Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 er háð markmiðum og því hvaða aðrar leiðir að settu markmiði koma til greina. Út frá sjónarhóli aðila eins og WTO þá falla tollar undir það sem kallað er „viðskiptatruflandi“ aðgerð. Þeir hækka verð til framleiðenda viðkomandi vöru í því landi sem leggur á tolla og eykur því framleiðslu. Sé það einmitt markmið stjórnvalda má segja að það sé um leið kostur hennar auk þess sem þessi leið að því markmiði kallar ekki á ríkisútgjöld. Málið er samt miklu margslungnara,“ segir Erna. Sílóin ekki til „Við teljum að afleiðingar aukins innflutnings verði að innfluttar vörur ryðji íslenskri framleiðslu til hliðar vegna þess að íslenskir bændur geta ekki framleitt vöruna sína á sama verði og gerist og gengur erlendis. Þetta á við víðar, við erum t.d. að sjá út um alla Evrópu núna að bændur eru að mótmæla harðlega tollfrjálsum innflutningi frá Úkraínu vegna þess þrýstings sem hann hefur á þarlenda framleiðslu,“ segir Margrét. Þá áréttar hún að breytingar á tollum, eins og afnám þeirra, hafi áhrif á allan neyslumarkaðinn. „Það er mikilvægt í allri umræðu um tollvernd og öllu sem að henni lýtur að hugsa ekki í sílóum. Afnám tolla á eina kjöttegund mun bæði hafa áhrif á framleiðslu annarra kjöttegunda með tilliti til þess að minnkun á innanlandsframleiðslu, á t.a.m. hvítu kjöti, myndi hafa áhrif á fóðurmagn sem flutt yrði til landsins og myndi þar með leiða til hækkana á fóðurverði til annarra framleiðenda.“ Með öðrum orðum: Ef tollur á hvítt kjöt yrði fellt niður myndu áhrifin birtast fljótt hér. Íslenskum framleiðendum myndi fækka til muna, ef ekki alveg hverfa af markaði. Þar sem svína- og kjúklingabændur eru stærstu kaupendur af innfluttu fóðri hér á landi myndi áhrif á minni fóðursölu birtast í hærra verði í öðrum kjötgreinum og mjólkurframleiðslu, sem myndi aftur birtast í hærra smásöluverði sem gæti haft áhrif á neysluhegðun. „Tollvernd er ekki einungis vernd fyrir íslenska bændur, heldur alla þá sem koma að framleiðsluferlunum, t.d. fóðurframleiðandann, dýra- lækninn, eftirlitsstofnanir. Þannig að stóra spurningin er alltaf; ætlum við að styðja við innlenda atvinnuuppbyggingu? Eða, liggur hagur neytenda frekar í að styðja við framleiðslu í öðrum löndum og hafa fáa innflutningsaðila, frekar en að styðja við þá ótalmörgu framleiðendur og þjónustuaðila sem eru starfandi á íslenskum markaði?“ spyr Margrét. Landbúnaðarstefna eður ei Daði Már segir ótækt að ræða tollvernd án þess að ræða tilgang hennar. „Ef þú spyrð hagfræðinga þá segja þeir að óþvinguð viðskipti séu góð. Tollar draga úr viðskiptum og eru því neikvæðir því þeir skapa kostnað.“ Þegar talað er um landbúnaðarafurðir er hins vegar annað upp á teningnum. „Þetta stangast nefnilega á við markmið ríkja um að vera sjálfum sér nóg um einhvern hluta af eigin matvælaþörf. Vandamálið okkar hefur verið að við höfum ekki getað lagt mat á hvort aðgerðir, eins og tollvernd, séu góðar eða vondar, því við höfum ekki haft neina landbúnaðarstefnu.“ Erna bendir á að í fyrstu grein núgildandi búvörulaga sé núverandi landbúnaðarstefna innrömmuð í fáeinum setningum. Í lagagreininni kemur m.a. fram að stuðla eigi að framförum og aukinni hagkvæmni í búvöruframleiðslu og vinnslu og sölu búvara, að framleiðsla búvara til neyslu og iðnaðar, verði í sem nánustu samræmi við þarfir þjóðarinnar og tryggi ávallt nægjanlegt vöruframboð og að kjör þeirra sem stunda landbúnað verði í sem nánustu samræmi við kjör annarra stétta. Þá nefnir Erna að lndbúnaður sé afar mikilvægur í byggðalegu tilliti. „Í dag eru til dæmis um 500 kúabú hringinn í kringum landið sem skapa mikilvæg störf í sveitum og nærliggjandi byggðum þar sem úrvinnsla fer fram. Nú á dögunum fór t.d. í loftið auglýsing Domino´s sem hefur í 30 ár átt farsæl viðskipti við íslenska kúabændur og státar af því að nota 100% íslenskan ost. Allt hráefnið í þennan ost kemur frá kúabúum á Austurlandi og fer í framleiðslu á Mozzarella osti á Egilsstöðum. Þetta sýnir glöggt þá byggðalegu hagsmuni og samfélagslegu stoð sem felast í innlendri landbúnaðarframleiðslu.“ Byggðarhlutverk landbúnaðar Daði segir málefnaleg rök vera fyrir tollverndinni; að verja innlenda framleiðslu fyrir ósanngjarnri samkeppni á heimsmarkaði. „Landbúnaður sinnir margvíslegu hlutverki, eitt er fæðuöryggismál og tollverndin er partur af því að verja það. Hitt hlutverk landbúnaðar er að vera einhvers konar akkeri fyrir samfélög á landsbyggðinni. Þetta er frumframleiðsla, sem tryggir búsetu og skapar þar með möguleika fyrir aðra atvinnustarfsemi.“ Hann nefnir dæmi. „Banda- ríkjamenn héldu uppi byggð í Alaska meðal annars með framleiðslutengdum stuðningi í landbúnaði. Svo hættu þeir því og landbúnaður lagðist þar af. Það sem gerðist þá var að heilsársbúseta fyrir fjölskyldufólk lagðist líka af.“ Þannig brast forsenda fyrir grunnþjónustu. Á sama hátt hangir öll umræða um stuðning við landbúnað við byggðastefnu Íslands. „Að mínu mati höfum við alltaf verið á skrítnum stað með landbúnaðarstefnuna. Við tölum stundum um að hún sé byggðastefna, en yfirleitt ekki. Bændur hafa ekki viljað opnað á umræðu um að stuðningur verði mismunandi eftir því hvar á landinu framleiðslan fer fram. Það blasir samt við mér að þurfi að vera ef landbúnaðurinn hefur eitthvert byggðahlutverk, þá er rosalega mikill munur á því að styðja sauðfjárbú á Suðurlandi eða í Þingeyjarsýslu. Í Þingeyjarsýslu hefur sauðfjárbúið mikilvægu hlutverki að gegna í samfélaginu, en skiptir litlu máli á Suðurlandi. En það má ekki tala um þetta. Ef við ætlum að styðja sauðfjárræktina, er þá skynsamlegast að styðja hana úti um allt land?“ veltir Daði upp. Stuðningur við landbúnaðinn, eins og hann er uppbyggður í dag, endurspeglar ekki þetta byggða- hlutverk atvinnugreinarinnar að mati Daða. „Það er mikill munur á byggðaáhrifum landbúnaðar miðað við hvar á landinu framleiðslan fer fram. Af hverju tökum við ekki tillit til þess? Þetta er mjög erfið umræða fyrir bændur að taka vegna þess að það sem við erum raunverulega að tala um er að taka frá einhverjum bændum stuðning og láta aðra bændur fá hann. Þess vegna mun þetta aldrei koma inn í búvörusamninga. Þess vegna þarf stefnu stjórnvalda til að hafa frumkvæðið að slíkum breytingum, sé landbúnaði ætlað að vera byggðastefna.“ Meginmarkmið stjórnvalda ætti, að sögn Daða, að vera að styðja landbúnaðinn í að sinna betur því hlutverki sem þjóðin vill að landbúnaður sinni. „Sem er að framleiða matvæli, en líka að viðhalda byggð, samfélagi og stofnunum úti um allt land. Því er skrítið að við séum með sama stuðningskerfi fyrir alla óháð staðsetningu.“ Hvernig er sviðsmyndin án tollverndar? Aðspurð um áhrif þess að afnema alla tollvernd eru viðmælendur sammála um að landbúnaður á Íslandi myndi dragast saman. Tilteknar búgreinar myndu líklegast leggjast alveg af, t.d. kjúklingaframleiðsla og jafnvel svínabúskapur. Áhrif afnáms tolla yrðu geig- vænleg. „Lítill vafi er á því að væru þessar hindranir afnumdar með öllu myndu verða miklar tilfæringar á framleiðslu í heiminum og þar með hagþróun og búsetu í einstökum löndum. Sérhæfing í framleiðslu myndi vaxa og landbúnaður til að mynda myndi færast til tiltölulega fárra landsvæða þar sem ódýrast er að framleiða. Verulegar sviptingar í félagsgerð og stjórnmálalífi landanna myndu ugglaust fylgja. Það er því engin furða að ríkisstjórnir þjóðríkja kjósi að fara sér hægt í þessum efnum,“ segir Erna. Daði segir að afnám tolla gætu leitt til áhugaverðrar þróunar. Þar sem kostnaðarverð innlendrar framleiðslu sé hærra en erlendis sé ljóst að einhver framleiðsla myndi hverfa af innlendum markaði. Önnur framleiðsla gæti staðið keik. Þar sem innlend framleiðsla gæti haldið áfram myndi markaðshlutdeild íslenskra vara minnka. „Það yrði viðvarandi verðmunur, íslenska varan yrði alltaf dýrari en hún myndi samt seljast.“ Daði vísar til rannsóknar á greiðsluvilja íslenskra neytenda og leiðir að því líkum að eftir því sem minni markaðshlutdeild íslensk vara hefur, því hærra geti verðið verið samanborið við innflutta vöru. Alltaf verði þeir neytendur til staðar sem tilbúnir eru til að borga mikið fyrir íslenska framleiðslu. „Við sjáum þetta á muninum á innlendum og innfluttum gúrkum. Markaðshlutdeild íslenskra gúrka er mjög há en verðið er svipað og á erlendum gúrkum.“ Annað sé upp á teningnum í tómötum. „Þar er verðmunur mjög mikill á milli íslenskra og innfluttra tómata, því fólk er tilbúið að borga meira fyrir íslensku vöruna.“ Hann bendir þó á að ekki ætti að fara út í slíkar fabúleringar nema að setja málið í samfélagslegt samhengi. „Það er alveg ljóst að erlend framleiðsla heldur ekki uppi samfélagi á Hvammstanga, styður ekki rakarann og bakarann, ef svo má segja. Ytri áhrif innlendrar framleiðslu eru augljósar, t.d. í sauðfjárrækt. Hvernig litu Húna- vatnssýslurnar út ef það væri engin sauðfjárrækt? Þær væru eyðilegar.“ Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Virka daga 10-17 Laugardaga 11-15 Hjarta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum 2000 — 2022 Daði Már Kristófersson. „Það er mikill munur á byggðaráhrifum landbúnaðar miðað við hvar á landinu framleiðslan fer fram. Af hverju tökum við ekki tillit til þess? Þetta er mjög erfið umræða fyrir bændur að taka vegna þess að það sem við erum raunverulega að tala um er að taka frá einhverjum bændum stuðning og láta aðra bændur fá hann.“ Erna Bjarnadóttir. „Lítill vafi er á því að væru þessar hindranir afnumdar með öllu myndu verða miklar tilfæringar á framleiðslu í heiminum og þar með hagþróun og búsetu í einstökum löndum. Sérhæfing í framleiðslu myndi vaxa og landbúnaður til að mynda myndi færast til tiltölulega fárra landsvæða þar sem ódýrast er að framleiða.“ Margrét Gísladóttir. „Það er mikilvægt í allri umræðu um tollvernd og öllu sem að henni lýtur að hugsa ekki í sílóum. Afnám tolla á eina kjöttegund mun bæði hafa áhrif á framleiðslu annarra kjöttegunda með tilliti til þess að minnkun á innanlandsframleiðslu, á t.a.m. hvítu kjöti, myndi hafa áhrif á fóðurmagn sem flutt yrði til landsins og myndi þar með leiða til hækkana á fóðurverði til annarra framleiðenda.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.