Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Sveinn Sæland, garðyrkjubóndi
á Espiflöt í Reykholti og fyrr
verandi formaður Sambands
garðyrkjubænda, átti um árabil í
samstarfi við Sigurgeir.
„Ég þekki hann best af hans
störfum sem eftirlitsmanns með
íslenskri garðyrkju og innflutningi
á plöntum – en við þekktumst í
um 45 ár, eða frá því við vorum
báðir við nám í Kaupmannahöfn.
Garðyrkjubændur báru óttablandna
virðingu fyrir honum, því þegar hann
birtist á vettvangi þá gat voðinn verið
vís ef bændur hefðu eitthvað verið
að slugsa varðandi sjúkdómahættu
á sínum býlum.“
Gekk sjálfur í málið
Sveinn segir að Sigurgeir hafi
verið nákvæmur, strangur og með
fastmótaðar hugmyndir – en um leið
sanngjarn. „Til marks um þetta má
nefna að þegar fyrsta blómatriphs
kom til landsins, sem er meindýr
í blómarækt, tók hann það mjög
föstum tökum að útrýma þessum
skaðvaldi á bæjum. Hann fylgdi
vel eftir þeim bændum sem höfðu
fengið þetta inn á býlin og ef menn
fylgdu ekki þeim fyrirmælum sem
hann lagði fyrir þá, mætti hann
einfaldlega á staðinn með sín tæki og
gekk sjálfur í málið,“ segir Sveinn.
„Hans aðalstarf sneri að garð
yrkjunni í heild sinni og fólst
meðal annars í því að hafa eftirlit
með innflutningi. Engin vara
skyldi fara inn í landið, hvort sem
það voru plöntur, græðlingar eða
blóm, sem ekki hefði viðeigandi
heilbrigðisvottorð.
Hann fór yfir allan þennan
innflutning samviskusamlega og af
mikilli natni. En því miður hefur verið
losarabragur á þessum hlutum síðan
hann hætti og stundum er það bara
tilviljunum háð hvort þessum atriðum
er fylgt nægilega vel eftir,“ bætir
Sveinn við. Samband garðyrkjubænda
heiðraði Sigurgeir 2019 og var
einhugur um það val á meðal
garðyrkjubænda, að sögn Sveins.
Stofnræktunin á kartöfluyrkjum
Blaðamaður heimsótti Sigurgeir
í húsnæði Landbúnaðarháskóla
Íslands á Keldnaholti í október
2018, þar sem hann var með
starfsstöð. Þá var hann formlega
hættur störfum hjá Matvælastofnun
en sinnti enn vefjaræktuninni af
mikilli ástríðu fyrir kartöflubændur
og var umhugað um að áfram
yrði vel haldið utan um hana og
stofnræktunina á kartöfluyrkjunum.
Þar sagði hann að kartaflan
væri sérstök að því leyti að útsæði
væru vatnsauðug og næringarrík
stöngulhnýði en ekki þurr fræ eins
og hjá öðrum nytjajurtum. Því væri
greið leið fyrir smitefni í gegnum
útsæðið í ræktun kartaflna ef ekki er
ástunduð sérstök smitfrí stofnræktun
á útsæði. Kartöflubændur þurfi því
að endurnýja reglulega sitt útsæði,
en flestum öðrum nytjajurtum sé
hægt að fjölga með fræsöfnun og
þurrkun – sem lágmarki líkur á
slíku smiti. Hægt sé að flytja inn
stofnútsæði erlendis frá, en ekki af
íslensku yrkjunum Gullauga, Helgu
og Rauðum íslenskum.
Vefjaræktunin aftur farin af stað
Einar Grétar Jóhannsson, Eyrarlandi
í Eyjafirði, starfaði í áratugi með
Sigurgeiri að ræktun stofnútsæðis,
en einungis þrír kartöflubændur hafa
séð um þessa hlið kartöfluræktar
á Íslandi. „Sigurgeir var guðfaðir
þessa verkefnis að bjarga íslensku
yrkjunum.
Gæði íslenskra kartaflna voru orðin
afar bágborin þegar Sigurgeir hefst
handa í björgunarstörfum sínum.
Kannski var fyrst og fremst
kunnáttuleysi um að kenna að
staðan var orðin þannig.
Mér er minnisstætt þegar
hann mætti eitt sinn á fund okkar
kartöflubænda, sem voru nú miklu
fleiri á þeim tíma en þeir eru í dag,
að hann sýndi okkur á sjálfum
kartöflunum hvað nákvæmlega
var að þeim sem við höfðum ekki
hugmynd um. Þarna voru skýr
einkenni um ýmsa sjúkdóma, eins
og vírusa, sem höfðu áhrif á útlit
og sprettu – sem við lærðum svo
að þekkja. Þetta segir margt um
hans góðu mannkosti, en hann var
einstaklega vandvirkur í öllu og
vildi gera eins vel og hægt var.
Það er honum að þakka að
við erum enn með þessa íslensku
stofna okkar sem voru að úrkynjast.
Þegar Sigurgeir hætti alveg
vefjaræktuninni tók því miður
enginn við henni og þessi ræktun
lá niðri í fáein ár.
Sem betur fer fór hún aftur í gang
á síðast ári hjá Matís, sem þýðir að
við stofnræktendur fáum aftur alveg
veirufrítt útsæði á þessu vori aftur
til ræktunar í gróðurhúsum okkar.
Sigurgeir hefði glaðst yfir því að
þetta sé komið aftur í réttan farveg,“
segir Einar Grétar.
/smh
Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur:
Bjargaði íslensku
kartöflunum
Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur lést á dögunum, en
hann markaði djúp spor á vettvangi plöntusjúkdómavarna á Íslandi
þar sem hann starfaði um áratugaskeið. Hann bjargaði íslensku
kartöfluyrkjunum, sem voru á hraðri leið til glötunar vegna úrkynjunar,
með því að hefja stofnræktun þeirra fyrir rúmum 40 árum þar sem hann
bjó til nýja veirufría stofna af gömlu yrkjunum með vefjaræktunartækni.
Sveinn Sæland, blómabóndi á Espiflöt í Reykholti.
Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur kom íslensku kartöfluyrkjunum til bjargar. Hér er hann í starfsstöð
sinni á Keldnaholti. Myndir / smh
Sigurgeir tók upp á því á Rannsóknastofnun landbúnaðarins að rækta eigin
ránmaura til að takast á við spunamaura sem gerðu gúrkubændum meðal
annars lífið leitt. Þannig losnuðu garðyrkjubændur við að þurfa að úða eitri
gegn þessum vágesti, en þá var ekki heimilt að flytja ránmaurana inn í landið.
LÍF & STARF
Vefjaræktaðar plöntur.