Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 59

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 Til sölu 68,5m2 iðnaðarbil til afhendingar strax í Breiðamýri 3, Selfossi. Allar nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson, löggiltur fasteignasali S: 896 9565, loftur@husfasteign.is Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar kemur fram að „Sett verða metnaðarfull markmið um að auka hlutfall hollra og næringarríkra innlendra matvæla til að treysta fæðuöryggi“. Síðastliðin ár hefur áskrif- endum hug- myndafræðinnar um fæðuöryggi fjölgað. Við sjáum þau áhrif sem utanaðkom- andi aðstæður geta skapað, þá til dæmis heimsfaraldur Covid og stríð í Evrópu. Atburðir sem Íslendingar hafa engin völd yfir en aðstæðurnar hafa þó áhrif hér á landi. Það verður sífellt mikilvægara að við tryggjum það að við séum sjálfum okkur næg til framtíðar og tryggjum fæðuöryggi landsins með hollu og næringarríku fæði. Fæðuöryggi byrjar hjá bændum Öflugur landbúnaður er þýðingarmikill fyrir fæðuöryggi í heimi þar sem aðfangakeðjur eru ótryggar auk þess sem ýmsar aðrar ógnir steðja að. Ef við ætlum að auka hlutfall hollra og næringarríkra innlendra matvæla þá verðum við að tryggja bændum landsins viðunandi rekstrargrundvöll og afkomu. Keðjan hefst þar. Ef starfsskilyrði bænda eru þess fallin að hrekja fólk úr stéttinni og hafa letjandi áhrif á nýliðun þá munum við væntanlega horfast í augu við talsvert brottfall. Þrotlaus vinna bænda er ekki sjálfgefin þó svo að margir hafi tekið henni sem sjálfsögðum hlut of lengi. Mikilvægi stuðnings ríkisins til innlendrar matvælaframleiðslu er óumdeilt. Stuðningurinn er ýmist beinn eða óbeinn. Sem dæmi má nefna aukna tollvernd á innfluttum afurðum og greiðslumark lögbýla. Þar eigum við langt í land. Innflutningur matvælaafurða hefur stóraukist á síðustu árum og virðist ekki linna, en hann hefur haft lamandi áhrif á innlenda matvælaframleiðslu, sem getur ekki keppt við risavaxinn verksmiðjubúskap sem uppfyllir ekki sömu kröfur og staðla og íslensk framleiðsla stenst. Þá til dæmis hvað varðar sýklalyfjaónæmi. Aukin tollvernd myndi bæði tryggja ríkinu auknar tekjur ásamt því að jafna aðstöðumun innlendrar og erlendrar matvælaframleiðslu. Alvarleg staða Við sjáum þá stöðu sem er við lýði í innlendri matvælaframleiðslu. Nú berast fregnir af því að innlend kjötframleiðsla hopi mjög skart og jafnframt að miklir rekstrarerfiðleikar séu í mörgum búgreinum. Því er spáð að innlend kjötsala dragist mikið saman á næstu árum. Framangreindur innflutningur og dvínandi rekstrargrundvöllur veldur því að framleiðsla á innlendri kjötafurð stendur ekki undir nauðsynlegri fjárfestingu. Með þessu áframhaldi munum við horfast í augu við gríðarlegan samdrátt í íslenskum landbúnaði, með tilheyrandi skorti á svína-, nauta- og lambakjöti, ef ekki verður gripið til aðgerða. Mörg býli berjast í bökkum og sumir kjósa að hætta. Kynslóðaskipti og nýliðun eru varla möguleg í núverandi rekstrar- og skuldaumhverfi. Þetta er þeim mun sorglegra þar sem mannauðurinn er til staðar. Fullt af áhugasömu og kraftmiklu fólki vill vinna við landbúnað og viðhalda hefðinni, sögunni og hugsjóninni. Íslenskur landbúnaður er nefnilega svo mikið meira en matvælin. Hann er samofinn sögu okkar og hefðum. Gegnum landbúnaðinn miðlum við menningu og sögu landsins. Landbúnaðurinn leggur í raun til litina, lyktina og leiktjöldin á því leiksviði sem innlendir og erlendir ferðamenn sjá. Án landbúnaðarins verður dauflegt um að litast í sveitum. Að mínu viti lýsir það hnípinni þjóð sem nærir ekki þann jarðveg sem landbúnaðinum eru lífsnauðsynlegur. Hvernig land viljum við byggja? Málefni landbúnaðarins og fæðuöryggi eru neytendamál, lýðheilsumál og byggðamál og Íslendingar þurfa að taka afstöðu. Við þurfum að ákveða hvernig land við viljum byggja til framtíðar. Hvort við viljum viðhalda núverandi stöðu og stefna í átt að tómlegri matvælaframleiðslu, en þá er það tímaspursmál hvenær við þurfum að reiða okkur að fullu á innflutning erlendis frá. Eða viljum við byggja upp land þar sem tækifærin eru til staðar, byggðir blómstra og bændur viðhalda gæðaframleiðslu með þá sérstöðu sem við Íslendingar þekkjum svo vel? Ef við veljum seinni afstöðuna þá þurfum við að grípa til alvöru aðgerða eins fljótt og auðið er og bæta rekstrarumhverfi bænda. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi þann 2. maí sl. vakti ég athygli á umræddu ástandi og benti forsætisráðherra á mikilvægi þess að stofnaður verði starfshópur sem fer ítarlega yfir núverandi stöðu og leggur til aðgerðir sem myndu rétta úr kútnum og koma innlendri matvælaframleiðslu aftur í réttan farveg. Ég bind miklar vonir við að slíkur starfshópur verði stofnaður og að þeim aðgerðum, sem hann leggur til, verði fylgt af stjórnvöldum. Þannig tökum við alvöru afstöðu og tryggjum fæðuöryggi landsins, sérstöðu Íslands og tryggjum blómlega byggð um allt land. Ingibjörg Ísakssen, þingflokks formaður Framsóknar og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis. Verðum að taka afstöðu Ingibjörg Ísakssen. Málefni landbúnaðarins og fæðuöryggi eru neytendamál, lýðheilsumál og byggðamál og Íslendingar þurfa að taka afstöðu. Mynd / Myndasafn Bbl Mar Design. Við sérhönnum fyrir þig lyklakippur, magnet, nælur úr stáli, plasti eða viði. Ertu að leita eftir einstökum minjagrip fyrir ferðamenn eða gjafir. Fáðu frekari upplýsingar info@designsbyelin.com eða Elín sími 6660632. Við sérhönnum fyrir þig lyklakippur, segla, nælur úr stáli, plasti eða við. Ertu að leita eftir einstökum minjagrip fyrir ferðamenn, eða til gjafa? Fáðu frekari upplýsingar hjá: info@designsbyelin.com eða Elín, sími 6660632. Mar Design. Við sérhönnum fyrir þig lyklakippur, magnet, nælur úr stáli, plasti eða viði. Ertu að leita eftir einstökum minjagrip fyrir ferðamenn eða gjafir. Fáðu frekari upplýsingar info@designsbyelin.com eða Elín sími 6660632. Mar Design. Við sérhönnum fyrir þig lykla ippur, magnet, nælu úr stáli, plasti eða viði. Ertu að leita eftir einstökum minjagrip fyrir ferðamenn eða gjafir. Fáðu frekari upplýsingar info@designsbyelin.com eða Elín sími 6660632. Mar Design
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.