Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
GÖNGUBRÝR OG
ÖRYGGISGIRÐINGAR
____________________
FYRIR ÖRYGGI Á
VINNUSVÆÐUM
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Pressaðu á
gæðin
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Endurskoðun gildandi aðalskipulags er hafin og gefst nú tækifæri til að kynna sér
verkefnislýsingu fyrir þá vinnu og senda inn ábendingar eða sjónarmið um efni hennar
í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar fyrir 10. júní nk.
Lýsinguna er að finna í skipulagsgáttinni, skipulagsgatt.is og á vef sveitarfélagsins,
hornafjordur.is/adalskipulag þar sem einnig er að finna frekari upplýsingar um endurskoðunina.
Pappírsútgáfa af lýsingunni er einnig til sýnis á bæjarskrifstofum og bókasafni Hornafjarðar.
Kynning lýsingarinnar er skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir, umhverfis- og skipulagsstjóri
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
koma áfram en við erum með hærri
kostnað á flutningum. Félagslega er
þetta ekki gott þegar fækkar.
Þótt okkur sé að fækka hér þá er að
opnast tengingin við Barðaströndina.
Þá geta þeir skotið fóðri í sílóin á
sunnanverðum Vestfjörðum á sama
tíma og þeir koma hingað. Það eru
ákveðin ljós sem kvikna þó önnur
slokkni,“ segir Árni.
Öll mjólkin frá Vöðlum fer beint
í Örnu í Bolungarvík. Árni segir að
þau séu ekki í beinum viðskiptum
við mjólkurbúið, heldur fari allt í
gegnum Auðhumlu, eins og hjá
öðrum. „Þannig að við njótum þess
ekkert sérstaklega í okkar rekstri
hvort að Arna sé þarna eða ekki.
Upp á húmorinn er það mjög næs,“
segir Árni.
Mannanna verk erfiðust
Árni segir að veðurfarið eða náttúran
séu ekki helstu áskoranirnar sem
fylgi kúabúskap á Vestfjörðum.
„Aðalvandræðin eru allt það sem
fólk hefur búið til í kringum þetta.
Vextir og annað í bönkum – það
er miklu erfiðara að eiga við það.
Við ráðum við allt sem snýr að
náttúrunni – hitt tekur úr manni
orkuna og flækjustigið er svo mikið.
Auðvitað er ekkert annað í boði en
að slást við það allt saman.“
Nýverið hækkaði grundvallarverð
mjólkur og segir Árni hverja krónu
skipta máli í þessum rekstri.
„Ég tek hattinn ofan fyrir því að
verðlagsnefndin virðist vera farin
að virka. Það voru nokkur ár
þar sem hún bara virkaði ekki,“
segir hann.
Árni tekur virkan þátt í félags-
starfi bænda og skynjar að víða sé
rekstur búa orðinn þungur, enda eru
öll aðföng og vextir búin að hækka.
„Þetta væri kannski ekki voðalega
flókið eða erfitt ef maður væri
ekki með allar þessar skuldir út af
framkvæmdum og kvótakaupum.
Í okkar tilfelli væri þó enginn
rekstur ef ekki hefði fengist
fjármögnun – þá væri þetta bara
eyðijörð.“
Eftir miklar verðhækkanir á
öllum aðföngum og búnaði, segir
Árni að besta rekstrarhugsunin sé
að fara vel með hlutina, til að losna
við dýrar viðgerðir. „Það er einn
af kostunum við Jóa að hann er
svakalega þægilegur í öllu í kringum
vélar.“ Árni segir búskap ekki lengur
einungis snúast um umgengni við
dýrin, heldur sé vélavinna orðin
mjög stór þáttur í landbúnaði.
Mjög mikilvægt sé fyrir bændurna
á Vöðlum að gera allt sjálfir þar
sem takmarkað aðgengi sé að
landbúnaðarverktökum á svæðinu.
Allt hey innan fjarðar
Stórir bændur á Vestfjörðum hafa
löngum þurft að fara langar leiðir
eftir heyi. Árni segist aldrei hafa
þurft að fara styttra en í sumar eftir
að Vaðlar urðu eina kúabúið eftir í
Önundarfirði, en núna er allt heyið
sótt innan fjarðar. „Við höfum annars
farið í Dýrafjörð í nokkur ár.“
Um árabil heyjaði Árni tún á
Ingjaldssandi. „Það er alveg geggjað
að vera þar, en ég viðurkenni að það
er svolítið langt. Ég var þarna heilu
dagana og næturnar um hábjartan
sumardaginn – það var alveg
stórkostlegt að sjá sólina hníga og
sitja í traktornum þegar hún kom
upp. Það var ekkert símasamband
og algjör friður. Grasgefin tún og
alltaf trygg hey þarna.“
Aksturinn til að sækja rúllurnar
á Ingjaldssand er býsna langur,
en frá Vöðlum þarf að aka yfir
Gemlufallsheiðina yfir í Dýrafjörð
og þaðan yfir Sandsheiðina aftur yfir
í Önundarfjörðinn. „Það var passlegt
að fara tvær ferðir á dag, með öðrum
verkum á búinu. Ég tók fjóra tíma í
hverja ferð fram og til baka, með því
að stoppa og fá mér að éta.“
Jóhann Ingi Þorsteinsson og Árni Brynjólfsson reka saman kúabúið á
Vöðlum í Önundarfirði. Þeir segja flækjustigið að farsælum eigendaskiptum
vera hátt. Þökk sé góðu samstarfi taka þeir sér þann tíma sem þeir þurfa.
Vaðlar í baksýn. Mynd / ÁL