af fjalli og nær ákvörðunarstað. Drónar æ algengari Í dag er notkun dróna hins vegar útbreidd meðal bænda og slík flygildi notuð í ýmis verkefni, svo sem að stýra hjörðum eða einstökum skepnum, til ýmiss eftirlits á bújörðum, til að leita að skepnum með t.d. hitamyndavél og fleira í þá veruna. Unnsteinn bendir á að meðal stærstu tæknilegu vinnuhag- ræðingarþátta í búskap hin síðari ár sé eyrnaörmerkið og viðeigandi rafrænn lesari. Fleiri hugmyndir hafa birst í NKG á síðustu árum, þar með talið um sauðfjárteljara 2018 og fóðurskammtara 2022. Krakkar í 5.–7. bekk skiluðu inn splunkunýjum hugmyndum laust eftir miðjan apríl síðastliðinn og aldrei að vita hvað leynist þar í grasrótinni sem orðið gæti íslenskum landbúnaði til framdráttar. /sá Lögfræði: Búvörusamningar til umfjöllunar Búvörusamningar geta ekki talist ígildi kjarasamnings og Bændasamtök Íslands geta ekki talist vera stéttarfélag búvöruframleiðenda, að mati Önnu Kristínar Agnarsdóttur lögfræðings, sem nýlega fjallaði um búvörusamninga í lokaritgerð sinni frá lagadeild Háskólans á Akureyri. Anna Kristín fjallaði um framkvæmd búvörusamninga og helstu réttarheimildir sem liggja samningunum til grundvallar. Í lokaorðum ritgerðarinnar segir að landbúnaðarréttur hafi ekki fengið mikla umfjöllun og að skrifin hafi því reynst vandasöm enda erfitt að fletta upp hinum ýmsu álitaefnum sem upp hafi komið. „Markmið verkefnisins var að skoða hvert fyrirkomulag búvörusamninganna sé, hver sé fjárstuðningurinn sem veittur er samkvæmt ákvæðum samninganna og svo hver starfsskilyrði greinar- innar séu. Með því var leitast við að svara rannsóknarspurningum verkefnisins: Eru búvörusamningarnir kjara- samningar bænda í íslenskum landbúnaði? Hvers eðlis eru búvörusamningarnir? Hvert er skuld bindingargildi og réttaráhrif samninganna?“ Bændasamtökin ekki stéttarfélag Farið er yfir forsögu og aðdraganda búvörusamninga og fjallað um þrjá af fjórum samningum. „Samningarnir eru skuldbindandi fyrir ríkissjóð samkvæmt þeim lagafyrirmælum sem þeir eru settir samkvæmt, hvað varðar fjárframlag og þær fjárhæðir sem getið er hverju sinni. Ríkisstjórnin getur ekki breytt samningunum einhliða heldur þarf tilkomu samningsaðila sem kemur fyrir hönd bænda, en það eru Bændasamtök Íslands,“ segir Anna Kristín. Þá segir að þó margt sé líkt með búvörusamningum og kjara- samningum geta hinir fyrrnefndu ekki talist ígildi kjarasamninga þar sem þeir kveða ekki á um þau lágmarksréttindi sem kjarasamningar gera, s.s. um lágmarkslaun, vinnutíma, orlof og veikindarétt.Anna Kristín gerir hlutverk Bændasamtakanna að umfjöllunar efni í þessu samhengi. Þótt samtökin gæti hagsmuna bænda og undirriti búvörusamninga fyrir þeirra hönd, fari með fyrirsvar og beiti sér fyrir kjörum bænda, skilgreina samtökin sig ekki sem stéttarfélag samkvæmt samþykktum. Mörkin séu þó óskýr. „Niðurstaðan er þó sú að samtökin geta ekki talist vera stéttarfélag í skilningi laga um stéttarfélög og vinnudeilur.“ Anna Kristín segir að áhugavert hafi verið að bera saman búvöru samninga eins og þeir eru í dag við fortíðina. „Meginmarkmiðið var að koma í veg fyrir stóriðnað í íslenskum landbúnaði en svo sjáum við að raunin virðist vera á leið annað í dag,“ segir hún. /ghp Anna Kristín Agnarsdóttir lögfræðingur. STÁLGRIND TIL SÖLU! 495 fm2 (18x27,5m) Nánari upplýsingar veitir Gísli Már 842-5462 | gislia@veritas.is < < < < 6 m < < 6 m < < 6 m < < 3 .2 m < < 5.5 m < < 5.5 m < < 5.5 m < < 5.5 m < < 5.5 m < < 18 m 27.5 m < < 4 .1 m 5. 5. 5. 5.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.