Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Hreinsun er komin í fullan gang!
Getum bætt við okkur æðardúni í hreinsun og sölu.
Greiðum flutningskostnað.
ÆÐARBÆNDUR! TR
AU
ST OG ÖRUGG VIÐSKIPTI30 ÁR
YFIR
YFIR
Traust og örugg viðskipti í yfir 30 ár
Dúnhreinsun - Nesvegur 13 - 340 Stykkishólmi
ÍSLENSKUR ÆÐARDÚNN Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369
& erla@kingeider.is
Eru gæðin á andrúmsloftinu í lagi? Er geymslulykt
þegar bústaðurinn eða hjólhýsið hafa staðið ónotuð?
K.Skúlason Ehf. . Sími 774.6220 . póstfang:sales@kskulason.is
Aerus Mobile fyrir
hjólhýsi og húsbíla
Pure & Clean fyrir
sumarbústaði
Hafðu samband við okkur og leyfðu okkur að kynna þér málið
Fyrir sumarbústaðinn, húsbílinn, hjólhýsið!
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Rafmögnuð
gæði
GARÐYRKJA
Það hefur færst töluvert í vöxt
að garðeigendur komi sér upp
litlum gróðurhúsum í garðinum.
Einn val-
kosturinn og
sá ódýrasti er
að hafa húsin
óupphituð, en
þá sér sólin ein
um að halda
uppi hitanum
en eigandinn
þarf aðallega
að fylgjast með
að hitastigið haldist nægilega lágt á
löngum, björtum sumardögum sem
við höfum að vísu ekki öll fengið
að njóta í sumar.
Síðsumarræktun í
köldum húsum
Í gróðurhúsum án upphitunar
bjóðast margir möguleikar í
matjurtarækt. Þar getum við búist
við mun lengri vaxtartíma en
utanhúss. Því er enn hægt að koma
margs konar ræktun af stað. Flestar
salattegundir eru nógu fljótvaxnar
til að ná ágætum þroska síðla
sumars og í haust í köldu húsunum.
Næpur og hnúðkál ná líka góðum
þroska þótt sáð sé til þeirra núna
og sjálfsagt er að gróðursetja
kryddjurtir þar ef þær eru ekki
komnar í matjurtagarðinn nú
þegar. Það getur verið erfiðleikum
bundið fyrri hluta sumars að rækta
þær tegundir matjurta sem hafa
tilhneigingu til að blómstra of
snemma. Dæmi um slíkar tegundir
eru klettasalat (rucola), blaðkál
(Pak Choy), Mizunakál og fleiri
fljótvaxnar tegundir, einkum af
krossblómaætt. Spínati hættir líka
til að blómstra áður en það hefur
myndað nægilega mörg lauf ef sáð
er of snemma. Nú þegar dagurinn
styttist hægt og rólega í báða
enda minnkar þessi vandi, því hér
erum við að ræða um svo kallaðar
skammdegistegundir.
Fljótvaxið og kuldaþolið
grænmeti
Þessar tegundir eru flestar
fljótvaxnar og ætti að vera hægt
að sá til þeirra í óupphituðum
gróðurhúsum og búast við góðri
uppskeru undir haustið. Vöxtur
þeirra helst góður fram eftir
septembermánuði og jafnvel fram
í miðjan október en þá er bæði orðið
heldur kalt fyrir þær og orkugjafinn,
sólin, ekki jafn öflugur. Þess vegna
ætti að fylgjast vel með þrifum
plantnanna þegar á líður og taka
uppskeruna áður en hætta er á
skemmdum.
Gæta þarf að vökvun og
áburðargjöf, meindýrum og
illgresi eins og í allri ræktun og
mikilvægt er að hafa góða loftun,
til dæmis með stórum opnanlegum
gluggum á báðum göflum.
Notagildi húsanna að vetri
Að lokinni uppskeru er hægt að
nota húsin til ýmiss konar gagns.
Nærtækast er að nefna yfirvetrun
fjölærra plantna sem þar hafa vaxið,
einnig vetrargeymslu viðkvæmari
garðplantna í blómakerjum.
Það er líka ágætis leið til að auka
notagildi kalda garðgróðurhússins
með því að rækta hvítlauk að
uppskeru lokinni. Notuð eru væn
hvítlauksrif án sýnilegra sýkinga.
Þau eru sett niður nokkuð þétt í raðir
með t.d. 10X10 cm millibili og í
fárra sentimetra dýpt. Rifin mynda
fljótt rætur og e.t.v. nokkur smá lauf.
Þau leggjast síðan í vetrardvala og
hefja aftur vöxt þegar hlýna fer í
húsinu næsta vor. Að einu ári liðnu
frá niðursetningu er hægt að taka
upp fallegan, ferskan hvítlauk, sem
er hægt að nota strax eða geyma til
vetrarforða.
Ingólfur Guðnason, brautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu
Garðyrkjuskólanum Reykjum/FSu
Óupphituð gróðurhús: Aukin
ánægja af matjurtaræktinni
Í gróðurhúsum án upphitunar bjóðast margir möguleikar í matjurtarækt.
Ingólfur
Guðnason.