Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Ísland
LCI Lely Center Ísland
Jarð- og pinnatætarar til afgreiðslu
3 metra jarðtætari með jöfnunarvals
3.5 metra pinnatætari með jöfnunarvals
Eigum til afgreiðslu vel útbúnar
Zetor dráttarvélar með
ámoksturtækjum
Forterra HSX 120 - 117 hestafla
Forterra HSX 140 - 136 hestafla
Þekkt gæðamerki
Útbúnað má sjá á facebook.com/zetorisland
nema að afkoman sé góð. Það er
líka þessi félagslegi þáttur, að það
sé ekki sjálfsagt að fólk afsali sér
þeim lífsskilyrðum sem aðrir í
þjóðfélaginu búa við, til þess eins að
vera bændur. Það er frekar vonlaus
staða, eins og dæmi eru um, þegar
kannski tveir einstaklingar þurfa að
vinna fulla vinnu utan bús, en verja
svo afgangstímanum í að sinna
búrekstrinum,“ segir Steinþór.
Undirliggjandi bjartsýni bænda
Hann segir að það þurfi líka að
uppfæra nýliðunarstuðning í
landbúnaði. „Þar er einnig óvissa
um, í hvert sinn sem úthlutað sé,
hversu mikið hægt sé að búast við.
Potturinn er þar bara föst tala sem
þynnist svo bara út eftir því hversu
margir umsækjendur eru – og þeim
fer fjölgandi en kostnaður vegna
fjárfestinga hækkar.
Sem betur fer er alltaf undir-
liggjandi bjartsýni í bændum, því við
vitum að þrátt fyrir allt eru náttúruleg
skilyrði hér betri en víða. Hér eigum
við ýmsar auðlindir eins og gott vatn,
hreina orku og landbúnaðarland
sem er gaman og krefjandi að vinna
við, svo ekki sé minnst á fólkið og
þekkinguna. Þetta er líka þegar upp
er staðið frábær lífsstíll sem fylgir
þessu.“
Góður félagsskapur ungra bænda
Steinþór segist telja að ungt fólk
með áhuga á búskap sé upp til hópa
jákvætt og sé tilbúið að taka stökkið
– hann heyri minna af hinum sem
séu tvístígandi og kannski hverfa frá
því að fara þessa leið í lífinu. „Og
það er ein af áskorununum sem
landbúnaðurinn stendur frammi fyrir;
hvenær viljum við fá fólk í búskap?
Viljum við fá fólkið fljótlega eftir
nám – og þá þarf ákveðið átak til
að ná því inn – eða dugar að fólkið
komi inn þegar það er búið að stofna
fjölskyldu og kannski komið með
fjárhagslegt sjálfstæði til að geta
farið út í búskap sem er svo sem
ekkert síðra, þannig séð?“
Að sögn Steinþórs er starfsemi
Samtaka ungra bænda í nokkuð
föstum skorðum. „Þetta er góður
félagsskapur fólks með sömu ástríðu
og sömu áskoranir sem gott er að
deila skoðunum um. Það eru um 400
félagsmenn núna í samtökunum en
fólk svo sem misvirkt. Hagsmuna-
og félagsstarfið byggist aðallega
á fjórum landshlutasamtökum,
sem hvert er með eigin stjórn. Þau
sameinast síðan á aðalfundi sem
flakkar á milli landshlutanna. Annars
reynum við að vera öflugur málsvari
ungra bænda og lágmarka þröskulda
ungs fólks í landbúnaði svo sem
flestir sjái sér fært að vera með.“
Steinþór og Eydís eru með um 570 fjár, en sauðburður var ekki hafinn þegar blaðamaður var á ferð um Dalina.
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík - s. 787 9933
vpallar@vpallar.is - www.vpallar is
NÝ VERSLUN VAGNHÖFÐA 7