Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
LÍF&STARF
Hannaði vagna í frístundum
– Jóhann Björnsson sá að vantaði endurnýjun á þungaflutningavögnum
Jóhann Björnsson vélaverk-
fræðingur, hefur endurvakið
íslenska hönnun á vélavögnum,
undir merkjum Mecho ehf.
Vélsmiðja Sigurðar framleiddi
vélaflutningavagna um árabil, sem
verktakar voru ánægðir með. Eftir að
sú framleiðsla lagðist af, sá Jóhann
ákveðið tómarúm, sem hann hefur
fyllt með endurbættri útgáfu –
byggðri á eldri vögnunum.
„Ég er búinn að vinna í mörg ár
sem vélahönnuður. Svo kemur þetta
sem hobbí. Í staðinn fyrir að sitja
heima fyrir framan sjónvarpið, þá
fer ég að gera þetta,“ segir Jóhann.
Hans aðalstarf er að hanna vélar fyrir
norska olíuiðnaðinn og hefur hann
búið erlendis frá árinu 2000.
Jóhann segist hafa nokkur
tengsl við verktakabransann. Hann
skynjaði að þar væri áhugi fyrir
endurkomu vagna af þessu tagi.
Aðspurður hver helsti munurinn sé
á þessum vögnum, samanborið við
það sem framleitt er fyrir erlenda
markaði, segir Jóhann það meðal
annars felast í stærri hjólbörðum
og aukinni veghæð. „Íslendingarnir
vilja hafa þetta á háum hjólum,“
segir hann.
Smíðað í Tyrklandi
Jóhann vill ekki eigna sér allan
heiðurinn af hönnun þessara vagna,
heldur eru þeir byggðir á hugmynd
Vélsmiðju Sigurðar. Hann var
ekki með aðgang að upphaflegu
teikningunum, en skoðaði vagn
frá þeim til að fá helstu málin. Þá
teiknaði hann vagnana í fullkomnu
tölvuforriti, sem gaf honum færi á
að burðarþolsmæla hönnunina og
betrumbæta þar sem þurfti.
Jóhann veit ekki hversu mörg
eintök voru framleidd af vögnum
í Vélsmiðju Sigurðar. „Það var
dálítill fjöldi. Nú eru þeir orðnir það
gamlir að það er farið að koma að
endurnýjun á suma þeirra.“
Tyrkneskur vagnaframleiðandi
smíðar vagnana eftir teikningum
Jóhanns. Fyrstu þrír vagnarnir komu
til landsins haustið 2021 og hefur
Jóhann fengið jákvæð viðbrögð. Í
lok sumars verða samtals sex vagnar
komnir til landsins.
Laushálsavagnar nýjung
Fljótlega sá hann möguleika á að
endurbæta hönnunina enn frekar og
hannaði svokallaða laushálsavagna,
sem er hægt að keyra upp á bæði að
framan og aftan. Þegar framparturinn
er tekinn af, þá er mun minni halli
sem vélarnar þurfa að keyra upp.
Það hentar sérstaklega vel til að
flytja hörpur, brjóta og aðrar vélar
sem ráða illa við að aka upp brattar
sliskjurnar að aftan. Þetta segir
Jóhann að sé ný nálgun, sem hann
hefur hvergi séð annars staðar.
Jóhann segir burðargetu vagnanna
yfirleitt takmarkast af öxulþunga á
hverjum stað. Laushálsavagnarnir
eru 17 tonn og er Jóhann búinn að
reikna út að þeir þoli að flytja 67
tonna farm. Þungaflutningar sem
þessir eru alltaf háðir undanþágu
hjá Samgöngustofu, þar sem almenn
hámarksþyngd vöruflutningabíla er
40 tonn. Enn fremur eru vagnarnir
þrír metrar á breidd, sem er breiðara
en hefðbundnir vöruflutningavagnar.
„Þetta eru vagnar sem eru bara til
þess að flytja þungar vélar og
eru alltaf á undanþágu. Ég er að
sigta inn á markaðinn með þessa
þungaflutninga.“
Fimm öxlar eru undir vögnunum
og eru fjögur hjól á hverjum. Öftustu
öxlarnir eru svokallaðir eltiöxlar,
sem fylgja með í beygjum. Vagnarnir
eru með loftpúðafjöðrun og er hægt
að lyfta upp öxlum þegar hann er
ekinn án farms.
Erfitt að gefa nákvæmt verð
Jóhann vill fara mjög varlega í að
gefa upp nákvæmt verð á svona
vagni í blaðaviðtali, en kaupendur
þurfa að fá tilboð hjá honum fyrir
hverja sölu. Það skýrist að miklu
leyti af því að stjórnvöld í Tyrklandi
hafa misst stjórn á verðbólgunni
og framleiðandinn gefur Jóhanni
einungis tilboð sem gildir í nokkrar
vikur. Hann býst við að vagnarnir
kosti á bilinu 14–17 milljónir án vsk
í dag. „Þetta er nú bara aukavinnan
mín, þannig að ég hef mjög hóflega
álagningu. Mér finnst gaman að gera
eitthvað sem tengist Íslandi og held
þá smá tengslum við landið og legg
mitt af mörkum til að skapa eitthvað
sem kemur sér vel fyrir landann,“
segir Jóhann. /ÁL
Vagnarnir frá Mecho ehf. eru sambærilegir vögnum sem framleiddir voru af Vélsmiðju Sigurðar á árum áður. Myndir / Aðsendar
Jóhann Björnsson vélaverkfræðingur
er uppalinn á Skriðufelli í Þjórsárdal.
Hann sá að komið væri að endur-
nýjun á vögnum sem smíðaðir eru
eftir íslensku lagi.
Laushálsavagninn er nýjung. Hægt er að taka frampartinn af og keyra
vinnuvélar upp að framan og aftan.
YLEININGAR
Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús
þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is