Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 Í fjósinu á Páfastöðum í Skagafirði er tækjabúnaður sem breytir ómeltanlegu tréni úr mykjunni í undirburð. Með því sparast kaup á innfluttu sagi og básamottur eru óþarfar. „Ég er alveg hissa á því að það skuli ekki fleiri vera farnir út í þetta,“ segir Sigurður Baldursson, bóndi á Páfastöðum. „Kýrnar eru alveg tandurhreinar. Fólk hefur orð á því sem kemur í fjósið að meira að segja halinn sé hreinn.“ Sigurður segist yfirleitt framleiða úrvalsmjólk, sem er góður mælikvarði á hversu mikið hreinlæti sé í kringum kýrnar. Þegar fjósið var byggt árið 2018 gerði hann samanburð á kostnaðinum við að gera hefðbundna bása annars vegar og mykjubása hins vegar. „Þetta var tvöfalt dýrara en að setja mottur í alla básana. Sparnaðurinn liggur í því að ég kaupi eiginlega ekkert sag. Maður þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að það sé ekki nóg til af undirburði. Þú ert bara að búa sjálfur til þinn undirburð í þínu eigin fjósi.“ Jafnframt segir Sigurður að gúmmímottur þurfi að endurnýja á tíu til fimmtán ára fresti, á meðan mykjubásar dugi í áratugi. Undir básunum er steypa og eru þeir með 20 sentímetra kanti aftast og fremst. Rýmið þar á milli er fyllt af undirburði. „Ég er með 15 til 20 sentímetra lag af trefjum í básnum. Þetta er virkilega mjúkt og þeim líður rosalega vel á þessu,“ segir Sigurður. Hann segir áferðina á undirburðinum ekki ósvipaða grófu hveiti. „Þetta er í raun þurrefnið í mykjunni. Ég pressa allan vökva úr henni og þá er þetta 40 prósent þurrt og svo þornar þetta á hálftíma þegar ég er búinn að dreifa þessu í básinn.“ Berjapressa á sterum Tækjabúnaðurinn sem þurrkar mykjuna er samkvæmt Sigurði eins og berjapressa á sterum. Snigill þrýstir mykjunni að sigti, sem vökvinn sleppur í gegnum, og verður þurrefnið eftir. Hægt er að stilla mótstöðuna og stjórna þurrefni afurðarinnar. Rafmagnsmótorinn í pressunni er sex kílóvött, sem er svipað afl og loftpressan fyrir mjaltaþjónana notar. Sigurður telur að pressan sé að öllu jöfnu látin ganga í fimm klukkustundir á viku. „Þegar ég dreifi þessu í básana nota ég liðlétting sem er með þúsund lítra trekt að framan. Undir trektinni er færiband og ég keyri meðfram básunum og puðra upp í,“ segir Sigurður. Að jafnaði þarf að bæta við undirburði á fimm til sjö daga fresti. Til að setja í alla básana í fjósinu, þarf að dreifa úr ellefu til tólf trektum, og telur Sigurður rúmmál hennar vera einn og hálfur rúmmetri. „Þetta er enga stund gert – maður er kannski hálftíma.“ Stenst vel samanburð Áður en nýja fjósið var byggt á Páfastöðum fyrir fimm árum var gamla fjósið með hefðbundnum básum og gúmmímottum. „Ég myndi aldrei fara í sagið og gúmmíbása aftur. Motturnar endast bara visst og þær eru rándýrar,“ segir Sigurður, aðspurður um samanburðinn. „Ég er með 130 kýr og ég held að það hafi bara verið tvö spenastig á þessum fimm árum. Þetta eru miklu mýkri básar og betri aðbúnaður fyrir kýrnar.“ Þeir ókostir sem Sigurður getur nefnt við þessa bása eru helst tveir. Í fyrsta lagi er meira ryk í fjósinu og í öðru lagi er ekki hægt að setja þetta í burðarstíur, „því ef þetta blotnar þá verður þetta að mykju aftur“. Hann hefur ekki lent í því að tæknin bili og hefur hann ekki miklar áhyggjur af því, þar sem búnaðurinn er allur mjög einfaldur. Sigurður telur að meðhöndlunin á húsdýraáburðinum sé auðveldari þegar búið er að skilja trénið frá vökvanum. „Ég er með stóran útitank og það sest aldrei þykkt lag efst. Skíturinn skilur sig ekki eins og hann gerði. Ég er enga stund að hræra í tanknum.“ Aðspurður hvort efnainnihald mykjunnar sé öðruvísi, segist Sigurður ekki geta fullyrt neitt með það. Hann reiknar þó með að einhver hluti köfnunarefnisins gufi upp við aukna meðhöndlun á skítnum. Sigurður segir að nauðsynlegur tækjabúnaður sé á boðstólum hjá mörgum íslenskum vélasölum. Hins vegar veit hann ekki til þess að nokkur annar bóndi hafi innleitt þessa tækni hér á landi. „Þetta er mjög algengt úti, sérstaklega í Hollandi, Þýskalandi og Danmörku. Ég sá þetta fyrst í Hollandi og féll alveg fyrir þessu,“ segir hann. Fyrir þá sem vilja kynna sér þetta frekar er hægt að fletta upp „compost bedding“ í leitarvélum. /ÁL LÍF&STARF Sími 570 9090 • frumherji.is Komdu með hestakerruna á næs skoðunarstöð og hafðu hana klára rir vorið og sumarið. Skagafjörður: Tandurhreinar kýr í mykjubásum – Fjós með engum gúmmímottum Þurrefnið er skilið frá mykjunni með „berjapressu á sterum“. Myndir / aðsendar.Í mykjubásunum haldast kýrnar hreinar og undirlagið er mjúkt. Áferðin minnir á gróft hveiti. Sigurður Baldursson, bóndi á Páfastöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.