Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Íslenskir bændur eru fjölbreytt
flóra dugmikilla sjálfstætt starf-
andi einstaklinga. Hver og einn
hefur valið sína leið til að lifa og
starfa en þó má ætla að flestir
bændur búi og starfi á sama stað.
Það er að
segja að þeir sem
hafa landbúnað
sem aðalstarf
eigi heima á
bújörðinni þó
þeir séu ef til vill
einnig í öðrum
störfum utan
bús. Fjölmargar
útfærslur eru til
af samþættingu landbúnaðarstarfa
við önnur störf, einstaklingar
standa einir fyrir búi og starfa ýmist
einir eða með starfsfólki og tengt
og ótengt fólk gengur til verka á
sama búi. Í sumum tilfellum búa
hjón eða par saman á jörð og starfa
bæði eingöngu við búið nú eða bæði
starfa að hluta utan bús. Í öðrum
tilvikum starfar annar aðilinn
við búið en hinn er einnig í öðru
starfi, hlutastarfi eða fullri vinnu
við annað.
Sá einstaklingur á þá heimili sitt á
vinnustað maka síns sem er í raun
nokkuð sérstök staða.
Það felast bæði dásamlegt
tækifæri og ógnanir í því að búa og
starfa á sama stað. Það er nærtækt
að skjótast í vinnuna og næsta víst
að verkefnin eru næg. Vinnutíminn
og vinnudagar eru ekki rammaðir
inn með vinnutímaskilgreiningu
eða stimpilklukku og vinnan flýtur
því auðveldlega yfir lífið. Það
getur verið gaman þegar unnið er
sjálfstætt, verkin eru skemmtileg
og árangurinn gefandi.
Svo er líka skemmtilegt og frjálst
að geta sleppt vinnunni tíma og
tíma til dæmis á miðjum virkum
vetrardegi.
Sjálfstætt starf, búseta á vinnustað,
sýnilegur árangur, frelsi og
sveigjanleiki, allt eins og draumur í
dós. Já, það er sko alveg rétt!
En þar með er ekki í öll sagan
sögð. Þeir sem eru hluti af fjölskyldu,
eiga maka og ef til vill líka börn, þurfa
að huga að því af alvöru hvernig þeim
gengur að samþætt og skilja á milli
starfs og fjölskyldulífs. Já, einmitt
bæði samþætta og skilja á milli.
Það er gefandi og skemmtilegt að
fjölskyldan sé saman að fást við verk
á búinu og þannig sé fjölskyldulífið
og starf bóndans samþætt. En það
er líka alveg nauðsynlegt að láta
ekki vinnu bóndans við búið lita allt
fjölskyldulífið og heimilislífið, það
þarf líka að skilja á milli. Þetta er
sérstaklega áríðandi þar sem annar
aðilinn starfar utan bús. Þá þarf hann
að mæta þar til vinnu og ef um fullt
starf er að ræða hefur hann klárað
sinn vinnutíma þegar heim kemur.
Þá eru verkunum á búinu ef til vill
ekki lokið og stundum liggur í loftinu
krafa um að mæta þar til vinnu, eftir
fullan vinnudag við annað, nú eða
hún er bara skýr og ljós sérstaklega á
álagstímum búsins. Ef til vill ríkir um
þetta fyrirkomulag góð sátt en gefum
okkur það ekki. Athugum að þó góð
sátt hafi verið einu sinni er ekki hægt
að ætlast til að svo verði um aldur og
ævi, bæði fólk og aðstæður breytast.
Veltu því fyrir þér í fullri alvöru
núna í vikunni hvort þú þurfi að
endurmeta og skilja á milli eða
samþætta starfið þitt sem bóndi
og fjölskyldulífið á nýjan hátt.
Tækifærið er núna. Ekki stinga
höfðinu í sandinn, skella þér í
vinnugallann og fara út að dreifa
skít. Ekki nota gömlu tuggurnar til
að loka á makann þegar hann óskar
eftir sameiginlegum frístundum, þú
ert íslenskur bóndi, alvörugarpur,
þú getur breytt ef þú vilt! Skoðaðu
málið heiðarlega og markvisst því að
rannsóknir sýna að það hefur veruleg
áhrif á heilsu, hamingju og velferð
fólks að ná sátt um samspilið á milli
vinnu og fjölskyldulífs. Gerðu það
af virðingu við sjálfan þig og þá sem
þú elskar mest.
Gerðu samning við þig og þína um
samþættinguna og skilin á milli
heimilis og bús.
Um hluti eins og sameiginlegan
frítíma í klukkustundum um helgar,
eða um heilar fríhelgar og um lengri
frí yfir árið talin í dögum eða vikum.
Það er engin ein uppskrift rétt en ekki
bara láta tímann líða og samskiptin
við mikilvægasta fólkið í lífi þínu
reka á reiðanum! Það er yndislegt
að vera saman við störf á búinu, sjá
flekkinn breytast í ótal rúllur, dást
að ásetningsgimbrunum og sægráu
kvígunni sem loksins kom. En það
er líka gaman að vera saman við
eitthvað allt annað og skapa öðruvísi
minningar.
Við þurfum öll að virða okkur
sjálf, okkar eigin lífsstíl, heilsu og
hamingju. Það er heillandi að njóta
þess að vera bóndi en líka að vera
maki og foreldri og það þarf að
rækta ástarlífið eins og tún, bera á,
hlúa að, girða fyrir vanda og vera
vakandi.
Rannsóknir sýna að ef við
ræktum og hlúum að okkar nánustu
samböndum bætir það okkar eigin
geðheilsu og þeirra sem í hlut
eiga. Samskipti og sambönd skipta
verulegu máli fyrir lífsgæði. Gefðu
þér tíma til að hlúa að þér og þeim
sem þú elskar mest, ekki láta þá bíða,
það kemur ekki betri tími seinna,
farðu úr vinnugallanum og elskaðu
í verki núna!
Kristín Linda Jónsdóttir
sálfræðingur.
Lífsgæði:
Fjölskyldulífið
Kristín Linda
Jónsdóttir.
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
Aukaársfundur
Lífeyrissjóðs bænda
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA
Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
s. 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is