Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
FRÉTTIR
Á vormánuðum 2021 var heima-
slátrun á sauðfé og geitum í litlum
sauðfjár- og geitasláturhúsum til
markaðssetningar heimiluð, með
tilskildum leyfum.
Fyrir sláturtíð það ár fengu
þrír bæir sláturleyfi; Grímsstaðir
í Reykholtsdal í Borgarfirði,
Lindarbrekka í Berufirði og
Birkihlíð í Skagafirði – og er staðan
nær óbreytt í ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
Freydísi Dönu Sigurðardóttur,
fagsviðsstjóra eftirlits búfjárafurða
hjá Matvælastofnun, var Lindar
brekka með skilyrt, tímabundið leyfi
sem hefur ekki verið endurnýjað.
Engar fleiri umsóknir hafa borist
stofnuninni. „Lindarbrekka myndi
þurfa að biðja um endurúttekt
fyrir slátrun. Það er mjög misjafnt
hvað við vitum um hugsanlegar
umsóknir. Það er allavega lítið
um fyrirspurnir eða óskir um
leiðbeiningar. Kannski ein á sex
mánaða fresti,“ segir Freydís.
Hefur trú á því að þetta komi
smám saman
Talsverð undiralda hafði verið í
þessum málum í aðdraganda þess að
reglugerð var gefin út sem heimilar
rekstur lítilla sláturhúsa á lögbýlum.
Ákall var meðal sauðfjárbænda
um að leyfi fengist til að slátra
heima – og vinna afurðir sínar til
markaðssetningar – í því skyni að
auka möguleika þeirra til frekari
verðmætasköpunar. Í fararbroddi
þeirra voru Ragnheiður Lára
Brynjólfsdóttir og Þröstur Heiðar
Erlingsson, bændur í Birkihlíð. Þau
fengu stuðning fyrir rúmu ári síðan
úr Markaðssjóði sauðfjárafurða til
að halda ókeypis námskeið fyrir þá
bændur, sem hefðu hug á því að
sækja um að reka slík sláturhús.
Að sögn Ragnheiðar Láru voru
viðtökurnar betri en þau bjuggust við
og voru bæir úr öllum landshornum
með sem þeim fannst skipta miklu
máli. „Bændurnir á námskeiðunum
voru ekki allir ákveðnir í að fara út
í þetta en fannst mjög spennandi að
vera með og vita hvað þarf að gera
til að fá leyfið. Sumir reyndar ætla
í þetta og eru að vinna í því en ætla
alveg að taka sér tíma í það. En við
vitum um tvo bæi sem eru komnir
vel á veg og eru að stefna á þetta.
Við höfum samt fulla trú á að þetta
komi smám saman. Þegar þú ert
farinn að selja sjálfur þína vöru á
miklu hærra verði en þú færð fyrir
hana í sláturhúsinu ertu kominn í
allt annað hagkerfi. Vinna í þinni
eigin kjötvinnslu getur þá komið
í staðinn fyrir vinnu utan heimilis.
Það vantar líka alveg að forystu
menn bænda sýni þessu einhvern
áhuga, en það hefur eiginlega aldrei
verið, þrátt fyrir samþykktir frá
aðalfundum um að lyfta þessum
málum. Fyrrum stjórnir Lands
samtaka sauðfjárbænda og Bænda
samtaka Íslands voru algjörlega
gagnslausar á þessum tíma sem
við vorum að brasa við þetta, þeir
formenn sem störfuðu þá sýndu
þessu þó aðeins áhuga,“ segir hún.
Hræðsla við Matvælastofnun
„Maður heyrir það alltaf að fólk er
bara skíthrætt við samskiptin við
Matvælastofnun og gerir í raun allt
sem það getur til að komast hjá því
– hvað þá að fyrra bragði. En eins
og við höfum sagt að þá er þarna
gott starfsfólk líka sem hefur reynst
okkur ágætlega.
Nú erum við að koma okkur
upp betri aðstöðu til að slátra og
þá horfum við mjög mikið til að í
framtíðinni munum við fá leyfi til
að slátra stórgripum heima. Enda
trúum við því ekki að það ætti að
vera langsótt. Spendýr á fjórum
fótum, bara aðeins stærra. Ætli
það verði ekki bara næsti slagur,“
segir Ragnheiður.
„Við fengum langtímaleyfi í
október í fyrra til að slátra sauðfé
og ætlum að reyna að byrja að slátra
í ágúst núna. Við erum alveg að
verða búin með okkar lambakjöt
en í fyrra, eins og undanfarin fimm
ár þar á undan, höfum við selt allt
okkar lambakjöt sjálf. Í fyrrahaust
vorum við með rétt tæplega þrjú
hundruð sláturlömb og því erum við
mjög ánægð með hvernig staðan er
hjá okkur núna.
Matarferðamennska
kemur sterk inn
Ragnheiður Lára telur að mörgum
vaxi það í augum að fara að selja
kjötið sitt sjálfir en það sé mikil
vakning í sölu beint frá býli og
matarferðamennska hafi komið mjög
sterkt inn að undanförnu.
„Við finnum það mjög vel að það
eru fleiri sem vilja koma til okkar og
versla og við erum líka að taka á móti
alls konar hópum sem vilja kynna sér
heimavinnslur sem og heimaslátrun.
Og í þessu ferli okkar öllu, að berjast
fyrir heimaslátrun, verður maður að
hafa valdið með sér, það er að segja
Alþingi. Reglugerðarfarganið er
bókstaflega allt að drepa og þá er ég
ekki bara að tala um heimavinnslur
og bændur.
Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi
landbúnðarráðherra, skildi þörfina
mjög vel að koma sauðfjárbændum
út úr þeim klafa að geta aðeins
farið með lömbin sín á sláturhús og
fá engu ráðið með verðið og eiga
sauðfjárbændur honum miklar þakkir
skildar fyrir sinn stóra þátt í útgáfu
reglugerðarinnar sem heimilaði þetta.
Íslendingar sem hafa ferðast um
heiminn tala mikið um það að það
sé svo gaman að keyra um sveitirnar
úti í heimi og geta keypt til dæmis
jarðarber á einum bæ, plómur á þeim
næsta, heimagerðan ost á þeim þriðja
og mjólk á þeim fjórða.
Alltaf eru fleiri og fleiri bændur
hérna á Íslandi að opna litla búð
heima á sínum bæjum þar sem
þeir bjóða upp á sínar afurðir. Það
er gaman að segja frá því að hér í
Skagafirði er hægt að keyra heim á
bæi og versla nauta, kvígu, lamba
og geitakjöt, lífrænt ræktað grænmeti,
kál, gúrkur og tómata sem og
geitaost. Fólki finnst þetta æðislegt.
Ekki drepa íslenskan landbúnað, þið
sem stjórnið. Leyfum nýsköpuninni
að blómstra áfram í allri sinni dýrð og
minnkum reglugerðafarganið, öllum
til hagsbóta. Ábyrgð þingmanna er
gríðarlega mikil.“ /smh
Heimaslátrun á lögbýlum:
Engin fjölgun bæja með leyfi
fyrir næstu sláturtíð
Þröstur Heiðar Erlingsson og Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir, bændur í
Birkihlíð, úrbeina læri. Myndir / Birkihlíð
Í Birkihlíð er nú unnið að því að bæta sláturaðstöðuna. Hér má sjá Þröst í rými sem
er bak við kjötvinnsluna og þar munu lambaskrokkarnir koma inn og verða settir
á bekk og gæran tekin af með talíu. Þá er unnið að því að breyta súrheysgryfjum
í innangenga frystiklefa, sem verða tæplega þrjátíu fermetrar að stærð.
Landbúnaður á norðurslóðum
til umræðu í Færeyjum
Framlag búskapar á norðurslóðum
til sjálfbærra staðbundinna
lífhagkerfa er yfirskrift ráðstefnu
Samtaka jaðarsvæða landbúnaðar
í norðri, Circumpolar Agricultural
Association (CAA), sem haldin
verður í Færeyjum í september
næstkomandi.
Ráðstefnan átti fyrst að fara fram í
júlí á síðasta ári en var frestað vegna
innrásar Rússa í Úkraínu. Mun þetta
vera ellefta landbúnaðarráðstefna
samtakanna CAA sem stofnuð voru
árið 1995.
Á ráðstefnunni er skapaður
umræðuvettvangur um landbúnað
á norðurslóðum á víðum grundvelli.
Meðal efnisþátta verða tæknivæðing
í landbúnaði og aðgengi að
mörkuðum, plöntukynbætur og
genafjölbreytileiki, möguleikar
nýrra landflæða sem skapast vegna
loftslagsbreytinga og samspil
ferðaþjónustu og staðbundinnar
framleiðslu.
Í viðtali við Bændablaðið árið
2021 sagði Tróndur Leivsson,
yfirmaður Landbúnaðarstofnunar
Færeyja og forseti samtakanna
CAA, að ráðstefnan væri hvorki
stíf vísindasamkoma né pólitískur
vettvangur, heldur góð samsuða sem
hefur það að markmiði að stuðla
að áhuga á landbúnaðarmálum á
norðurslóðum.
Ráðstefnan mun fara fram í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn
daganna 5.–7. september og er hún
öllum opin. Nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu samtakanna:
cirumpolaragriculture.com. /ghp
Tróndur Leivsson, forseti Circum-
polar Agricultural Association.
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar