Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 11.maí 2023
Fyrir rúmu ári var veflæga
markaðstorgið Matland (matland.
is) opnað matgæðingum sem
vilja kaupa íslenska búvöru og
matvæli.
Matland er í samstarfi
við bændur og aðra íslenska
matvælaframleiðendur, auk þess
að vera með eigin vöruþróun í
samstarfi við Pylsumeistarann.
Fyrir skemmstu voru snakkpylsur
úr ærkjöti markaðssettar, sem
Puttalingar heita. Tjörvi Bjarnason
er fram- kvæmdastjóri Matlands, en
hann er kunnur af störfum sínum
fyrir Bændasamtök Íslands til margra
ára. „Puttalingarnir eru snakkpylsur
úr ærkjöti sem er ættað frá Kristínu
og Sindra í Bakkakoti. Þetta er ný
vara á markaðnum og er hluti af
þróunarverkefni um nýjar matvörur
úr ærkjöti sem meðal annars hefur
hlotið styrk frá Matvælasjóði og úr
Þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar,“
segir hann.
Fleiri vörutegundir úr ærkjöti
„Puttalingarnir eru að mörgu leyti
líkir áþekkum snakkpylsum sem eru
vinsælar hjá íþróttafólki sökum hás
próteininnihalds. Þá hefur komið í
ljós að börn og unglingar kunna vel að
meta Puttalingana og bjóráhugafólk
er síður en svo eftirbátar þeirra því
snakkpylsurnar fara sérlega vel með
öli,“ bætir Tjörvi við.
Það er Matland og Sigurður
Haraldsson, kjötiðnaðarmeistari í
Pylsumeistaranum, sem standa að
verkefninu. „Auk Puttalinganna
höfum við þróað og framleitt í
tilraunaskyni ærskinku, salami,
kjötbollur úr ærkjöti og auðvitað
gömlu góðu bjúgun sem eru úr 98
prósent kjöti. Við erum í miðju kafi
í þessu og vörurnar lofa góðu, þær
eru bragðgóðar og þeir sem hafa
smakkað láta vel af. Sigurður í
Pylsumeistaranum hefur það sem
sérstakt keppikefli að framleiða
vörur sem eru lausar við öll óþörf
íblöndunarefni og innihalda
eingöngu kjöt, krydd og salt.“
Lágt afurðaverð fyrir ærkjötið
Tjörvi segir að kveikjan að því að
þróa kjötvörur úr ærkjöti hafi verið
hvað bændur fá sorglega lítið greitt
fyrir þessa kjötafurð. „Um þúsund
tonn falla til árlega af kindakjöti
sem lítið fæst fyrir. Raunar er
afurðaverðið svo lágt að það dekkar
vart sláturkostnað, hvað þá að borga
bóndanum laun.
Frá því að verkefnið hófst sjáum
við að það er hægt að gera ýmislegt
með ærkjötið.
LÍF&STARF
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
Vöruþróun:
Puttalingar eru snakk-
pylsur úr ærkjöti
Puttalingar frá Matlandi.
Sigurður Haraldsson, kjötiðnaðarmeistari í Pylsumeistaranum, og Tjörvi
Bjarnason, sem standa að verkefninu.
„Um þúsund tonn falla til árlega af kindakjöti sem lítið fæst fyrir. Raunar er
afurðaverðið svo lágt að það dekkar vart sláturkostnað, hvað þá að borga
bóndanum laun,“ segir Tjörvi.
Aðalfundur Bjarmalands, félags atvinnuveiðimanna
í ref og mink var haldinn þann 16. apríl á Brúnum í
Eyjafirði.
Starf félagsins hefur legið niðri í nokkur ár en að sögn
Garðars Páls Jónssonar, nýkjörins formanns, var þörf á
því að lífga félagið við til að halda áfram þeirri vinnu að
minnka það tjón sem refir og minkar valda og nýta þá
reynslu sem veiðimenn félagsins búa yfir.
Rúmlega þrjátíu félagsmenn voru mættir til fundar sem
einnig var sendur út á netinu fyrir þá sem gátu ekki komið.
Snorri Jóhannesson, fráfarandi formaður, á Augastöðum setti
fundinn og hafði framsögu þar sem hann fór meðal annars
yfir störf félagsins síðustu ár. Garðar segir að félagið árétti
þörfina á því að unnið sé áfram í því að halda stofnstærð á
ref og mink niðri og líst félagsmönnum illa á þær hugmyndir
sveitarfélaga um að komast ódýrt frá þessari skyldu sinni
með því að ráða „spákaupmenn“ til að sinna þessari vinnu.
Kjör veiðimanna versnað
Meðal þeirra mála sem voru til umræðu á fundinum voru
kjör veiðimanna, en að sögn Garðars hefur kostnaður vegna
þessara veiða hækkað gríðarlega undanfarin ár en skotlaun
nokkurn veginn staðið í stað og ekki fylgt vísitölu. „Það er
mikilvægt að leiðrétta kjör félagsmanna og greiða þeim
sanngjörn laun fyrir vinnu sína, akstur er í mörgum tilfellum
mjög mikill og lítið hefur verið gert í að greiða fyrir hann.
Svo dæmi sé tekið.
Svo verður að skoða hvernig á að taka á útungunar-
stöðvum refs og minks í friðlöndum og þjóðgörðum, það
er vafasamur gjörningur að ætla sér að hlúa að fuglalífi á
þessum stöðum en bjóða jafnframt upp á veisluborð fyrir
þá varga sem geta alist þar upp óáreittir.
Það hefur sýnt sig að lítil sem engin grenjaleit að vori
leiðir til þrálátra vandræða vegna dýrbíts á þeim svæðum
sem slíkt hefur verið reynt, félaginu líst illa á hugmyndir
sveitarfélaga að borga ekki fyrir leit þó svo að lögin gefi
þeim svigrúm til að gera þetta á þennan veg,“ segir Garðar.
Fráleitt að kostnaður lendi á æðarbændum
Að sögn Garðars ræddu félagsmenn um að bæta þurfi
vargvöktun kringum æðarvörp og finna þurfi grundvöll
til að leysa þau mál. „Ef grenjaleit er hætt á þeim svæðum
sem æðarvarp eru, stóreykst sú vinna sem þarf að sinna
til að halda ref frá varpinu. Þessi vinna lendir á eigendum
varpsins og þeirra að greiða fyrir hana, það er algjörlega
fráleitt að þessi kostnaður lendi á æðarbændum, oftast er
þessi kostnaðaraukning komin til vegna slælegrar vinnu
sveitarfélaga.
Auka þarf minkaveiði, það hefur sýnt sig ítrekað að
honum má halda niðri með góðri og réttri vinnu en um
leið og slakað er á stóreykst fjöldinn, nóg er komið af
rannsóknum á þessum málum, frekar er að setja stærri
fjárhæðir í að útrýma mink, allavega á þeim svæðum þar
sem það er hægt, og svo það sé áréttað, það er hægt að
útrýma mink á vissum svæðum.“
Sauðfjárbændur tilkynni tjón
Garðar minnir veiðimenn á að mikilvægt sé að sinna
rannsóknarvinnu samhliða vinnu sinni, með aukinni
þekkingu á bráðinni og lífi hennar veitist betri skilningur á
henni. Þá beinir hann því til sauðfjáreigenda að skrá niður
tjón vegna refa og tilkynni til Matvælastofnunar.
Í nýrri stjórn Bjarmalands eru þeir Garðar Páll Jónsson
formaður, úr Skagafirði, Daði Lange Friðriksson gjaldkeri,
úr Þingeyjarsveit, Þórir Indriðason úr Borgarfirði, Keran St.
Ólafsson frá Patreksfirði og Jón Kristinsson úr Reykjavík.
Félagar eru um 200 talsins.
/smh
Skotveiðifélagið Bjarmaland:
Þarf að minnka það tjón sem
refir og minkar valda
Garðar Páll Jónsson er nýr formaður Bjarmalands, félags
atvinnuveiðimanna í ref og mink. Myndir / Aðsendar
Bjarmaland, félag atvinnuveiðimanna, hefur verið lífgað við.