Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Stórveldið Kering, eigandi tísku-
veldanna Gucci, Balenciaga, YSL,
Alexander McQueen og Bottega
Veneta, hefur undanfarið verið milli
tannanna á fólki vegna umdeildrar
auglýsingaherferðar Balenciaga.
Er þetta ekki í fyrsta skipti sem
auglýsingaherferðir undir hatti Kering
þykja truflandi og þó sú síðasta sé – ef
skilin rétt – tenging við barnaklám,
hefur stórveldið lýst sakleysi sínu,
beðist margfaldlega afsökunar og gefið
frá sér þá yfirlýsingu að innan Kering
megi gera mistök, þó ekki oftar en
einu sinni. Átti umrædd auglýsing ekki
rætur sínar að rekja til misnotkunar
barna í bland við BDSM, heldur til
pönkmenningarinnar, en á þeim má
sjá börn haldandi á leðurklæddum
böngsum með hálsólar.
Leðurklæddu bangsarnir reyndust
þó vera veski.
Til viðbótar og
ekki til að slökkva
neina elda voru í fram-
haldinu birtar auglýsingar um
annars konar veski Balenciaga, nógu
sakleysislegu á að líta, þar sem það lá
ofan á nokkrum skjölum í óreiðu. Það
sem gerði útslagið í þetta skipti var að
ef glöggir neytendur lesa skjölin má
þar finna úrskurð dómsmáls er varðar
misnotkun barna.
Vill Balenciaga meina að þeir
hafi ekki haft hugmynd um neitt
ósæmilegt í auglýsingunni þó að
við vinnslu auglýsingaherferða eigi
hönnuðir jafnan í nánu samstarfi
við þau fyrirtæki sem unnið er fyrir.
Einhver innan Balenciaga hefur
því veitt samþykki sitt. Samkvæmt
fréttum hefur Balenciaga höfðað
mál gegn fyrirtækinu sem framleiddi
auglýsingarnar, North Six, og
hönnuðinum Nicholas Des Jardins
upp á 25 millj. Bandaríkjadala.
Öðrum að kenna
Segir yfirlýsing Balenciaga: „Að þessi
ósamþykktu skjöl hafi verið sett þarna,
var afrakstur gáleysis. Við höfum lagt
fram kæru vegna þess og eigum von á
að réttlætinu verði fullnægt. Þó tökum
við fulla ábyrgð á vanhæfni okkar er
kemur á eftirliti
og gerum
okkur grein
fyrir að við
hefðum getað
gert hlutina
öðruvísi.“
Benti lög-
fræðingur Des
Jardins á að
engin neikvæð
meining hefði
verið á bak við
skjölin sem birtu
dómsúrskurð er varðaði kynferðisbrot
á barni, þetta hefðu verið leikmunir.
Að auki voru fulltrúar frá Balenciaga
viðstaddir myndatökuna, höfðu umsjón
með henni og meðhöndluðu pappíra og
leikmuni. „Því er fullljóst að hvorki
hönnuðurinn né fyrirtækið North Six
báru ábyrgð á lokavali auglýsingar úr
tökunum,“ bætti lögmaðurinn við.
Nú, nokkrum vikum síðar, hefur
Gucci fengið á sig högg vegna
auglýsinga sem þykja á svipaðri línu
og við koma söngvaranum Harry
Styles, en hann hefur átt í samstarfi
við merkið undir línunni HAHAHA.
Auglýsingarnar sýna söngvarann
sjálfan, íklæddan stuttermabol með
mynd af bangsa, en í bakgrunni er
barnadýna sem á að vera tilvísun í ...
hvað? Fullorðinn maður í bangsabol
með barnadýnu gefur mögulega til
kynna að þarna sé verið að lokka til
sín börn.
Línudans
Eftir þennan lestur er ekki vel hægt
að gera sér grein fyrir hvort þarna
er um að ræða einbeittan brotavilja
eða sé verið að reyna hversu langt sé
hægt að ganga án þess að stíga yfir
línu velsæmis.
En það er vel hægt að ganga slíkan
línudans án þess að fara svo gróflega
að verki að níðst sé á börnum. Flestir
muna eftir Benetton-auglýsingunum
sem risu hvað hæst í kringum tíunda
áratuginn og fengu hjörtu margra
til að slá aukaslag. Muna einhverjir
sjálfsagt eftir auglýsingum sem sýndu
fólk af mismunandi kynþáttum í sátt
og samlyndi. Einnig voru fréttamyndir
nýttar sem auglýsingar og eru
minnisstæðar myndir af eyðnismituðum
sjúklingi í faðmi fjölskyldu sinnar,
yfirfullu skipi albanskra flóttamanna
á leið til Ítalíu og morði á háttsettum
meðlimi mafíunnar í Palermo. Voru
auglýsingarnar gagngert gerðar til
að vekja fólk til umhugsunar, sýna
jafnræði kynþátta, samkynhneigðra
og annarra minnihlutahópa auk þess
að ýta undir frið og samvinnu milli
ólíkra menningarheima.
Kaldhæðnisleg von?
Bar þar hæst á lofti „UN-HATE“
herferðin sem fór í loftið þann 16.
nóvember árið 2011 og beint til
jafns á prent- og vefmiðla um heim
allan. Meginþema herferðarinnar
var „kossinn“, algildasta tákn
ástarinnar og þá táknrænar
myndir sátta. Þó með keim af
kaldhæðnislegri von og uppbyggi-
legri ögrun, ætlaðri til að vekja
almenning til umhugsunar um
hvernig stjórnmál, trú og hugmyndir,
jafnvel þegar þær eru ólíkar, geti samt
leitt til samræðna og miðlunar.
Meðal „kossa“ mátti finna Barack
Obama og Hugo Chavez, forseta
Venesúela, Benedikt XVI, þáverandi
páfa kaþólsku kirkjunnar og Ahmed
Mohamed el-Tayetb, æðsta leiðtoga
múslima í Egyptalandi og leiðtoga
S-og N-Kóreu. Undir sömu herferð
auk þessara fallegu kossaauglýsinga,
mátti einnig finna auglýsingar sem
stimplaðar voru „Untouchable“ og
áttu að vísa í rétt barna til þess að fá
að vera börn. Ekki fórnarlömb stríðs,
misnotkunar, óholls fæðis eða annarra
aðstæðna.
Í dag hefur fyrirtækið hins vegar
fengið högg á fingurna fyrir auglýsingu
er sýnir börn á nærfötum og þykir það
haldast í hendur við auglýsingaherferðir
Kering sem um var fjallað í byrjun
greinar. Vill fólk meina að óþarfi sé
að birta slíkar auglýsingar sem geti
glatt frán augu misindismanna.
Og dæmi nú hver fyrir sig. /SP
Jaðrakan er fremur stór vaðfugl, hann er alfarið votlendisfugl og einn af einkennisfuglum votlendis á láglendi. Líkt og margir vaðfuglar er hann háfættur, með langan háls og langt nef. Hann er útbreiddur
um mest allt land en þó að mestu eða alfarið á láglendi og telur stofninn um 68.000 varppör. Þeir verpa í eða í nágrenni við alls konar votlendi og fela hreiðrin sín iðulega mjög vel. Jaðrakan er alfarið
farfugl á Íslandi og heyra íslenskir jaðrakanar til sérstakrar undirtegundar (L.I. islandica). Þeir hafa vetrardvöl að mestu á Bretlandseyjum en einnig í Vestur-Evrópu og suður til Spánar. Jaðrakan getur
verið fremur hávær, sérstaklega á varpstöðvum þar sem hann er nokkuð órólegur. En hljóðið í honum er nokkuð einkennandi hávært og hvellt „vaddúddí - vaddúddí“. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Tíska:
Máttur og mörk auglýsinga
Balenciaga-taska ofan á dómskjölum kynferðisafbrots.
HAHAHA-línu
auglýsing Gucci.
Leðurklæddur bangsi Balenciaga.
Ný auglýsing Benetton nærklæddra
barna þykir ekki sæmandi. Fyrir
neðan eru dæmi 10. áratugarins.