Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Nýlega var birtur nýr verðlags-
grundvöllur mjólkurframleiðslu,
sá annar á þessu ári. Birtir hann
verðlagningu á aðföngum, þjón-
ustu og öðrum nauðsynlegum
rekstrarliðum fyrir mjólkurfram-
leiðendur.
Þessi grunnur er síðan forsenda
breytingar á heildsöluverði mjólkur
e n þ a ð
verð er ákveðið
af verðlags-
nefnd búvara
ársfjórðungs-
lega, beint
í kjölfar
u p p f æ r s l u -
grunnsins.
Í kostnaðar-
liðnum eru
mældar verð-
breytingar á
11 kostnaðar-
liðum mjólkur-
bús, allt frá
áburði yfir í
laun, og inni-
heldur hver
kostnaðarliður
tvo til fimm
undirliði.
Allt í allt 44 mælingar sem taka
mismiklum breytingum á milli
uppfærslna.
Í nýjustu útgáfunni, 1. júní 2023,
var tilkynnt að rekstrarkostnaður
þess bús sem miðað er við, 40 kýr
með geldneytum, hafi hækkað um
1% frá síðustu útgáfu. Í hækkunum
munar mest um hækkun launa, 3%
á milli fjórðunga sem samsamar rétt
rúmlega 600.000 króna hækkun fyrir
býlið á ársgrundvelli, auk 80.000
króna hækkun á launatengdum
gjöldum. Mesta lækkunin er á
kjarnfóðri, lækkun upp á rétt tæplega
180.000 krónur.
Eftir þessa tæplega 700.000 króna
hækkun á launum og launatengdum
kostnaði eru laun á kúabúi áætluð
24,1 milljón á ári, eða um milljón
á mánuði fyrir tvo starfsmenn. Er
sú upphæð ekki í samræmi við
niðurstöður rekstrarverkefnis RML
sem sýndi fram á að launakostnaður
meðalbús árið 2021 voru aðeins um
11,5 milljónir árið 2021, auk 1,4
milljóna í hagnað af rekstri. Hafi
þau laun og hagnaður haldist í við
þróun launavísitölu frá upphafi árs
2021 og til júní 2023, ættu þau að
vera 18.450.000 á ári.
Töluverður munur þar en við
það má einnig bæta að meðalbúið
árið 2021 hafði 59 kýr en ekki 40
eins og verðlagsgrunnurinn gerir ráð
fyrir þannig ekki er aðeins að vinna
fyrir lakari kjör en gert er ráð fyrir
í endursöluverði vörunnar, heldur
er vinnuframlag þeirra einnig að
meðaltali meira.
Aðrir liðir verðlagsgrunnsins eru
einnig oft á skjön við það sem margir
kúabændur segjast þekkja úr sínum
rekstri. Þessar breytur hafa leitt til
þess að mörgum þykir kostnaður,
sér í lagi fjármagnskostnaður
og afskriftir, vera vanmetinn í
grunninum. Árið 2001 var metið
að meðalverðmæti húsa sem nýtt
eru til mjólkurframleiðslu ætti að
vera 22,4 milljónir og véla væri
18,4 milljónir. Síðan þá hefur þetta
verð verið uppreiknað með tilliti til
byggingavísitölu annars vegar og
gengisvísitölu Seðlabanka Íslands
hins vegar. Í enda árs 2022 var
meðalvirði húsnæðis samkvæmt
verðlagsgrunninum rétt rúmlega
80 milljónir og meðalvirði véla
31,2 milljónir.
Ef virði véla væri hins vegar
uppreiknað með verðvísitölu
innflutnings á annaðhvort
framleiðsluvörum eða véla og
samgöngutækja, sem margir myndu
áætla að væri réttari samanburður,
væru vélar metnar tvöfalt verðmætari
í verðlagsgrunninum, rúmlega
60 milljónir í stað 31 milljónar,
og afskriftir og vaxtakostnaður í
samræmi við það. Þykir það vera
nær því sem gerist í raun.
Samband verðlagsgrunnsins
og mjólkurverðs helst ekki alltaf
í hendur heldur er það í höndum
verðlagsnefndar búvara að taka
ákvörðun um verðhækkanir. Eins
og sést á grafi hérna sem ber saman
þróun kostnaðar í verðlagsgrunni
og verðlagsvísitölu mjólkurverðs,
hækkar verð stundum meira en
hækkun grundvallarins. Vert er þó
að hafa í huga að verðlagsvísitala
mjólkur mælir verð á mjólk út í búð
og því eru fleiri þættir sem hafa áhrif á
hana en ákvarðanir verðlagsnefndar.
Frá byrjun árs 2010 hefur verð á
mjólk útí búð þó hækkað meira
en kostnaður mjólkurframleiðenda
eins og hann kemur fram í
grundvellinum. Fyrir hvert prósent
sem framleiðslukostnaður hækkar
samkvæmt verðlagsgrundvelli hefur
verð á mjólk hækkað um 1,29%.
Þar sem mat grundvallarins er ekki
alveg í samræmi við upplifun bænda,
og það svo stutt með gögnum úr
rekstrarverkefni RML, væri óeðlileg
krafa að verð á mjólk myndi til lengri
tíma haldast algjörlega í hönd við
kostnað eins og hann er reiknaður í
verðlagsgrundvellinum.
Nú er verið að vinna að nýjum
verðlagsgrunni og ber því að fagna.
Ljóst er að núverandi útgáfa sýnir
skakka mynd af rekstri búa og
afkomu bænda og ekki er réttlátt að
eingöngu sé tekið mið af honum í
ákvörðunum sem hafa bein áhrif á
störf og lífsgæði kúabænda. /SFB
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Suzuki á Íslandi
Skeifunni 17
Sími 568 5100
www.suzuki.is
LÁTTU EKKERT STOPPA ÞIG!
Suzuki fjórhjól eru með power stýri og 100% driflæsingu.
Þau eru létt, lipur og meðfærilegTraust, ódýr í rekstri
og þægileg í notkun.
S UZUK I FJÓRHJÓL
KINGQUAD 750AXI 4X4
VERÐ KR. 2.590.000
Verðlagsgrunnur mjólkur og
skekkjurnar sem í honum finnast