Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Útihátíðir að sumarlagi má finna
víðs vegar um land allar helgar frá
júní til ágústloka. Önnur helgin í
júlí er þekkt fyrir sérstaklega mikla
skemmtan, enda mætti segja að
oftast væri að finna örlitla sólarglætu
fyrst á þeim árstíma.
Um ræðir bæði löggiltar útihátíðir
á borð við þungarokkshátíðina Eistna-
flug í Neskaupstað, Goslokahátíð
Vestmannaeyja og Kótilettu þeirra
Selfossbúa, en einnig hafa starfs-
mannafélög ýmissa fyrirtækja gegnum
tíðina staðið fyrir ferðum þessa helgi.
Undirrituð minnist ferðar í
boði ónefnds elliheimilis á tíunda
áratugnum, er haldið var í Þórsmörk
með hóp starfsmanna, þá á aldrinum
fjórtán ára til fimmtugs. Ekkert þótti
eðlilegra en að blanda þarna þessu
aldursbili saman enda var farið í
ýmsa leiki – minnisstæðastur ratleikur
nokkur sem veitt voru verðlaun fyrir.
Fóru leikar svo að fermingarbörnin
hlutu fyrsta sætið og fengu í tilefni
þess bjórkassa. Ekki leist ungviðinu
á verðlaunin, enda bjór frekar ógeðs-
legur drykkur og kassanum skipt
snarlega fyrir vodkapela.
Eistnaflug
Útihátíðir þessa helgi hafa sumar
lengi verið í föstum skorðum. Til að
mynda hóf Eistnaflug göngu sína
árið 2005. Er nafnið skírskotun í
hátíðina Neistaflug sem haldin er
árlega í Neskaupstað um verslunar-
mannahelgina. Eistnaflug á þéttan hóp
aðdáenda sem mæta árlega og sífellt
bætast fleiri í hópinn, auk þess sem
hljómsveitir erlendis frá sækja í að
spila á hátíðinni.
Árið 2016 spiluðu þar alls 77
hljómsveitir en frá árinu 2015 hefur
íþróttahöllin í Neskaupstað verið
notuð samhliða Egilsbúð sem var
aðaltónleikastaðurinn fyrstu árin.
Aldurstakmark á þessa frábæru hátíð
er 18 ára og er tjaldsvæði austast í
bænum ætlað tónleikagestum. Því
miður verður hátíðin ekki haldin í ár,
en verður þeim mun ferskari að ári.
Goslokahátíð
Mikið verður um að vera á Gosloka-
hátíð Vestmannaeyja þetta árið, en hálf
öld er síðan gosið varð. Yfirgripsmikil
dagskrá er í tilefni þessa enda stendur
hátíðin yfir frá 3.–9. júlí. Segir í
útgefnu yfirliti goslokanefndar að í
boði séu fjölbreyttir viðburðir, fjöldi
ljósmynda- og myndlistarsýninga, auk
tónleika af ýmsu tagi – bæði innandyra
og utan.
Barnadagskrá í boði Ísfélags Vest-
mannaeyja verði fjölbreytt og má
þar nefna Goslokahlaup, Latabæ,
BMX brós, Línu Langsokk og Lalla
töframann. Sundlaugarpartíið og
Landsbankadagurinn verði á sínum
stað og einnig ratleikur í boði
Íslandsbanka.
Goslokanefnd hefur lagt áherslu á
að gera bæjarbrag hátíðarinnar sem
mestan og hvetur nefndin því alla
bæjarbúa og fyrirtæki til þess að skreyta
umhverfi sitt í goslokalitunum sem
eru gulur, appelsínugulur, rauður og
svartur – litir elda og hrauns.
Kótilettan
Að lokum, á hinni sívinsælu Kótilettu
Selfyssinga stíga á svið heimamennirnir
vinsælu í hljómsveitinni Skítamóral
auk fjölmargra vel þekktra listamanna
á borð við Nýdönsk, Á móti sól, Herra
Hnetusmjör og Jón Jónsson.
Tilvera Kótilettunnar hófst fyrir
þrettán árum og varð strax vel sótt
fjölskylduhátíð þar sem, auk þess að
njóta tónleikahaldsins, geti grilláhuga-
menn kynnt sér allt á grillið, bæði
kjöt og úrval grilla frá fjölda
framleiðenda. Á meðal dagskrárliða
eru Stóra Grillsýningin, Styrktarlettur
SKB, Veltibíllinn og svo auðvitað
stórglæsileg dagskrá á sviðinu fyrir
alla fjölskylduna.
Er aðgangur á bæði fjölskyldu-
hátíðina og grillfestivalið er ókeypis,
en borga þarf fyrir miða á tónleika. /SP
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Austurland & Austfirðir
6.–9. júlí Fjölskylduhátíðin Støð í Stöð á Stöðvarfirði. Mikið
fjör og húllumhæ, Íslandsmótið í bubblubolta, Pallaball, hoppukastalar, grill,
froðubraut, golf, Vísunda Villi, Jógaganga, Stebbi Jak & Hafþór Valur stíga
á svið o.m.fl.
Norðurland & Norðausturland
5.–9. júlí Þjóðlagahátíðin á Siglufirði býður upp á: Flamenco
tónleika Tríós Reynis Haukssonar, Ólína Ákadóttir leikur píanókonsertinn
Sláttu eftir Jórunni Viðar og grísku systkinin Rena, Alex og George Rasoulis
halda námskeið í grískum þjóðdönsum svo eitthvað sé nefnt.
7.–8. júlí Hríseyjarhátíðin, fjölskylduvæn dagskrá: Garðakaffið,
óvissuferðir, kaffisala kvenfélagsins, ratleikur, hópakstur traktora,
kvöldvaka, brekkusöngur og varðeldur svo eitthvað sé nefnt. Einnig er von
á Sigga Gunnars, Benedikt búálfi, Dídí mannabarni, Kalla Örvars, Stúlla o.fl.
Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland
6.–9. júlí Fjölskylduhátíð Kótelettunar á Selfossi
3.–9. júlí Goslokahátíð Vestmannaeyja á hálfrar aldar afmæli
þetta árið, en gosi lauk í byrjun júlí árið 1973.
7.–9. júlí Flughátíðin Allt sem flýgur, flugvellinum á Hellu.
Hátíðin er opin flughátíð þar sem flugvélar af öllum stærðum og gerðum
eru á flugi meira og minna alla helgina. Því er stanslaus dagskrá í loftinu
á svæðinu, grillveisla laugardagskvöld, kvöldvaka og hljómsveit.
8. júlí Hljómsveitin Góss stígur á svið í Básum, Goðalandi
(Þórsmörk), laugardagskvöldið 8. júlí, um kl. 20.
Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir
7.– 9. júlí Sumarhátíð ÍslandRover. Haldin í sælureitnum Árbliki
í Dölunum. Grill, ferðir, happdrætti, leikir o.fl.
8. júlí Kolrassa krókríðandi heldur tónleika. Tónleikarnir
verða haldnir á Vagninum, Flateyri og munu hljómsveitameðlimir rokka og
róla þar til Vagninn tekur af stað!
14.–16. júlí Náttúrubarnahátíð á Ströndum. Fjölskylduhátíð á
Sauðfjársetrinu í Sævangi, sjá nánar bls. 38.
Viðburðadagatal:
– Frá og með 6.–20. júlí
Tónleikar hljómsveitarinnar GÓSS í veðurblíðu og sæld Þórsmerkur.
Hátíðahöld og skemmtanir:
Önnur helgin í júlí
Hljómsveitin Sólstafir á Eistnaflugi
árið 2009. Mynd / Jóhannes G. Þorsteinsson
Goslokahátíð Vestmannaeyinga er haldin árlega til minningar um Heimaeyjargosið sem hófst 23. janúar og lauk
3. júlí sama ár. Heppnuðust björgunaraðgerðir á fólki giftusamlega þótt hús færu mörg hver undir hraun, gjall eða
urðu eldi að bráð þar sem hraunbombur lentu á þeim og kveiktu í. Í ár eru fimmtíu ár síðan gosið varð og verður
haldin vegleg hátíð í tilefni þess dagana 3.–9. júlí. Myndir / Markaðsstofa Suðurlands
Auðvitað hefur eitthvað ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt
upptalið sem má skemmta sér við.
Sími 570 9090 • frumherji.is
Komdu með hestakerruna á næs
skoðunarstöð og hafðu hana klára
rir vorið og sumarið.