Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023 Reiðvegir eru nauðsynlegir þeim sem vilja geta stundað útreiðar og ferðast um á hestbaki. Þeir eru mikilvægur hluti af hesta- mennskunni, segir Halldór H. Hall- dórsson, hestamaður og nefndar- maður til fjölda ára í reiðvega-, ferða- og samgöngunefndum. Eftir rúmlega tveggja áratuga störf í sjálfboðavinnu hefur Halldór nú, að mestu leyti, stigið til hliðar í nefndarstörfum reiðvegamála. Í ritinu Reiðvegir er greint frá því að árið 1965 var fyrst veitt fjármagn frá Alþingi af vegfé til reiðvega, sem segir að síðan þá hafi málaflokkurinn verið í fjársvelti. „Hestamenn hafa alla tíð talið að of litlu af opinberu fjármagni sé varið í þann málaflokk sem reiðvegir eru, að undanskilinni gerð „Konungsvegarins“ sem gerður var fyrir konungskomuna 1907 og kostaði tvenn fjárlög íslenska ríkisins. Gífurlegs álags og aukningar umferðar hefur gætt á reiðvegum landsins síðustu áratugi vegna aukinnar hestaferðaþjónustu og ferðalaga hestamanna um landið. Reiðvegirnir fá ekki það viðhald né uppbyggingu sem þeir þurfa, þeir drabbast niður sem m.a. leiðir af sér stóraukna slysahættu.” Reiðgötur voru fáar Halldór Helgi Halldórsson fór ungur í sveit, fyrst að Hvammi í Landsveit og svo að Skarðshömrum í Norðurárdal í Borgarfirði þar sem hann kynntist m.a. hrossum og smalamennsku. Hann fann að hrossin áttu vel við sig og áhuginn varð það mikill að áfram fetaði hann menntaveginn og útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri árið 1969. Hestamennska hans í höfuðborginni hófst svo árið 1983 þegar hann fékk úthlutaða hesthúsalóð á Kjóavöllum, þá á félagssvæði hestamannafélagsins Andvara í Garðabæ (nú Sprettur) og byggði þar fyrsta hesthúsið við Dreyravelli á Kjóavöllum. Þar stundaði Halldór sína hestamennsku í tæp 40 ár, en veturinn 2021 var síðasti vetur hans með hross á húsi. „Þá voru reiðgötur hér í hestamannafélaginu Andvara engar, það var bara flóttamannavegurinn svokallaði og svo línuvegurinn hér upp frá sem var rudd slóð og ekkert efni í hana borið. Hestamönnum blöskraði framganga sveitarfélagsins eftir að hafa úthlutað hér hesthúsalóðum á Kjóavöllum en svo voru hér engir reiðvegir, við það vorum við hestamenn ekki sáttir. Eftir setu í stjórn Andvara í nokkur ár, þá óskaði Elísabet Þóra Þórólfsdóttir, þáverandi formaður reiðveganefndar Andvara, eftir því að fá mig með sér í reiðveganefnd Andvara, sem ég gerði árið 1996. Þá var einnig starfandi sameiginleg reiðveganefnd allra hestamannafélaga á Suðvesturlandi, „reiðveganefnd í Kjalarnesþingi hinu forna“, öðru nafni reiðveganefnd suðvestursvæðis, sem stofnuð var árið 1990.“ Reiðveganefndir um land allt Halldór hefur alla tíð verið öflugur félagsmaður og sinnt ýmiss konar nefndar- og stjórnarstörfum í sjálfboðavinnu sem sennilega hleypur á þúsundum klukkustunda. Má þar helst nefna setu hans í stjórn og nefndum Andvara, stjórn Landsmóts 2000 ehf., sameiningarnefnd Gusts og Andvara, auk setu í varastjórn Landssambands hestamannafélaga (LH). Mestum tíma Halldórs hefur þó verið varið í reiðvegamál þar sem hann hefur setið í reiðveganefnd Andvara í um 15 ár, þar til félagið sameinaðist Gusti og úr varð hestamannafélagið Sprettur. Þá hélt hann áfram störfum í reiðveganefnd Spretts sem formaður til ársins 2021. Hann var einnig formaður reiðveganefndar LH 2004–2021 og starfar enn með báðum nefndum eftir þörfum. „Það tókst það vel til með reiðvegamál hjá reiðveganefnd Kjalarnesþings hins forna að úr varð að koma á laggirnar svæðisbundnum reiðveganefndum víðs vegar um landið. Það ferli hófst árið 2006 og í dag eru nefndirnar sjö talsins vítt og breitt um landið og njóta stuðnings hver af annarri.“ Halldór, sem var þá formaður reiðveganefndar LH, ferðaðist um landið, fundaði með hestamönnum hvers svæðis fyrir sig og var við stofnun allra reiðveganefndanna. Saman mynda formenn hverrar nefndar fyrir sig reiðveganefnd LH. Sú nefnd ráðstafar reiðvegafé hvers árs, en reiðvegir eru fjármagnaðir með reiðvegafé af vegaáætlun samgönguáætlunar, auk framlags frá sveitarfélögunum sem standa sig þó misjafnlega vel. Fjölmörg verkefni og uppákomur Verkefnin sem Halldór hefur komið að eru fjölmörg. Reiðvegahandbókin er eitt af þessum verkefnum. „Ég kom lítillega að þessu verkefni í upphafi, í kringum árið 2006, en svo höfum við Sæmundur Eiríksson ásamt Haraldi Sigursteinssyni fyrir hönd Vegagerðarinnar endurunnið handbókina, lagfært hana og komið í rafrænt form. Þetta er samstarfsverkefni LH og Vegagerðarinnar og fjallar í stuttu máli um framkvæmd og gerð reiðstíga með það að markmiði að samræma reiðstígagerð á landinu og reyna að tryggja sem kostur er öryggi ríðandi umferðar og annarrar.“ Handbókin er veglegt rit sem telur um 65 bls. Þar má m.a. finna upplýsingar um flokkun hestaumferðar, hönnun reiðstíga, flokkun jarðefna, skráningu reiðleiða í kortasjána, reiðgöng og brýr, áningarhólf og merkingar þeirra, lagaákvæði og gátlista svo fátt eitt sé nefnt. Verkefnin hafa ekki alltaf gengið snurðulaust fyrir sig og rifjar Halldór upp þá tíma þegar sameiginleg reiðveganefnd suðvestursvæðis var í reiðvegaframkvæmdum í Heiðmörk þegar sveitarfélagið Garðabær stoppaði framkvæmdir vegna hættu á mengun vatnsbóla við Dýjakróka. „Hestamenn boðuðu til fundar með sveitarstjórn og fleirum. Við höfðum undirbúið okkur vel og sýndum fram á að mengunaráhætta stafaði ekki af hestum í Heiðmörk, könnunarholur milli vatnsbóla og hesthúsasvæðis voru hreinni heldur en í vatnsbólunum sjálfum, þ.e. minna magn nítrata sem voru þó fjarri öllum hættustöðlum. Auk þess bentum við á þá staðreynd að Heiðmörkin öll var ræktuð upp með hrossataði. Í stuttu máli sagt fengum við að halda áfram reiðvegagerð.“ Fimmtán þúsund kílómetrar af reiðleiðum Þegar litið er til baka á þau verkefni sem Halldór hefur unnið að telur hann kortasjána vera þeirra stærst. Hestamennska: Það gerir þetta enginn fyrir okkur – Halldór H. Halldórsson er vongóður um aukið fjármagn til reiðvegaframkvæmda Halldór á ferð um Heiðmörkina í góðum félagsskap. Myndir / Aðsendar. Halldór við undirritun samnings við Neyðarlínuna, sem hefur afnot af öllum reiðleiðaferlum úr kortasjánni, sem er öryggisatriði fyrir ríðandi umferð. Þórdís Anna Gylfadóttir thordisannag@gmail.com VIÐTAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.