Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Hinn ítalski bílaframleiðandi hefur
nú hafið framleiðslu á hinum smáa
og knáa Fiat 500 rafmagnsbíl.
Þetta er lítill borgarbíll þar sem
hönnun og fegurð eru í öndvegi.
Helst keppir 500 á móti öðrum
formfögrum rafmögnuðum
borgarbílum, eins og Mini Cooper
SE og Honda E. Bændablaðið tók
til prufu Fiat 500 í vel útbúinni La
Prima útgáfu.
Fiat endurvakti hinn klassíska
500 árið 2007 og hefur bíllinn
meira og minna verið óbreyttur
síðan þá. Þessi bíll er önnur kynslóð
endurfædds 500 og verður einungis
í boði sem rafmagnsbíll. Fyrri
kynslóðin verður áfram framleidd
fyrir þá kaupendur sem kjósa heldur
bensínknúna bifreið.
Þegar bíllinn er skoðaður utan
frá er erfitt að sjá hver munurinn
er á þessum nýja, samanborið við
þann gamla. Nýi bíllinn er stærri en
forverinn á alla vegu, en hlutföllin eru
þau sömu. Lítil ástæða er til að hverfa
frá útlitinu, enda er Fiat 500 einn
fallegasti bíll síðari tíma. Framljósin
eru skýrasta útlitseinkennið til að
þekkja þann nýja frá gamla. Í stað
heils hrings, eru þau hálfhringur að
neðan og LED bogi í húddinu. Á
meðan gamli bíllinn er afar góðlegur
á svipinn, þá má segja að sá nýi sé
með ygglibrún.
Hásæti og vönduð innrétting
Fiat 500 er hugsaður sem borgarbíll og
samkvæmt því er hann afar lítill. Þetta
kemur sér sérlega vel þegar kemur
að því að leggja í stæði. Útsýnið úr
bílnum er afar gott á flesta vegu og
skýr bakkmyndavél bætir upp það sem
upp á vantar.
Þegar sest er inn fyrir taka á móti
manni vönduð leðursæti og fríð
innrétting. Stýrið og helstu snertifletir
eru úr vönduðum efnum og áhugaverð
áferð er á því sem blasir helst við.
Neðri hlutar innréttingarinnar eru úr
hörðu og svörtu plasti.
Framsætin eru þægileg og sessan
nokkuð há, sem gefur gott aðgengi.
Smæðin er þó áþreifanleg þegar setið
er í bílnum. Hvirfillinn á undirrituðum
straukst í ramma glerþaksins, þó sætið
hafi verið í lægstu stöðu. Hæð þess
sem skrifar er 191 sentímetri og má
reikna með að hærri einstaklingar
muni ekki geta komið sér vel fyrir.
Auka farþegadyr
Þegar hurðin farþegamegin er upp á
gátt er hægt að opna lítinn hlera sem
gefur aukið aðgengi að aftursætunum.
Segja má að þeir Fiat 500 sem eru
útbúnir þessum aukahluti séu með
tvær og hálfa dyr fyrir farþega. Þetta
hjálpar líklega við að koma börnum
í barnabílstóla, en skiptir ekki
höfuðmáli fyrir létta og lipra farþega
á eigin fótum – hurðirnar eru hvort eð
er svo stórar.
Aftursætin eru tvö. Þau eru það
lítil að ekki má reikna með að geta
notað þau til mikilla farþegaflutninga.
Undirritaður gat ekki með nokkru
móti setið í þeim, en einstaklingur
sem er 170 sentímetrar getur þröngvað
sér inn og þraukað stuttar bílferðir.
Bæði aftursætin, ásamt fremra
farþegasætinu, eru með Iso-Fix
barnabílstólsfestingar.
Áðurnefnt glerþak hleypir mikilli
birtu inn í bílinn og er áhugavert að
geta horft til himins þegar ekið er um
stræti borgarinnar. Hliðargluggarnir að
aftan eru nokkuð litlir og skert útsýnið
fyrir aftursætisfarþega. Fiat 500 er
með 185 lítra skott, sem rúmar vel
nokkrar ítalskar handtöskur, eða fjóra
fulla Hagkaupspoka. Skotthlerinn er
stór, sem gefur möguleika á að flytja
stærri hluti ef sætin eru lögð niður.
Auðveldur í akstri
Allur akstur þessa bíls er eins
einfaldur og kostur er. Akstursstefna
er valin með að ýta á einn af fjórum
tökkum í mælaborðinu, sem koma í
staðinn fyrir gírstöng. Fiat 500 er vel
hljóðeinangraður, og þar sem þetta er
rafmagnsbíll, kemur enginn titringur
frá vél.
Mótorinn gefur 118 hestöfl og er
bíllinn afar kvikur – sérstaklega þegar
kemur að hraðabreytingum á lægri
hraða. Auðvelt er að skjótast inn í
hringtorg og svína fyrir bíla þegar
maður er í tímaþröng. Upplifunin er
um margt lík akstri go-kart bíla.
Hægt er að keyra án þess að
snerta bremsufetilinn, en þegar
inngjöfinni er sleppt nemur
bifreiðin alveg staðar. Sé bíllinn
þannig stilltur er bremsan einungis
notuð í neyðartilfellum. Mjög
fullkomin akstursaðstoð er í La
Prima útgáfunni. Bíllinn heldur sér
sjálfkrafa á miðri akrein. Jafnframt
heldur hann hæfilegri fjarlægð frá
bílnum fyrir framan, ásamt því
að stoppa og taka af stað. Akstur
í mjög þungri umferð verður því
áreynslulaus.
Skynjararnir sem eru nauðsynlegir
fyrir akstursaðstoðina hafa þann
ókost í för með sér að stór blindur
punktur er í miðri framrúðunni. Við
baksýnisspegilinn er stærðar-bákn
og þarf að beygja sig fram til að sjá
hvort gangandi vegfarandi eða bíll
komi frá hægri. Þetta atriði er afar
óþægilegt við akstur í íbúðagötum
eða við gangbrautir.
Margmiðlunarskjár virkar vel
Skjárinn í miðju mælaborðsins er
útbúinn fullkomnu margmiðlunar-
kerfi. Undirritaður tengdist þráð-
laust við Android Auto á augna-
bliki við afhendingu bílsins, og
fann kerfið símann á svipstundu í
hvert skipti sem bifreiðin var ræst
eftir það.
Undirritaður gat ekki stimplað
inn símanúmer á ferð, heldur þurfti
að fletta í gegnum tengiliðaskrá
símans. Síðastnefnda atriðið virðist
þó ekki alltaf eiga við.
Tölur
Fiat 500 La Prima er með 42
kílóvatta rafhlöðu. Samkvæmt
framleiðanda er hægt að aka 433
kílómetra á einni hleðslu. Sú tala
næst aldrei og gaf aksturstölva
bílsins upp 250 kílómetra drægni
í þessum prufuakstri. Hann tekur
allt að 85 kílóvatta hleðslustraum,
sem þýðir að hægt er að ná
85 prósent hleðslu á 35 mínútum.
Samkvæmt verðlista Ísband
kostar bíllinn nýr 5.850.000 krónur
með virðisaukaskatti.
Að lokum
Fiat 500 er einn fallegasti bíll
götunnar og er dæmi um bifreið
sem vekur hjá manni sterkar
tilfinningar vegna fríðleika. Í
samanburði við helstu keppinauta
sína frá Mini og Honda, þá er
rafhlaðan í þessum bíl mun stærri,
sem gerir bílinn að nothæfari kosti.
Veikasti hlekkur þessa bíls er
þó hátt verðið, og þarf ekki að
leita langt að mun praktískari
rafmagnsbíl á betra verði.
Enginn þeirra er þó jafn fríður
á velli.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Fiat 500
Fiat 500 er lítill og bráðsnotur bíll. Þetta er hinn ákjósanlegasti borgarbíll fyrir þá sem ferðast með fáa farþega og lágmarks farangur, en vilja gera það með
glæsibrag. Myndir / ÁL
Innréttingin er ítölsk hönnunarvara. Margmiðlunar-
skjárinn er eins og best gerist.
Sessan á framsætunum er nokkuð há. Aftursætin
henta farþegum undir 170 sentímetrum.
Stór skotthleri bætir að hluta til fyrir lítið skottið.
Hinn nýi 500 er stærri en forverinn á alla vegu. Hlutföllin hafa haldið sér og
erfitt að þekkja gamla og nýja í sundur.
Hægt er að fá bílinn með aukadyrum farþegamegin.