Bændablaðið - 11.05.2023, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
LÍF&STARF
Hugmyndir:
Bændahjálp og
kindaleitari
– Bændur og búalið nýta sér ýmsa tækni í daglegum störfum
Tækniþróun er í veldisvexti og ýmis ný og nýleg tækni kemur að góðum notum í búskap. Mynd / Kaleb Kendall.
Nýsköpunarkeppni grunn-
skólanna, NKG, hefur getið af sér
marga forvitnilega hugmyndina
og sumar hafa raungerst en aðrar
ekki, eins og gengur.
Ein margra hugmynda sem
komu fram fyrir áratug var í
flokknum Landbúnaður og nefndist
Bændahjálp, runnin undan rifjum
ungra nemenda við Egilsstaðaskóla.
Um var að ræða hugmynd
að appi tengdu hormóna- og
hjartsláttarskynjara til að létta störf
bænda í sauðburði og hlaut hún
þriðja sæti í keppninni.
Sú hugmynd sem hreppti
gullverðlaun í NKG það sama
ár nefndist Kindaleitari og kom
frá nemanda í Hofsstaðaskóla
í Garðabæ. Sú fjallaði um að
bændur ættu hefðbundið GPS-
tæki, hver kind væri skráð í það
með örflögubúnaði og mætti þá
sjá staðsetningu hverrar kindar í
rauntíma á tölvuskjá. Myndi það
gagnast við að heimta fé af fjalli og
sjálfheldu, t.a.m. í fönn.
Frá hugmynd til veruleika
Nú mætti spyrja hvernig hugmynd-
unum hafi reitt af og hvort eitthvað
viðlíka sé í notkun meðal bænda.
Fyrst er að nefna að bændur
nýta núorðið í allmiklum mæli
vefmyndavélakerfi í fjárhúsum sem
gerir að verkum að ekki þarf endilega
fulla viðveru í húsunum heldur má
fylgjast með í síma hvernig mál
standa hverju sinni og bregðast
við eftir þörfum. Slíkt kerfi er ekki
aðeins gagnlegt á sauðburðartíma
heldur getur það einnig komið í
góðar þarfir meðan fé er á húsi til
að kanna reglulega hvort ekki sé allt
með felldu.
Unnsteinn Snorrason, verkefna-
stjóri hjá Bændasamtökum Íslands,
segir aðspurður að á bilinu 20–30%
bænda á Íslandi noti vefmyndavélar
í fjárhúsum til hægðarauka og sé
tæknin einföld og gagnleg. Um það
hvernig hún gæti þróast segir hann að
hugsa mætti sér að gervigreind geti í
framtíðinni sagt til um hvenær hver
kind er komin að burði og þannig
gert eftirlit bóndans enn skilvirkara.
Hvað hugmyndina um Kinda-
leitara varðar má segja að hún hafi
raungerst í því að setja má ólar með
staðsetningartæki um háls skepna
og fylgjast með ferðum þeirra á
þann hátt. Það er þó kostnaðarsamt,
rafhlöðuending getur verið vandamál
og því er ekki um almenna notkun
bænda á staðsetningartækjum á
skepnur að ræða hér á landi. GPS-
tæknin er meðal annars notuð
í nákvæmnisbúskap til að afla upp-
lýsinga og stjórna ýmsum þáttum,
í rannsóknarskyni, svo sem hjá
Landgræðslunni og fleiri aðilum sem
hafa á þennan hátt til dæmis kannað
atferli sauðfjár hvað varðar beit og
hegðun. Sömuleiðis er með þessum
hætti rannsakað farflug fugla, svo
sem gæsa og far hreindýra.
Erlendis hefur sú leið verið þróuð
að búa til sýndarveruleikagirðingar
um tiltekna reiti þar sem skepnur eru
haldnar og má að sögn Unnsteins
ætla að sú tækni gæti rutt sér
til rúms hér á landi þegar tímar
líða. Fari skepna of nálægt slíkri
girðingu fær hún viðvörun í formi
hljóðmerkis, sem fer síhækkandi
eftir því sem nálægðin verður meiri,
en fari dýrið yfir hin skilgreindu
mörk fær það vægan rafstraum og
sýndarveruleikagirðingin færist
nokkru utar til að reyna að fá dýrið til
að fara ekki lengra með endurteknum
aðvörunum. Að sögn Unnsteins
mætti hugsa sér að í framtíðinni verði
jafnvel hægt að smala fé með slíkum
skilgreindum línum sem myndu
smáfærast eftir því sem féð rynni af
fjalli og nær ákvörðunarstað.
Drónar æ algengari
Í dag er notkun dróna hins vegar
útbreidd meðal bænda og slík
flygildi notuð í ýmis verkefni, svo
sem að stýra hjörðum eða einstökum
skepnum, til ýmiss eftirlits á
bújörðum, til að leita að skepnum
með t.d. hitamyndavél og fleira í þá
veruna.
Unnsteinn bendir á að meðal
stærstu tæknilegu vinnuhag-
ræðingarþátta í búskap hin síðari
ár sé eyrnaörmerkið og viðeigandi
rafrænn lesari. Fleiri hugmyndir
hafa birst í NKG á síðustu árum, þar
með talið um sauðfjárteljara 2018
og fóðurskammtara 2022. Krakkar í
5.–7. bekk skiluðu inn splunkunýjum
hugmyndum laust eftir miðjan
apríl síðastliðinn og aldrei að vita
hvað leynist þar í grasrótinni sem
orðið gæti íslenskum landbúnaði til
framdráttar. /sá
Lögfræði:
Búvörusamningar
til umfjöllunar
Búvörusamningar geta ekki
talist ígildi kjarasamnings og
Bændasamtök Íslands geta
ekki talist vera stéttarfélag
búvöruframleiðenda, að mati
Önnu Kristínar Agnarsdóttur
lögfræðings, sem nýlega fjallaði
um búvörusamninga í lokaritgerð
sinni frá lagadeild Háskólans á
Akureyri.
Anna Kristín fjallaði um
framkvæmd búvörusamninga og
helstu réttarheimildir sem liggja
samningunum til grundvallar.
Í lokaorðum ritgerðarinnar segir
að landbúnaðarréttur hafi ekki
fengið mikla umfjöllun og að skrifin
hafi því reynst vandasöm enda erfitt
að fletta upp hinum ýmsu álitaefnum
sem upp hafi komið.
„Markmið verkefnisins var
að skoða hvert fyrirkomulag
búvörusamninganna sé, hver sé
fjárstuðningurinn sem veittur er
samkvæmt ákvæðum samninganna
og svo hver starfsskilyrði greinar-
innar séu. Með því var leitast við
að svara rannsóknarspurningum
verkefnisins:
Eru búvörusamningarnir kjara-
samningar bænda í íslenskum
landbúnaði? Hvers eðlis eru
búvörusamningarnir? Hvert er
skuld bindingargildi og réttaráhrif
samninganna?“
Bændasamtökin ekki stéttarfélag
Farið er yfir forsögu og aðdraganda
búvörusamninga og fjallað um
þrjá af fjórum samningum.
„Samningarnir eru skuldbindandi
fyrir ríkissjóð samkvæmt þeim
lagafyrirmælum sem þeir eru settir
samkvæmt, hvað varðar fjárframlag
og þær fjárhæðir sem getið er hverju
sinni. Ríkisstjórnin getur ekki
breytt samningunum einhliða
heldur þarf tilkomu samningsaðila
sem kemur fyrir hönd bænda,
en það eru Bændasamtök
Íslands,“ segir Anna Kristín.
Þá segir að þó margt sé líkt
með búvörusamningum og kjara-
samningum geta hinir fyrrnefndu
ekki talist ígildi kjarasamninga
þar sem þeir kveða ekki á um þau
lágmarksréttindi sem kjarasamningar
gera, s.s. um lágmarkslaun, vinnutíma,
orlof og veikindarétt.Anna Kristín
gerir hlutverk Bændasamtakanna að
umfjöllunar efni í þessu samhengi.
Þótt samtökin gæti hagsmuna bænda
og undirriti búvörusamninga fyrir
þeirra hönd, fari með fyrirsvar og beiti
sér fyrir kjörum bænda, skilgreina
samtökin sig ekki sem stéttarfélag
samkvæmt samþykktum. Mörkin
séu þó óskýr.
„Niðurstaðan er þó sú að samtökin
geta ekki talist vera stéttarfélag í
skilningi laga um stéttarfélög og
vinnudeilur.“ Anna Kristín segir að
áhugavert hafi verið að bera saman
búvöru samninga eins og þeir eru í
dag við fortíðina. „Meginmarkmiðið
var að koma í veg fyrir stóriðnað í
íslenskum landbúnaði en svo sjáum
við að raunin virðist vera á leið annað
í dag,“ segir hún. /ghp
Anna Kristín Agnarsdóttir
lögfræðingur.
STÁLGRIND TIL SÖLU!
495 fm2 (18x27,5m)
Nánari upplýsingar veitir
Gísli Már 842-5462 | gislia@veritas.is
<
< <
<
6 m
< <
6 m
< <
6 m
< <
3
.2
m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
< 5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
18 m
27.5 m
<
<
4
.1
m
5.
5.
5.
5.